Fréttir - Eyjafréttir - 04.02.1988, Síða 10
□ta
Fimmtudaginn 4. febrúar 1988 — FRÉTTIR
2. deildkvenna:
Mikilvægir
leikir um
helgina
Stúlkurnar í ÍBV leggja
land undir fót um helgina
lcika tvo mjög mikilvæga
leiki í 2. deildinni, og ef
úrslitin verða hagstæð,
skýrast línurnar verulega I
deildinni.
Á laugardaginn leika
stúlkurnar við Gróttu sem
eru í 3. sæti deildarinnar,
og á sunnudaginn við ÍBK.
2. deild karla:
Selfoss og
ÍBY á laug'
ardaginn
13. umferð í 2. dcildinni
verður um helgina.
ÍBV leggur land undir
fót, og leika á Selfossi.
ÍBV er í efsta sæti með 21
stig en Selfoss í því 8. með
9 stig en einum leik færra.
Þórarar:
Margar
hendur vinna
létt verk!
Vegna þess hve vel hefur
géngið við framkvæmdir
við nýja félagsheimilið
okkar, bendir flest til þess
að það verði opnað seinni
partinn í febrúar.
Okkur vantar sjálfboða-
liða í vinnu n.k. laugardag I
kl. 10.
Þórarar! Mætum vel og I
munið að margar hendur |
vinna létt verk.
Bygginganefnd I
Handbolti:
Fimm Eyjapeyjar valdir til
æfinga með drengj alandsliðinu
Helgi Bragason
Guðfinnur Kristmannsson Björgvin Þór Rúnarsson Sigurður Ingi Ingason JónLogason
Fimm strákar úr 3. flokki
i»órs og Týs, hafa verið valdir
til æfinga með drengjalandsliði
íslands, skipað lcikmönnum 16
ára og yngri.
Piltarnir heita Helgi Braga-
son, Jón Logason og Björgvin
Þór Rúnarsson frá Þór, og
Guðfinnur Kristmannsson og
Sigurður Ingi Ingason frá Tý.
í hópnum sem búið er að
velja eru 22 leikmenn, en þeim
verður fækkað fljótlega í 16.
Þá hefst undirbúningur af full-
um krafti fyrir mót sem fer
fram í Belgíu um páskana.
Piltarnir verða á landsliðs-
æfingum í Reykjavík um helg-
ina.
Sigmar Þrostur
íþróttamaður
ársins í Garðabæ
Eyjamaðurinn, Sigmar
Þröstur Óskarsson var um
síðustu helgi, valinn íþrótta-
maður ársins 1987 í Garða-
bæ. Sigmar, sem er mark-
vörður, hefur s.l. tvö ár leik-
ið með handknattleiksliði
Stjörnunnar, og varð m.a.
bikarmeistari með liðinu s.l.
vor.
Sigmar Þröstur er 26 ára.
fæddur og uppalinn í Eyj-
um. Hann lék lengst af með
Þór en hefur einnig leikið
með Fram og KA. Hann á
einnig að baki 4 A-lands-
leiki, 15 leiki með landslið-
inu U-21 og 6 leiki með
landsliðinu U-18.
Þess má einnig geta að
Sigmar Þröstur var kjörinn
íþróttamaður Vestmanna-
eyja árið 1981.
9 Sigmar Þröstur Óskars-
son.
Golfklúbbur Vm.50 ára:
Stórt afmælisrit
í burðarliðnum
Golfklúbbur Vestmannaeyja
verður 50 ára á þessu ári og
meðal þess sem gert verður að
því tilefni, er útgáfa myndar-
legs afmælisblaðs.
Bergur Sigmundsson for-
maður klúbbsins sagði að út-
gáfa blaðsins væri bara brot af
því sem til stæði að gera vegna
Hermann sigraði
afmælismót NOVU
— Var einnig með hæsta skorið.
Hermann Þorvaldsson sigr-
aði á Afmælismóti billjardstof-
unnar NOVU í ballskák, um
síðustu helgi. Góð þátttaka var
I mótinu, eða 18 keppendur, og
var þeim skipt niður í þrjá riðla.
