Morgunblaðið - 19.11.2014, Síða 33

Morgunblaðið - 19.11.2014, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2014 Þegar þú kaupir bökunardropa frá Kötlu, styður þú fjölfötluð börn til náms. Sunnusjóður hefur í meira en 30 ár aukið námsmöguleika fjölfatlaðra barna. Katla er helsti bakhjarl sjóðsins. DROPAR SEM LOFA GÓÐU www.sunnusjodur.is www.katla.is/dropar 7 BRÁÐSKEMMTILEG MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Ísl. tal-H.S., MBL Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar 16 16 16 L DUMB & DUMBER TO Sýnd kl. 5:40-8-10:20 NIGHTCRAWLER Sýnd kl. 8 - 10:30 JOHN WICK Sýnd kl. 10:10 BORGRÍKI 2 Sýnd kl. 5:50 - 8 KASSATRÖLLIN 2D Sýnd kl. 5:50 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar -T.V. - Bíóvefurinn.is Hörku spennumynd Keanu Reeves Þorgrímur Þráinsson ernæmur á sálarlíf ung-linga sem sannast einnabest á því hversu mikilla vinsælda bækur hans njóta. Hann kann nefnilega þá list að tala til ungra lesenda á máli sem þeir skilja og þá um hluti sem skipta þá máli, án þess þó að tala niður til lesandans. Hjálp er gott dæmi um það, bók sem segir sannfær- andi sögu af unglingum sem lenda í ævintýralegum erfiðleikum, mátulega spennandi og mátulega óhugnanleg þar sem (nánast) allt fer vel að lokum. Bókin hefst þar sem ungmenni halda á jeppa frá Egilsstöðum seint að kvöldi í leit að volgru til að baða sig í á Jökuldalsheiði. Þegar þau eru á heimleið er þeim rænt af grímu- kæddum ofbeld- ismönnum og flutt með hraði til móts við óhugnanleg ör- lög. Atburðarásin er að mestu hröð og spennandi þótt hún detti nokkuð niður á köfl- um þegar Þorgrímur kafar í hug- skot ungmennanna og á stundum finnst manni sem hann sé ekki al- veg viss hvað hann eigi að gera við allar persónurnar, þær eru kannski fullmargar. Að því sögðu þá eru þær forvitnilegar hver fyrir sig og sannfærandi. Það er helst að manni finnist hlutverk og hegð- un Kesang ótrúverðug en smám saman kemur í ljós hvað rekur hana áfram þó að saga hennar sé aldrei sögð almennilega. Í bókinni tæpir Þorgrímur á erfiðum siðferðisspurningum og grafalvarlegu málefni sem verður æ áleitnara. Þótt hann sé ekki að predika sýnir hann vel óhugnaðinn sem býr undir viðurstyggilegum viðskiptum. Morgunblaðið/Golli Spenna „Þorgrímur Þráinsson kann þá list að tala til ungra lesenda á máli sem þeir skilja og þá um hluti sem skipta þá máli,“ segir í gagnrýni um Hjálp. Til móts við óhugnanleg örlög Unglingabók Hjálp bbbnn Eftir Þorgrím Þráinsson. Mál og menning gefur út. 208 bls. ÁRNI MATTHÍASSON BÆKUR Ný útgáfa af hinu sögufræga lagi Band Aid-hópsins „Do They Know It’s Christmas?“ rokseldist í forsölu á netinu eftir að fríður hópur heims- kunnra tónlistarmanna frumflutti hana í hæfileikaþættinum X-Factor á ensku sjónvarpsstöðinni ITV sunnudagskvöldið sl. Á örfáum mín- útum nam salan einni milljón sterl- ingspunda, jafnvirði um 194 milljóna króna. Allur ágóði af sölu á laginu rennur til baráttunnar gegn út- breiðslu ebólu. „Do They Know It’s Christmas?“ var fyrst gefið út árið 1984 til styrktar baráttunni við hungursneyð í Eþíópíu. Írski tónlist- armaðurinn Bob Geldof er upphafs- maður og skipuleggjandi Band Aid- verkefnisins og meðal þeirra sem sungu lagið að þessu sinni eru One Direction, Bono, Chris Martin, Pal- oma Faith og Sinead O’Connor. Milljón pund á örfáum mínútum AFP Baráttumaður Bob Geldof umsetinn fjölmiðlafólki og forvitnum vegfarend- um við hljóðver í Lundúnum þar sem lagið var tekið upp, 15. nóvember sl. vera með proggpopp líka,“ segir Þor- valdur. – „Æðislegt“ er einmitt í mínum eyrum diskólag … „Já, það byrjaði svolítið þannig en svo þegar Eyþór Ingi kom og tók lag- ið mitt, braut það í tvennt og límdi saman við sitt lag, án þess að spyrja mig, þá fór það einhvern veginn frá glamrokki yfir í diskó. Það finnst mér mjög skemmtileg stökkbreyting,“ segir Þorvaldur og hlær. Tónlist sem fer í ferðalög Hvað þátt Andersons og Hacketts varðar, hvort hann hafi breytt tónlist Todmobile að einhverju leyti, segir Þorvaldur Bjarni að erfitt sé að meta það. „Við finnum kannski frekar ákveðinn samhljóm með þessum meisturum, hjartað slær á svipuðum nótum hvað varðar stíl og áhuga á tónlist sem leyfir sér að fara í svolítil ferðalög. Eins og þú heyrir á „Wings of Heaven“ með Anderson er þetta bókstaflega orðið sinfónískt. Hans hjarta slær svolítið þar líkt og mitt.“ – Það hefur verið mikill kraftur í hljómsveitinni undanfarna mánuði … „Já og ég held að sá kraftur heyrist í fyrstu tveimur lögunum á plötunni og það er nú það sem okkur langar að geisla út; lífsorka, kraftur og gleði,“ segir Þorvaldur. Todmobile heldur tónleika með Hackett í Eldborg á næsta ári, 16. janúar, og þegar blaðamaður ræddi við Þorvald, á útgáfudegi plötunnar, var hann á tónleikaferð um landið með Todmobile og fjöldi tónleika framundan. Hægt er að fylgjast með ferðum Todmobile og fréttum af hljómsveitinni á facebooksíðu hennar: facebook.com/todmobile. Morgunblaðið/Árni Sæberg Í Eldborg Frá tónleikum Todmobile og Jon Anderson, sem hér sést með Þorvald Bjarna brosandi í bakgrunni, í Eldborg í nóvember í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.