Selfoss - 06.11.2014, Blaðsíða 10
10 6. Nóvember 2014
Að gera garðinn tilbúinn fyrir veturinn
Í hægum takti er veturinn að taka yfir ríki sitt hér sunnanlands. Það er eins og að í honum sé
einhver valkvíði og hann gengur
ekki í það jafn undanfararlaust og á
svæðunum norðan Hvalfjarðar og
Eystrahorns. En það gefur okkur
Sunnlendingum rýmra tóm til að
dytta að öllu og ganga frá garðinum
á hinn besta máta fyrir veturinn, svo
hann komi skaðlaus inn í væntanlegt
vor og vonandi sólríkt sumar þegar
sól hækkar aftur á lofti.
Nú hafa öll lauftré fellt lauf. Lauf-
ið blæs um í görðunum. Safnast oft
fyrir á grasflötunum og í skjólskot-
um við byggingar. Það er um að gera
að raka því saman og setja það til
skjóls ofan á moldina milli runnanna
og fjölæru plantnanna. Ef við óttu-
mst að þaðan fjúki það bara aftur
er hægt að kasta á það nokkrum
skófluslettum af grófum sandi eða
leggja greinakurl yfir. Þá helst það
um kyrrt.
Best er að láta blómabeðin annars
óhreyfð. Hismið af sumarblómun-
um sem kólu burti í haustfrostun-
um kemur í veg fyrir moldrok og í
fjölæru beðunum skýlir sumargróð-
inn plöntunum og ver gegn kalsa og
vætu vetrarins. Ef okkur þykir þetta
fyrirkomulag eitthvað ruslaralegt er
hægur vandi að bæla yfirvöxtinn
nokkuð niður til að hann verði ekki
jafn áberandi. Í sjálfu sér er svo ekk-
ert að því að láta plönturnar bara
vaxa upp í gegn um þessa ábreiðu á
vorin. Hún verður eðlilega að mold
og næringu og fellur þannig inn í
hina eðlilegu hringrás.
Þeir sem hafa komið sér upp vísi
að ávaxtatrjám, þ.e. epli, perur,
plómur og kirsi, geta hlíft þeim
með því að vefja þær inn í ein-
hverja grisju á veturna meðan þau
eru enn á æskuskeiði og þess vegna
viðkvæmari fyrir vetrarumhleyp-
ingunum. Þetta er fremur einfalt
verk sem felst í því að hafður er
grannur staur eða prik hjá hverri
plöntu. Síðan er taurenningi vafið
eins og sárabindi upp eftir og utan
um trén og staur. Til þessa brúks má
nota hessíanstriga, gamlar flíspeysur
eða flísteppi eða önnur efni sem
ekki draga mjög í sig raka, loftar
um og hægt er að klippa í renninga
sem eru hafðir í hæfilegri breidd,
t.d. 10-12cm. Byrjað er að vefja
neðanfrá, þéttingsfast upp bolinn
og utan um greinarnar. Greinarnar
má taka saman eins varlega og hægt
er og hafa inni í einum vafningi.
Svo er vafið alla leið upp í topp
og allt fest saman með böndum á
nokkrum stöðum eins og þetta væri
rúllupylsa. Þessi aðferð er gamal-
reynd og mun vera komin frá sr.
Sigtryggi á Núpi. Þannig bjó hann
um trén í Skrúð fyrstu veturna og
gafst vel. Þessar umbúðir eru svo
teknar burt að vori þegar birkið er
farið að bruma.
Hægt er að fá sérstaka skýlingar-
dúka í garðyrkjuvöruverslunum.
Þeir eru úr sama efni og gróð-
urdúkarnir sem breiddir eru yfir
gróðurbeð á sumrin, en grænir og
ívið þéttari í sér. Þeim er hægt að
beita á sama hátt með því að vefja
þeim utan um trjágróðurinn. Líka
sígrænan gróður eins og sýprisa og
lyngrósir. En annars er reyndar að-
ferðin sem oftast er notuð þegar
skýla þarf sígrænu plöntunum gegn
vetrarnæðingi, umhleypingum og
síðvetrarsól, sú að slá saman einfaldri
kassagrind með fjórum hornspýtum
sem skorðaðar eru í moldina kring
um plönturnar. Hornspýturnar eru
svo tengdar saman með þverslám
sem negldar eru að ofan og neðan
á hverri hlið. Utan á þetta er svo
festur strigi eða annað tiltækt efni
sem heft er fast á hornunum og efst
og neðst. Þessi skjólgrind þarf að
vera jafnhá eða ögn hærri en plantan
sem henni er ætlað að skýla. Haft
er opið að ofan og nægt rými um-
hverfis plöntuna þannig að snjór
geti runnið niður með henni án þess
að sliga hana eins og farg í tunnu.
