Málfríður - 15.10.2008, Page 3
Tímaritið Málfríður stendur og fellur með
þeim kennurum sem gefa sér tíma til að
skrifa í blaðið og sem betur fer eigum við
góða að, bæði þá sem senda reglulega inn
greinar og þá sem bregðast ljúfmannlega
við beiðni um greinarskrif og er þeim hér
með þakkað fyrir þeirra ágæta framlag.
Tungumálakennsla getur verið á marga
vegu, hvort sem það er vegna mismunandi
aðferða, námsefnis eða kennara. Vísast eru
kennsluaðferðir hvers kennara fyrir sig jafn
mismunandi og kennararnir eru margir. Og
sama gildir eflaust um aðrar námsgreinar.
Þessir hópar málakennara, sögukennara,
stærðfræðikennara og svo framvegis hit-
tast ekkert allt of oft nema kannski helst í
tengslum við stærri kennararáðstefnur þar
sem hvert fag er kannski minnst rætt. Þess
vegna er hverju fagi nauðsynlegt að eiga
sér vettvang þar sem þeir sem hafa hug á
að miðla sínum aðferðum, geta komið þeim
á framfæri til þeirra sem vilja læra eða bara
kynnast einhverju öðru hvort sem það er
notað eður ei. Málfríður er vettvangur til að
deila reynslu og skoðunum og við eigum að
vera ófeimin við að segja öðrum kennurum
frá því sem við erum að gera. Því fleiri sem
leggja orð í belg því betra.
Efnisyfirlit
Ritstjórnarrabb . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 3
Elevers metaviden – et stykke aktionsforskning 4
Pétur Rasmussen
Evrópska nýmálasetrið í Graz (ECML) . . . . . . . . 7
Eyjólfur Már Sigurðsson
Learning through blogging: an experience with
business Spanish students at Reykjavík
University . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 8
Pilar Concheiro
Læring og litteratur - kunst og kultur . . . . . . . . . 11
Guðrún Rannveig Stefánsdóttir
Det flyvende tæppe – et levende kulturmøde-
sted på tværs af nationaliteter . . . . . . . . . . . . . . . 13
Kristín Rannveig Vilhjálmsdóttir
Sumarnámskeið frönskukennara í Vichy 2008 . . 16
Eyjólfur Már Sigurðsson
“Some words are simply very difficult”
Sum orð eru einfaldlega mjög erfið . . . . . . . . . . . 17
Anna Jeeves
Málfríður
tímarit Samtaka tungumálakennara,
2. tbl. 2008
Útgefandi:
Samtök tungumálakennara á Íslandi
Ábyrgðarmaður:
Auður Torfadóttir
Ritnefnd:
Ásmundur Guðmundsson
Ása Kristín Jóhannsdóttir
Halla Thorlacius
Sigurður Ingólfsson
Prófarkalestur:
Eygló Eiðsdóttir
Umsjón með netútgáfu:
Guðbjartur Kristófersson
Málfríður á Netinu:
http://malfridur.ismennt.is
Umbrot, prentun og bókband:
Oddi
Póstfang Málfríðar:
Pósthólf 1110
128 Reykjavík
Ritstjórnarrabb
Eftirtalin félög tungumálakennara eiga fulltrúa
í ritstjórn Málfríðar 2008:
Félag dönskukennara:
Ása Kristín Jóhannsdóttir
Borgarholtsskólii
heimasími: 567 5166
netfang: asa@bhs.is
Félag enskukennara:
Halla Thorlacius
Garðaskóla
heimasími: 552 4509
netfang: halla@gardaskoli.is
Félag frönskukennara:
Dr. Sigurður Ingólfsson
Menntaskólanum Egilsstöðum
heimasími: 471 2110
netfang: si@me.is
Félag þýskukennara:
Ásmundur Guðmundsson
Menntaskólanum í Reykjavík
heimasími: 555 1075
netfang: asmgud@mr.is