Tveir efstu menn komust
áfram í úrslitakeppnina. Her-
mann sigraði eins og áður
sagði, og náði einnig besta
skorinu, eða 31. Ósvald Guð-
jónsson hafnaði í 2. sæti og
Úraníus Ingi í 3. sæti.
þessara merku tímamóta.
Raunar einkenndist starfsárið
Knattspyrna:
af afmælinu, en á þessum
mótum, væri nauðsynlegt fyrir
afmælisbarnið að líta til baka
og þar kæmi blaðið til sögunn-
ar, ætlunin er að skrá þar sögu
klúbbsins í máli og myndum.
Bergur sagðist heita á alla
golfara, unga sem aldna að láta
þeim í té gamla muni sem
tengjast golfinu, frásagnir,
myndir, það er sama hvað er,
allt getur komið að gagni.
Golfarar, bregðið nú skjótt
við og hringið í Týssa í síma
1276, því fyrr því betra.
Lúðvík
i Leiftur
ÍBV hefur orðið fyrir enn
einu áfallinu. Lúðvík Berg-
vinsson, miðjumaðurinn
sterki, hefur ákveðið að
ganga til liðs við 1. deildarlið
Leifturs frá Ólafsfirði.
Lúðvfk staðfesti þetta í
samtali við FRÉTTIR í gær.
Annars vildi hann lítið tjá
sig um þetta, sagði að ekki
væri enn búið að skrifa undir
en það yrði væntanlega gert
mjög fljótlega.
TIPR
Þeir félagar og fóstbræður, Elias Frið-
riksson og Björn Elíasson (ekki feðgar)
skildu jafnir í síðustu umferð tippsins.
Þeir verða því að kljást að nýju.
121. leikviku islenskra getrauna reynd-
ust3með12réttaogfenguhverumsig
213.725 kr. Meðal þeirra var bóndi úr \
Skagafirðinum, annar úr Reykjavik og
sá þriðji hafði skilað nafnlausum miða
til Getrauna í Laugardalnum.
Kíkjumátippið:
ELIAS FRIÐRIKSSON:
Liverpool-West Ham............... 1
Norwich-Watford.................. 1
Nottingham Forest-Chelsea....... 1
Portsmouth-Derby .................X \
Q.P.R.-Charlton.................. 1
Wimbledon-Newcastle...............X \
Biackburn-Man. City.............. 1
C. Palace-Birmingham............. 1
Leeds-lpswich ....................X |
Millwall-Bradford................ 1
Plymouth-Barnsley.................XI
Swindon-Middlesbro..............2
Björn hefur greinilega látið hendur
standa fram úr ermum um siðustu \
helgi og hrist fram úr erminni einhvern
töfratening. Hann er SEIGUR strákur-
inn i orðsins fyllstu merkingu. Annars
er lítið varið í seðilinn að þessu sinni,
ekkertnema2. deildarleikir.
BJÖRN ELÍASSON:
Liverpool-West Ham.............. 1 I
Norwich-Watford................. 1 \
Nottingham Forest-Chelsea...... 1 \
Portsmouth-Derby ................X \
Q.P.R.-Chariton................. 1
Wimbledon-Newcastle.............. 1'
Blackbum-Man. City...............X \
C. Palace-Birmingham............ 1
Leeds-lpswich ...................2
Millwall-Bradfordi. ‘i.......... 1
Plymouth-Barnslby................X j
Swindon-Middlesbro...............2
Ég hugsa að Elli hafi hætt við að fara út
til Sviþjóðarþegarhann fékkþá flugu i
höfuðið að hann ætti séns i mig i
tippinu. Þetta var nokkuð gott hjá
honumsíðast. Hann var búinn að liggja
yfir skruddunum í heila viku áður en
hann tippaði, en ég afgreiddi þetta á
tveim mínútum.
ÍÞRÓTTIR — ÍÞRÓTTIR — ÍÞRÓTTIR— ÍÞRÓTTIR — ÍÞRÓTTIR — ÍÞRÓTTIR — ÍÞRÓTTIR —