Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Heiðraðu dagdraumana. Fólk heldur áfram að spjalla, smáatriði haldast óljós og diskarnir í vaskinum verða áfram skítugir. 20. apríl - 20. maí  Naut Þér hlýnar um hjartaræturnar í sam- tölum þínum við aðra í dag. Sá sem biður þig ráða sækist eftir viðurkenningu. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að fá aukið svigrúm svo þú náir að einbeita þér að þeim verkefnum sem fyrir liggja. Gakktu frá þessum málum og stefndu ótrauður fram á við. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Það er erfitt að mynda sér einhverja skoðun þegar aðeins liggja fyrir brot af upp- lýsingum. Taktu hlutina fastari tökum og rannsakaðu nánar. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Leit þín að ást ber árangur. Láttu ekki mannalæti blekkja þig heldur sjáðu í gegnum þau og hagaðu þér eftir efnum og að- stæðum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Æðri máttarvöld ýta þér út á ystu nöf í sjálfsuppgötvuninni. Fólk í kringum þig dregur rangar ályktanir og telur sig svo geta treyst þeim. 23. sept. - 22. okt.  Vog Töfrar verða til hvar sem er og hvenær sem er ef þú ert með einhverjum sem þér líkar ákaflega vel við. Geymdu samt öll fagnaðarlæti þangað til málið er komið í höfn. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Kurteisi kostar ekkert og er sjálfsögð hvernig sem á stendur og hver sem í hlut á. Vondu fréttirnar eru hins vegar þær að þú þarft að standa fyrir máli þínu. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Mundu að láta athafnir fylgja orðum þínum svo að þú fáir ekki þá einkunn að þig sé lítið sem ekkert að marka. En gættu þess að færast ekki of mikið í fang. 22. des. - 19. janúar Steingeit Ímyndunaraflið er af hinu góða ef menn kunna að hafa á því hemil og gera greinarmun á draumi og veruleika. Festu alla lausa enda. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Áföll eru óhjákvæmilegur hluti af lífinu en það eru viðbrögðin sem gera mann einstakan. Fólk er hjálplegt í þinn garð núna, nýttu meðbyrinn og þiggðu það sem þér er rétt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Nýir vinir eru á næsta leiti. Hér kem- ur gamaldags hugmynd: Labbaðu um með vini og léttu á hjarta þínu. Vertu opinn fyrir nýjum tækifærum. Heimildarmynd um Þórð Halldórs-son frá Dagverðará eftir Kára G. Schram verður frumsýnd í Bíó Para- dís á föstudag. Víkverji hefur ekki séð myndina, en í stiklu á netinu má heyra sænska stórleikarann Max von Sydow lýsa því að hann sé á leið í heimsókn til Þórðar. Forvitni Vík- verja er vakin. x x x Þórði frá Dagverðará var margt tillista lagt. 1925 réð hann sig á tog- ara og lenti í sínum fyrsta túr í Hala- veðrinu mikla, sem stóð í tvo sólar- hringa og komu togararnir meira og minna laskaðir til hafnar, „flestir þeirra tilsýndar eins og fljótandi haf- ísjakar, þaktir samfelldri klaka- brynju frá sigluhún niður í þilfar“, eins og sagði í blaðinu Víkingi. 68 Ís- lendingar og sex Englendingar fórust í óveðrinu. Þórður átti eftir að stunda sjóinn í þrjá áratugi. Þegar haldið var upp á aldarafmæli Þórðar 2005 sagði Reynir Ingibjartsson, einn af stofn- endum Hollvinasamtaka Þórðar, að hann hefði haft sérstakt náttúruskyn, skynjað hluti sem við almennt skynj- um ekki og það hefði margsinnis bjargað honum úr háska: „Frægast var þegar hann batt sig upp í siglutré í Ólafsvík fyrir rúmum 50 árum, þegar bátur sem hann var á slitnaði upp og strandaði fyrir utan. Það skil- ur í rauninni enginn enn í dag hvernig tókst að bjarga honum í þessu ofsa- veðri.