Morgunblaðið - 19.11.2014, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 323. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Segist hafa lent í ánni
2. „Borgaðu mér og nauðgaðu…“
3. Lést við rjúpnaveiðar
4. Hvar felur þú 120 tonna þotu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Endurútsetning tónskáldsins og
söngvarans Bigga Hilmars á laginu
„Imagine“ eftir John Lennon hefur
verið gefin út í Bandaríkjunum hjá
fyrirtækinu Pusher Music. Biggi
samdi einnig nýverið tónlist við kynn-
ingarstiklu nýrrar sjónvarpsþátta-
raðar HBO-kapalstöðvarinnar, Olive
Kitteridge, sem Frances McDormand
og Bill Murray leika í ásamt fleiri
þekktum leikurum.
Ljósmynd/María Kjartansdóttir
„Imagine“ í útsetn-
ingu Bigga gefið út
Leikritið The Heart of Robin Hood, í
leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar,
fær fullt hús stiga hjá gagnrýnanda
kanadíska dagblaðsins Winnipeg Free
Press, fimm stjörnur af fimm mögu-
legum. Verkið er sýnt í Royal Mani-
toba Theatre Centre í Manitoba fram
til 6. desember og höfundur þess er
enska leikskáldið David Farr. Í gagn-
rýni Winnipeg Free Press segir m.a.
að heimkynni Hróa hattar séu töfr-
andi staður og að leikstjórn Gísla sé
kraftmikil og hugvitssamleg. Er í því
sambandi nefnd grasi þakin renni-
braut sem leikarar nota til að renna
sér inn í ólík atriði verksins og kaðlar
sem leikarar renna sér á niður á svið-
ið, líkt og e.k. „miðaldasérsveit“.
Rýnir segir sýninguna bráðskemmti-
lega leikhúsupplifun og fulla af
óvæntum uppákomum. Þá fær Börk-
ur Jónsson einnig hrós
fyrir hönnun leik-
myndar sem gagn-
rýnandi líkir við leik-
völl. The Heart of
Robin Hood verður
sett upp í Toronto
skömmu fyrir jól og á
Broadway í New
York í vor.
Hrói í Manitoba fær
fullt hús stiga
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Sunnan og suðaustan 8-13 m/s, en 13-18 á
norðanverðu Snæfellsnesi. Mun hægari vindur vestantil í kvöld.
Þurrt og bjart nyrðra og eystra, annars súld eða dálítil rigning.
VEÐUR
„Ég fékk frábærar móttökur
hjá stelpunum í landsliðinu
svo mér hefur gengið vel að
komast inn í hópinn,“ sagði
Steinunn Hansdóttir, lands-
liðskona í handknattleik.
Hún flutti fjögurra ára til
Danmerkur og kveðst engan
hafa þekkt í landsliðinu áð-
ur en hún mætti á fyrstu
æfingu í vor, eftir óvænt
símtal. Hún er í landsliðs-
hópnum fyrir komandi leiki í
undankeppni HM. »4
Þekkti engan á
fyrstu æfingunni
Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, verð-
ur enn einn Íslendingurinn sem gerist
leikmaður danska félagsins Sönder-
jyskE. „Sönder-
jyskE hefur
haft gríðarlega
góða reynslu af
Íslendingum
og maður
græðir
kannski á
því núna en
ekki þegar
maður mæt-
ir á svæðið.
Þá þarf mað-
ur auðvitað
að standa
sig,“ segir
Baldur sem
samdi við
danska fé-
lagið frá
og með
næstu ára-
mótum.
»2-3
SönderjyskE hefur góða
reynslu af Íslendingum
Vonir íslenska karlalandsliðsins í
handknattleik um að komast „bak-
dyramegin“ á HM í Katar eru orðnar
sáralitlar. Í gær hættu Barein og
Sameinuðu arabísku furstadæmin
við að sniðganga mótið og sóttu um
að fá sæti sín að nýju. Formaður HSÍ
segir nær öruggt að það gangi eftir.
HSÍ leitar enn réttar síns eftir að
Þýskaland fékk sæti Ástralíu. »1
Öllum bakdyrum á HM
í Katar verið læst?
