Málfríður - 15.10.2008, Síða 7
MÁLFRÍÐUR
Evrópska nýmálasetrið (European Centre for
Modern Languages/Centre Européen de Langues
Vivantes) er stofnun á vegum Evrópuráðsins. Setrið
er í Graz í Austurríki og hlutverk þess er að
styðja við tungumálanám og -kennslu í Evrópu,
m. a. með því að útfæra og kynna þau gögn sem
Evrópuráðið hefur þróað á þessu sviði, s. s. sam-
evrópska tungumálarammann (CEFR) og evrópsku
tungumálamöppuna (ELP). Í því augnamiði styrkir
setrið verkefni sem leidd eru af hópum sérfræðinga.
Vinnustofur fyrir tungumálakennara eru haldnar í
tengslum við þessi verkefni og gefst hverju aðildar-
ríki kostur á að senda einn þátttakanda hverju sinni.
Ísland hefur tekið þátt í þessu samstarfi frá árinu
1998 og hafa fjölmargir íslenskir tungumálakenn-
arar notið góðs af því.
Aðildarlönd Evrópska nýmálasetursins eru nú
33 og er stjórn setursins skipuð einum fulltrúa frá
hverju landi. Stjórnin kýs sér formann og sérstaka
framkvæmdastjórn (bureau) sem skipuð er sex
fulltrúum úr stjórn auk stjórnarformanns. Í hverju
aðildarlandi eru svo sérstakir tengiliðir sem veita
upplýsingar um nýmálasetrið og sjá um dreifingu
á útgáfuverkum þess og niðurstöðum verkefna.
Frá 1998 sat María Gunnlaugsdóttir, sérfræðingur
hjá menntamálaráðuneytinu, í stjórn setursins en
undirritaður tók sæti hennar á síðasta ári. Tengiliður
á Íslandi er Ragnhildur Zoëga á Alþjóðaskrifstofu
háskólastigsins. Þau hafa séð um að útnefna aðila
hér á landi til þátttöku í vinnustofum setursins og
frá árinu 1998 hafa um 70 íslenskir tungumála-
kennarar og sérfræðingar farið til Graz á vegum
Evrópska nýmálasetursins.
Evrópska nýmálasetrið hefur verið starfrækt frá
árinu 1995 og voru stofnlöndin átta talsins. Þau
eru nú 33, eins og fyrr segir. Árið 2000 var fyrstu
fjögurra ára áætluninni hrundið af stað þar sem
fjöldi metnaðarfullra verkefna var styrktur og ann-
arri fjögurra ára áætluninni lauk í lok árs 2007 með
glæsilegri ráðstefnu þar sem niðurstöður verkefna
voru kynntar. Þar var einnig kynnt ný áætlun sem
tók gildi í byrjun þessa árs og lýkur árið 2011.
Þessi þriðja áætlun ber yfirskriftina „Stuðningur
við fagfólk á sviði tungumálanáms og -kennslu“
eða „Empowering language professionals“. Þessi
titill undirstrikar þá áherslu sem ENS leggur á nána
samvinnu við tungumálakennara. Til þátttöku voru
valin tuttugu verkefni sem falla undir eftirfarandi
þemu:
• Námsmat (Evaluation)
• Samfellt tungumálanám (Continuity in lang-
uage learning)
• Samþætting tungumálanáms og annarra
kennslugreina (Content and language educa-
tion)
• Fjöltyngisnám (Plurilingual education)
Þess má geta að Sigurborg Jónsdóttir, formaður
STÍL, tekur þátt í að skipuleggja eitt af þessum verk-
efnum sem ber nafnið „Language Associations and
Collaborative Support“ (LACS). Markmið þessa
verkefnis er einmitt að styrkja tengsl tungumála-
kennara við ENS í gegnum fagfélögin.
Eins og fyrr segir gefst íslenskum tungumála-
kennurum kostur á því að taka þátt í þessum verk-
efnum og fara í vinnustofur sem skipulagðar eru í
tengslum við þau.
Nánari upplýsingar um nýju áætlunina og verk-
efni sem falla undir hana má finna á vef ENS: www.
ecml.at og eins geta áhugasamir leitað til undirrit-
aðs: ems@hi.is eða Ragnhildar Zoëga: rz@hi.is.
Eyjólfur Már Sigurðsson
Evrópska nýmálasetrið í Graz (ECML)
Eyjólfur Már Sigurðsson
Tungumálamiðstöð HÍ.
Eyjólfur Már
Sigurðsson