“ x x x Þórður var refaskytta og veiði-maður á landi og eftir að hann hætti á sjónum fór hann að yrkja og mála. Hann gaf út nokkrar ljóða- bækur og hélt fjölda málverkasýn- inga. Þórður var einnig áhugamaður um ölkelduvatn og trúði að það hefði lækningamátt. Vildi hann stofna heilsuhæli á Lýsuhóli á Snæfellsnesi. Síðast en ekki síst var hann mikill sögumaður og taldi hann til sérstakra mannkosta að rengja aldrei sögu. x x x Víkverji hlakkar til að sjá heimild-armynd Kára um þennan merki- lega og forvitnilega mann, ekki síst til að sjá hvernig hann fylgir eftir stór- góðri heimildarmynd sinni, Blikkið, um sögu Melavallarins. víkverji@mbl.is Víkverji Þú, Drottinn, ert góður og fús til að fyrirgefa, gæskuríkur öllum sem ákalla þig. (Sálmarnir 86:5) Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Sigrún Haraldsdóttir skrifaði „tiltrafala“ í Leirinn á sunnu- daginn, en í blaðaskrifum hafði þess verið getið að unnið væri að því að „þróa orlofsbrjóst“: Hún Bára við brjóstin slóst, sú barátta á langinn dróst, það för hennar tafði að fengið sér hafði ólukkans orlofsbrjóst. Sigrún hafði orð á því að leg- steinar hefðu verið auglýstir – „ég tók svo sem ekki vel eftir auglýsing- unni að öðru leyti en því að þar stóð; „allt innifalið“: Líkklæði og legsteinar, leiði og sálmagjálfur, innifalið allt er þar, einnig dauðinn sjálfur.“ Davíð Hjálmar Haraldsson rifjaði þá upp að „fyrir fjölmörgum árum las ég grein eftir lærðan mann um Austurlönd. Í greininni kom m.a. fram að úlfaldahirðar settu apríkósusteina upp í legið á kven- úlföldum og kæmu þannig í veg fyr- ir ótímabæran getnað. Síðan hef ég ekki getað tekið mér orðið legsteinn í munn og alls ekki ort þar um“. Ekki lét Skírnir Garðarsson það á sig fá en sagði: Ef undir torfu auðnast leg þér, engu skaltu kvíða, úr apríkósukassa ég, mun kross á leiðið smíða. Sigrún Haraldsdóttir svaraði að bragði: „Krossinn skrýtna þigg ég þann þægara svo verða megi fyrir sjálfan frelsarann að finna mig á efsta degi. Það fer að verða tilhlökkunarefni að deyja, alla vega fyrir aðstand- endur mína. Fyrir nokkrum árum lofaði sr. Hjálmar að jarða mig fyrir lítið og ef svo sr. Skírnir klambrar þessum krossi saman þá verður þetta hin besta skemmtun. Læt hér fylgja vísuna sem Hjálmar orti: Sigrún, er færðu þinn framtíðarstað, fábreytt mun allt og skrýtið. Og ég skal koma þar jafnvel að og jarða þig fyrir lítið.“ Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af orlofsbrjóstum og apríkósukassa Í klípu „HANN ER NÚ ÞEGAR VIÐSKIPTAVINUR OKKAR. ÞÚ VARST RÁÐINN TIL ÞESS AÐ FÆRA OKKUR NÝ VIÐSKIPTI.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ERTU MEÐ EITTHVAÐ ÓSKALAG SEM ÞÚ VILT AÐ ÉG STÝRI?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... blíð augnablik, saman. GRAF GRAF GRAF GRAF MMMMM ÝLF! ÝLF! ÝLF! ÝLF! ÝLF! ÝLF! ÞAÐ ER STRÍÐ Í DAG VIL ÉG RÆÐA RÉTTA MEÐHÖNDLUN VOPNA VIÐ YKKUR! ÞAÐ ER NAUÐSYNLEGT AÐ HAFA ÚTBÚNAÐINN ALLTAF Í GÓÐU LAGI! ÞANNIG AÐ ÞIÐ MEGIÐ ALDREI, ALDREI, ALDREI NOTA SVERÐIN YKKAR... ... TIL ÞESS AÐ SMYRJA HNETUSMJÖRI OG SULTU Á TEKEX!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.