En þegar skýla þarf sígrænum
plöntum, t.d. ungum furum eða
grenitrjám, gegn vetrarsól og vor-
þurrki er venjulega nóg að setja
léttar skjólgrindur sólarmegin við
slíkar planteringar. Vetrarsólin er
skæð vegna þess að sígrænn gróður
ljóstillifar og andar á veturna og þarf
að ná upp vatni. En þegar jörð er
freðin eru ræturnar óvirkar og ná
ekki að fylla á vatnskerfið í nægilega
hröðum takti á móti þeirri uppguf-
un sem verður í sólskininu. Þá kem-
ur fram sk. sólbruni eða vetrarbruni
og blöð eða barr verða brún og þar
með ónýt til að gegna hlutverki
sínu. Á skjólgrindurnar má festa
striga eða skjólnet og gjarna raða
þeim upp í zikkzakk-raðir eða gleiða
vinkla svo að þær styði hverja aðra.
Viðkvæmum rósum er best að
skýla með því að hreykja að þeim
moldarbing sem nær nokkuð upp
á neðstu greinarnar. Það er líka gott
að raka að þeim laufi, hálmi eða
einhverju slíku. Einnig má nota
steinullarmottur utan um runnana.
Utan um er svo saumað með striga
eða grisju. Ekki er hreyft við þessari
skýlingu fyrr en vel er farið að vora
og brumin á runnunum byrjuð að
þrútna. Á þeim tíma er líka venju-
lega komin góð spretta í gras. Gott
að hafa það til viðmiðunar. Um leið
og tekið er utan af rósunum er upp-
lagt að klippa þær til eftir þörfum.
Hér uppi á Íslandi getum við ekki
verið mjög stíf á þeim reglum sem
gilda um rósaklippingar í hlýrri
löndum. Við látum okkur bara
duga að klippa burt kalskemmdir
og kraftlausar greinar.
Alla leirpotta og leirker þarf að
tæma af plöntum og mold. Skola
vel og hvolfa tómum á góðum stað
í vari. Jafnvel þótt uppgefið sé að
slík ílát séu „frostproof“, þá er það
mjög ógild yfirlýsing við íslenskar
aðstæður. Hér á landi skiptast á
frost- og þíðukaflar allan veturinn.
Það er þessum ílátum alveg ofviða.
Þau eru ekki sköpuð fyrir slíka dynti
í veðurfarinu. Sama á eiginlega við
um plastpotta og önnur plastílát
sem notuð eru undir skrautplöntur
í görðum. Það er um að gera að
tæma þau eins og hægt er á haustin
og hafa þau síðan í vari þar til vorar
á ný.
Þetta er nú það helsta sem hugsa
þarf út í varðandi vetrarumbúnað í
görðum. Nú förum við bara að taka
þessu rólega fram í mars!
Sími 560 2044 · info@south.is · www.south.is
Framtíð ferðaþjónustu
á Suðurlandi
- málþing Markaðsstofu Suðurlands
Markaðsstofa Suðurlands stendur fyrir málþingi um ferðaþjónustu
á Suðurlandi og stefnumótun til framtíðar.
Fjallað verður um dreifingu ferðamanna, lengd dvalar á svæðinu sem ásamt hugmyndum
um stefnumótun ferðamála á Suðurlandi til framtíðar. Þátttakendur taka virkan þátt í
umræðum, sem verða nýttar til stefnumótunar um starfsemi og hlutverk Markaðsstofunnar
fyrir ferðaþjónustuaðila á Suðurlandi.
Málþingið fer fram 7. nóvember kl. 13:30 – 16:30 á Icelandair Hótel Vík.
Athugið að málþingið er þátttakendum að kostnaðarlausu
og eru allir hjartanlega velkomnir. Um kvöldið er svo haldin uppskeruhátíð
ferðaþjónustufyrirtækja á Suðurlandi.
Nánari upplýsingar og skráning á netfanginu ragnhildur@south.is eða í síma 560-2044
Markaðsstofa Suðurlands býður ferðaþjónustufyrirtækjum á Suðurlandi
til Uppskeruhátíðar þann 7. nóvember nk. á Icelandair Hótel Vík.
Dagskrá:
· 19:30 – Fordrykkur
· 20:00 – Kvöldverður og skemmtun
Veislustjórn og gamanmál verða í höndum Atla Þórs Albertssonar leikara
Heiðursgestur kvöldsins er ráðherra ferðamála, Ragnheiður Elín Árnadóttir
Jakob Björgvin og Magnús Kjartan munu svo sjá um að spila undir dansi
Happdrætti, söngur og gleði
Hlökkum til að sjá ykkur!
Grænt er vænt
Hafsteinn Hafliðason.
eftir vetur kemur vor - og síðan sumar!