Selfoss - 23.10.2014, Síða 14
14 23. Október 2014
Brjótum tímans
hörðu hlekki
Fagnaðarefni ljóðaunnenda þessar vikur er ný bók Sveins Yngva Egilssonar um samband
bókmennta og náttúru. Bókin hefst á
náttúrusýn Jónasar, m.a.s. á dagsetn-
ingunni 11. júlí 1841, daginn sem
hafin var för Jónasar upp á fjallið
Skjaldbreið og týndist en sneri aftur
með þessi glaðlegu ljóðmæli:
Heiðarbúar, glöðum gesti
greiðið för um eyðifjöll.
Einn ég treð með hundi og hesti
hraun, – og týnd er lestin öll.
Mjög þarf nú að mörgu að hyggja,
mikið er um dýrðir hér.
Enda skal ég úti liggja,
enginn vættur grandar mér.
Og Jónas heldur velli með sóleyjar
sínar á tölvuöld. Sýslungi hans og
þófti, Þórarinn Eldjárn, sem heim-
sótti okkur nýlega á sjónvarpsskjá-
inn, heilsar vel Jónasi:
Í buxum, vesti, brók og skóm
barnið Jónas úti stóð.
Hlýddi á fugla, horfði á blóm,
Huldu sinni orti ljóð.
Honum fannst það heilög stund,
hugmynd spratt og til hans þaut:
Fífilbrekka gróin grund
grösug hlíð með berjalaut . . .
Fór hann upp á háan hól,
horfði á rjúpu flýja val.
Það var logn og það var sól,
þetta var í Öxnadal.
Fyrsta vetrardag verður efnt
til samkomu í Þjórsárveri eins og
undanfarin ár, sungnir eru textar frá
liðinni öld s.s.:
Gunna stígur jitterbug og Jónki Óla
Skans eða
Draumar þess rætast er gistir Vagla-
skóg.
Einnig munum við hampa textum
heimaskáldanna: Jóa í Stapa, Sigurðar
í Súluholti og Ragnars Böðvarssonar.
Þeir eru nú allir horfnir úr gestahópi
á söngkvöldum. Jói situr andspænis
Glóðafeyki norður í Varmahlíð eftir
langa og góða dvöl með Sunnlending-
um á síðustu áratugum, Ragnar lést í
vor, en vísur hans frá síðustu árum
voru prentaðar í tilefni af samkom-
unni og verða sungnar á söngkvöldinu
í Þjórsárveri lau. 25.okt. Ljóðið Heim-
ferð eftir Ragnar, er hann kallar laus-
lega þýðingu á söngtexta, hefst svo:
Komdu með, komdu með,
brjótum tímans hörðu hlekki.
Komdu með, komdu með
hvort sem gefur eða ekki.
Prýdda víðri breiðu blóma,
okkar byggð ég aftur þekki.
Látum sönginn saman hljóma.
Komdu með, komdu með.
Úr Harð Haus (20)
Ingi Heiðmar Jónsson
þekkirðu bæinn?
Að þessu sinni birtum við mynd
af óþekktum bæ. Ljósmyndari er
Eyjólfur Eyjólfsson, skósmiður í
Bakkárholti. Upplýsingar eru vel
þegnar. Hvaðan er myndin? Hver
er sagan á bak við myndina? Og
aðrar sögur vel þegnar. Vinsam-
legast hafið samband við ritstjóra
í síma 8942098 eða á netfang
torlakur@fotspor.is. Þá má hafa
beint samband við Héraðskjalasafn
Árnesinga á Selfossi.
Safnahelgi
á Suðurlandi
30. október til
2. nóvember 2014
Sjá dagskrá á www.sudurland.is
Opnunarhátíð fimmtud. 30. október kl. 16-18
í Versölum, ráðhúsinu í Þorlákshöfn
Hvítanes í Landeyjum
Í síðasta blaði birtum við mynd af bóndabæ. Það reyndist vera
Hvítanes í Austur- Landeyjum.
Sögufrægur staður. Meðal þeirra sem
höfðu samband var heimafólk - og
minningar kölluðust á. Hér kemur
frásögn þeirra. Kærar þakkir: „Um
vorið 1937 fluttu Jón Tómasson og
Elín Ísaksdóttir ásamt syni, Jóni M.
Jónssyni, þá 17 ára, frá Miðkoti og
keyptu Hvítanes. Sem þá var húsa-
laus eyðijörð. Það eina sem stóð uppi
voru gömul fjárhús með hlöðnum
torfveggjum. Í því bjuggu þau fyrsta
sumarið með fjölskylduna meðan
þau byggðu kjallara að nýju húsi.
Fluttu þau svo í kjallarann um
veturinn og bjuggu þar meðan
efri hæðin var byggð. Grunnflötur
hússins var tæpir 60 fermetrar. Jón
Tómasson og Elín bjuggu alla tíð í
Hvítanesi. Jón, sonur þeirra tók við
búi upp úr 1940 ásamt ásamt konu
sinni, Ástu Helgadóttur frá EY. Í
gamla húsinu fæddust dætur Jóns
og Ástu, fimm talsins og tvö elstu
barnabörnin.
Árið 1966 ákváðu Jón og Ásta að
byggja nýtt hús og steyptu grunn
undir viðbygginguna. Í maí 1967
leystu þau húsnæðisvandamál með-
an nýbyggingin skyldi rísa. Tjökk-
uðu þau upp húsið af grunninum
og drógu það á sverum plönkum
(brautum) suður á tún. Til verksins
var fenginn bíll frá Austurleið. Um
sumarið var byggt af mikilli bjart-
sýni, dugnaði og hjálp góðra sveit-
unga. Flutt var inn í nýja húsið fyrir
jól 1967. Gamla húsið var dregið af
tveimur flutningabílum norður fyrir
bæinn og var það notað sem geymsla
í áratugi. (Þess má geta að jafnræðis
var gætt; flutningabílarnir voru frá
kaupfélögunum báðum í sýslunni).“
Sunnulækjarskóli 10 ára
Áratugur að baki. Á maður að trúa því að
Sunnulækjarskóli á Selfossi eigi í hlut?
Sunnulækjarskóli var settur í fyrsta sinn 23. ágúst 2004. Hugmyndavinnan að baki
var á hendi einstaklinga af ýmsum
sviðum samfélagsins sem mynduðu
samstarfshóp sem vann að undir-
búningi skólabyggingarinnar. Var
ferlið afar lærdómsríkt og skólinn
hannaður með niðurstöðurnar að
leiðarljósi. Húsið teiknuðu Hilmar
Þór Björnsson, Finnur Björgvins-
son og Sigríður Ólafsdóttir. Elísabet
Jóhannsdóttir gaf skólanum nafn,
en efnt var til opinnar samkeppni
um nafn á skólann. Suðurhverfið
á Selfossi er barnmargt. Í vetur eru
nemendur vel á sjötta hundraðið og
þarf að auka kennslurými.
ÞHH
Nemendur undirbúa afmæli skólans.
(Mynd af vef skólans)