Selfoss - 30.01.2014, Side 12
Vöruval góð
verslun í
alfaraleið
Ný tilboð vikulega
Heimsendingarþjónusta
Opið frá 7:30-19
virka daga og
10-19 um helgar
Borgartúni 7c, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
TIL SÖLUTil leigu
Húsnæðið þarf að fullnægja eftirfarandi kröfum:
1. Vera miðsvæðis og á jarðhæð
2. Umferð að og frá húsnæðinu sé greið
3. Vörumóttaka sé sér og opnist beint út, þó helst ekki
frá sömu hlið og gengið er inn í Vínbúðina
4. Góð aðkoma sé að húsnæðinu fyrir viðskiptavini
og næg bílastæði fyrir þá
5. Lögð er áhersla á gott aðgengi af bílaplani fyrir
hreyfihamlaða og jafnframt þurfa að vera bílastæði
fyrir starfsfólk.
6. Aðkoma að húsnæðinu fyrir flutningabíla og lyftara
með vörur skal vera góð
7. Verslunarrýmið sé sem næst rétthyrnt
(hlutföll rýmisins nálægt 3 á móti 2) og mega súlur,
veggir eða annað ekki hamla yfirsýn um verslunarhluta
húsnæðisins
8. Hljóðdempun í verslun skal tryggja góða hljóðvist og
birtulýsing skal vera 500-600 lux ef loftakerfi og lýsing
er til staðar
9. Góð aðstaða þarf að vera fyrir starfsfólk og allt
aðgengi í húsnæðinu þarf að hæfa vel hreyfihömluðum
10. Húsnæðið verður að fullnægja öllum kröfum sem
opinberar eftirlitsstofnanir og umsagnaraðilar gera til
slíks og vera samþykkt af þeim
11. Leigutími húsnæðisins skal vera allt að 10 árum
Við mat tilboða verður bæði tekið tillit til verðs og
ofangreindra atriða. Áhugasamir skulu senda öll gögn um
það húsnæði sem þeir hyggjast bjóða í lokuðu umslagi til
skrifstofu Ríkiskaupa, Borgatúni 7, 105 Reykjavík fyrir
kl. 15:00, 10. febrúar 2014. Merkt :
15602 – Leiga á húsnæði fyrir vínbúð Á.T.V.R. í Hveragerði
Gögn þurfa meðal annars að innihalda eftirfarandi:
1. Staðsetning
2. Teikningar af húsnæði
3. Afhendingartími
4. Ástand húsnæðis við afhendingu (frágangur lóðar,
veggja, lofta og gólfa í húsnæði)
5. Leiguverð (án vsk.), hvað er innifalið‘ í leigu og hvaða
kostnaður annar kann að falla á leigutaka
6. Fyrirsjáanlegar breytingar sem gætu haft áhrif á
kröfuliði 1- 11 að ofan á leigutímanum
15602 – AUGLÝSING EFTIR HÚSNÆÐI
FYRIR VÍNBÚÐ Í HVERAGERÐI
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins óskar eftir að leigja
150- 200m² húsnæði fyrir Vínbúðina í Hveragerði.
30. janúar 2014
ÚR KÆLISKÁPNUM
Nú er Þorri genginn í garð með tilheyrandi þorramat. Þungum söltuðum, reykt-
um, súrsuðum mat og hákarli. Öllu
skolað niður með þorrabjór og snafsi
– og jólin nýbúin.
Auðvitað er frábært að halda í
þessi gömlu gildi í íslenskum mat-
arsiðum. Mat sem þjóðin lífði á um
aldir – og hún lifði af.
Helgarmaturinn hefur trúlega víða
verið í þyngri kantinum og margir að
upplifa sig þunga og að hafa borðað
mikið.
Ég er því örugglega ekki ein um
að langa í eitthvað annað og léttara.
Það sem gerist oft eftir helgar og
hátíðir er að ýmislegt er í kæliskápn-
um sem þarf að nota. Sérstaklega er
þetta á litlum heimilum því að allar
pakkningar á Íslandi fyrir mat eru
ætlaðar stórfjölskyldum eða mötu-
neytum. Ótrúlegt hvað neytendur
hafa mikla þolinmæði gagnvart þessu
og einnig löngum opnunrtímum
verslana sem fer beint í hækkun á
vöruverði. Það væri gaman að geta
rannsakað hvað neytandi borgar
miklu meira fyrir þessar ákvarðanir
seljanda að selja stórar pakkningar
og langan opnunartíma fyrir utan
ýmislegt annað. Má t.d. nefna vöru
á síðasta söludegi fremst í hillu frekar
en að bjóða hana á afslætti. Nettó er
samt aðeins að bjóða vöru sem er að
renna út á afslætti.
Eftir þorramatinn langaði mig
fyrst og fremst í fisk og keypti
nýja löngu í fiskbúðinni. Langa er
mjög góð í alla fiskrétti – þétt í sér
og bragðgóð. Gallinn er samt sá að
fiskur er alltof dýr vara fyrir flesta.
Aftur að kæliskápnum sem ýmis-
legt geymir.
Ég sneiddi niður og setti á pönnu
með smá olíu.
1 lauk
1 hvítlauksrif
½ rauða papríku
smá bút af engifer
½ bakka af sveppum
(of stórar pakkningar)
Þetta fékk að mýkjast aðeins á
pönnunni. Síðan fann ég til litla
öskju af hvítlauksrjómaosti ( sem lítið
var búið að taka af ) , bita af myglu-
osti frá áramótum, ferskt kóriander
- sem var ekki lengur ferskt (of stórar
kryddpakkningar), reyktan lax sem
var orðinn þreyttur. Þetta var allt
sneitt niður og bætt á pönnuna ásamt
mjólk (sem var líka að renna út).
Rúmlega matskeið af humarkrafti
- kannski meira (smakka það til) og
pipar. Salt má nota eftrir smekk en
það þurfti ekki í þessa sósu.
Þetta fékk að malla aðeins saman.
Síðan fór langan í bitum út í og
soðið í nokkrar mínútur. Sneiddir
tómatar og steinselja yfir áður en
panna fór á borðið. Meðlætið var
soðið sperkilkál.
Þetta er góður matur fyrir þá sem
eru að spara kolvetni. Þeir sem vilja
spara fisk en ekki kolvetni geta notað
þessa sósu sem pastasósu. Þá er pasta
soðið eftir leiðbeiningum á pakka
og bætt út í.
Svo eru þeir sem eru að spara kol-
vetni en hafa mikla löngun í pasta
(hafa ekki efni á að kaupa fisk) þá
er ráðið að skera hvítkál í strimla
og sjóða aðeins í saltvatni. Setja út í
sósuna og ímynda sér að verið sé að
borða flotta pastasósu.
Þetta var bara hugmynd að af-
gangasósu en ég hvet fólk til að kíkja
í kæliskápinn sinn á mánudögum
– það er margt spennandi hægt að
gera eftir naglasúpuhugmyndinni.
Gangi ykkur vel og verði ykkur
að góðu.
Kveðja, KS
12
Að hætti hússins
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is