Selfoss - 06.11.2014, Blaðsíða 4
4 6. Nóvember 2014
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466,
netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut
54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri:
Þorlákur Helgi Helgason, netfang: torlakur@fotspor.is Myndir: ÞHH og ýmsir aðrir.
Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 9.500 eintök. dreifing: Íslandspóstur
Fríblaðinu er dreiFt í 9.500 eintökum á öll heimili á suðurlandi.
SELFOSS
21. TBL. 3. ÁRGANGUR 2014
Selfoss inn á hvert heimili!
myndin er af Fésbókarsíðu Jarðstrengja.
Samtal náttúrunnar við
sköpunarkraft mannsins
Útilistaverk Halldórs Ásgeirssonar vígt að Borg.
Á Safnahelgi var sérstætt útilistaverk eftir Halldór Ásgeirsson vígt að Borg í
Grímsnesi, en það var unnið fyrir
fyrir Grímsnes og Grafningshrepp
og styrkt af Listskreytingasjóði rík-
isins. Verk eftir Halldór eru einnig
á sýningu í Listasafni Árnesinga í
Hveragerði.
Verkið á Borg samanstendur af
hringlaga flöt sem er í heild tíu metr-
ar í þvermál með hraunsteini fyrir
miðju sem er um það bil tveir metrar
á hæð og breidd. Hraunsteinninn
er fenginn úr námu í Seyðishólum
í næsta nágrenni við Borg. Hluti
hraunsins var logsoðinn á staðnum
og umbreyttist við það í svartgljá-
andi glerung. Fjöldi manns fylgdist
með þegar listamaðurinn mundaði
logsugutækið við vígsluna.
Verkið endurspeglar kulnaðan
jarðeldinn sem umlykur staðinn
þar sem hraunsteinninn er fulltrúi
eldfjallsins og hringlaga stéttin með
máluðu táknunum stendur fyrir
tungumál jarðar. Einskonar sam-
tal náttúrunnar við sköpunarkraft
mannsins.
Börnin í Kerhólaskóla munu fá að
koma með tillögur að heiti á verki
Halldórs og við útskrift skólans í
vor verður það afhjúpað hvaða nafn
listaverkið fær.
ÞHH.
Mynd: Inga Jónsdóttir
Nemendur þinga um skólann sinn
Hvað úrbætur vilja nemendur sjá í skólamálunum? Hvað
vilja íbúar að einkenni skólastarf í
Grímsnes og Grafningshreppi? Íbúa-
þing um skólamál verður haldið í Fé-
lagsheimilinu Borg, fimmtudaginn
6. nóvember klukkan 19:30. Fyrr
um daginn verður haldið samskon-
ar þing fyrir nemendur á grunn-
skólaaldri í sveitarfélaginu.
Málefni 9. og 10. bekkjar eru sér-
staklega á dagskrá.
Klýfur land í tvennt
eða nauðsynleg aðgerð
„Erlendir ferðamenn koma ekki til Íslands til að skoða uppbyggða vegi eða há-
spennumöstur,“ segir Árni Finns-
son, formaður Náttúruverndarsam-
taka Íslands um áform Landsnets
og Vegagerðarinnar um að leggja
veg og raflínur um Sprengisand.
Árni telur veg og línu kljúfa landið
í tvennt.
Í fréttatilkynningu Landsnets
segir að mat á umhverfisáhrifum
Sprengisandslínu sé í undirbúningi.
Línunni milli Suður- og Norður-
lands sé ætlað að bæta raforkukerfi
landsins og auka flutningsgetu.
„Núverandi ástand raforkuflutn-
ingskerfisins er óviðunandi og það
mun einungis versna og kostnaður
samfélagsins aukast ef ekki verður á
allra næstu árum ráðist í styrkingu
og frekari uppbyggingu kerfisins,“
segir Guðmundur Ingi Ásmunds-
son, aðstoðarforstjóri Landsnets í
viðtali við RÚV 30. október sl.
Vegagerðin og Landsnet stóðu
sameiginlega að opnu húsi um
matsáætlanirnar í gær (5. nóv-
ember) á Hellu. Gísli Gíslason
verkefnisstjóri umhverfismats
Sprengisandslínu er starfsmaður
Steinsholts sf. á Hellu.
ÞHH
Ef þig langar að smakka
keppnismáltíðina
„Til gamans ætlum við að gefa nokkrum vinum okkar á Face-book tækifæri til að komast
í æfingakvöldverð Kokkalands-
liðsins 10. nóvember. Ef þig langar
að smakka keppnismáltíðina sem
kokkarnir fara með á Heimsmeist-
aramótið í Lúxemborg líkarðu og
deilir myndinni. Þrjú nöfn verða
valin sem hafa möguleika á að
taka gest með sér í þriggja rétta
kvöldverðinn.“
Agnasmáar bækur
í agnarsmáum hillum
Sýningin Álfabækur eftir Gara-son eða Guðlaug Arason er í Listagjá Bókasafns Árborgar á Selfossi. Þetta eru agnarsmáar bæk-ur og rit sem er raðað á heimilis-legan hátt í agnarsmáar bókahillur.