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þetta er virkilega góður brauð-
réttur, þar sem niðursoðnar ferskjur
kallast skemmtilega á við beikon og
skinku,“ segir Jóhannes Ásbjörns-
son um leið og hann sleikir út um á
heimili hjónanna Gerðar Unndórs-
dóttur og Vilhjálms Einarssonar á
Egilsstöðum. „Ekkert sameinar fólk
betur en heitur brauðréttur.“
Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes
eru aftur á leiðinni í loftið. Að undan-
förnu hafa verið tilraunaútsendingar
hjá útvarpsstöðinni K100 á Egils-
stöðum og í gær flugu Simmi og Jói
austur með aðalstykkið í sendinn og
nú er allt tilbúið fyrir fyrstu útsend-
ingu þáttarins Simma og Jóa á föstu-
dagsmorgun. „Þetta er fáránlega
skemmtilegt,“ segir Simmi um
þáttagerðina í útvarpinu. „Það togar
í mann að byrja aftur enda er þetta
ávanabindandi og við söknuðum
þess.“
Jói tekur í sama streng og leggur
áherslu á að þótt yfirskinið hafi verið
að fara með sendinn austur hafi að-
alatriðið verið að koma við hjá Gerði
og Vilhjálmi í Útgarði og smakka
brauðrétt, sem hann hafi reyndar
óskað eftir að fá við komuna. Rétt
eins og hann hafi lagt mikið upp úr
því að Gerður væri fastur liður í út-
varpsþáttunum eins og í fyrri þátt-
um.
Útvarpsþáttur þeirra var áður á
laugardagsmorgnum. Þeir segja
breytinguna viðbrigði. „Aðalatriðið
er að þetta sé létt og aðgengilegt og
svolítið heimilislegt,“ segir Jói.
Á þekktum nótum
Pálmi Guðmundsson, forstöðu-
maður ljósvakamiðla Skjásins, fékk
piltana til þess að snúa aftur í útvarp
en þeir voru áður með vinsælan,
samnefndan þátt á Bylgjunni í fimm
ár. Simmi segir að þeim hafi þótt
hugmyndin fjarstæðukennd í byrjun
en síðan hafi þeir ákveðið að kýla á
þetta.
Þátturinn verður byggður upp á
svipaðan hátt og áður. Hann verður í
loftinu í beinni útsendingu á föstu-
dögum kl. 9-12 og endurfluttur á
sama tíma daginn eftir. Félagarnir
gera upp fréttir vikunnar með sínu
nefi og leika sér að þeim málefnum
sem koma upp hverju sinni. Gerður
Unndórsdóttir verður á sínum stað
og þeir halda áfram að semja nýja
texta við þekkt dægurlög. Atriðið
hver er maðurinn? heldur áfram rétt
eins og söngljóðalesturinn, þar sem
íslenskir dægurmálatextar eru
brotnir til mergjar. „Við höfum líka
þróað með okkur nýja dagskrárliði
sem byggjast á leikgleði,“ segir
Simmi.
Brauðréttur fyrir útsendingu
Simmi og Jói
aftur í loftið og nú
á K100 Skjásins
Ljósmynd/Sigga Lund
Kræsingar Gerður Unndórsdóttir, Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson hvíla sig á milli rétta.
Gerður Unndórsdóttir varð við ósk
Jóhannesar Ásbjörnssonar um að
gefa honum brauðtertu við kom-
una. „Hún er best splunkuný úr
ofninum,“ sagði hún rétt áður en
Sigmar og Jóhannes mættu í Út-
garð í gær.
Þáttur Simma og Jóa á K100
hefst á föstudag. Tíðnisvið K100 í
Reykjavík, á Suðurlandi, Ísafirði og
Egilsstöðum er FM 100.5. Á Ak-
ureyri er tíðnin FM 93.3 og FM
101.5 í Bolungarvík. Gerður sér um
ljóðalesturinn í þættinum enda
lagði Jói áherslu á að sendir yrði
settur upp á Egilsstöðum til þess
að hún gæti hlustað á þáttinn.
„Þetta eru skemmtilegir strákar
og ég er glöð ef þeir geta notað
mig eitthvað,“ segir Gerður, sem
getur samt ekki verið í fyrsta
þættinum. „Ég verð tilbúin í næstu
viku,“ segir hún og að sjálfsögðu
hlæjandi.
Sér um ljóðalesturinn
SENDIRINN SETTUR UPP FYRIR GERÐI UNNDÓRSDÓTTUR
VEÐUR » 8 www.mbl.is
Á fimmtudag Sunnan og suðaustan 5-10 m/s, en 10-15 vestast.
Bjart veður á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil væta með
köflum. Hiti yfirleitt 2 til 8 stig.