Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Blaðsíða 11
Pimmtudagurmn I7>nóvember 1994
70 ÁRA VERSLUNARAFMÆLI ElNARS SlGURÐSSONAR
íii
Sjötíu ára
verslunarafmæli
Einars Sigurðssonar:
Saga
athafna-
skálds
-sem alltaf var skrefi
á undan sinni samtíð.
Á sunnudaginn, þann 20.
nóvember eru 70 ár frá
því Einar Sigurðsson hóf
verslunarrekstur í Vest-
mannaeyjum. Þetta var
árið 1924 en þá um vorið
hafði Einar útskrifast frá
Verslunarskólanum.
Einar, sem þá var aðeins
18 ára gamall, opnaði sína
fyrstu verslun, Boston
sem stóð við Heimatorg.
Einar byrjaði smátt en
áður en yflr lauk rak hann
átta verslanir vítt og breitt
í bænum. Einar byggði
Vöruhúsið og rak þar
fimm verslanir eða deildir
og var hann þá stærsti
kaupmaðurinn í Vest-
mannaeyjum. Sjálfur
miðar Einar upphaf at-
vinnurekstrar síns við 20.
nóvember. Það kom að því
að verslunin nægði ekki til
að svala athafnaþrá hans
og eftir að hafa flutt út
ferskan físk og gert til-
raunir með að frysta fisk
stofnar hann Hraðfrysti-
stöðina 16. febrúar árið
1938. Þar með hefst annar
kafli í athafnasögu Einars
sem átti eftir að hafa mikil
og jákvæð áhrif í Vest-
mannaeyjum. Var
Hraðfrystistöðin, sem rak
fiskvinnslu, útgerð og
loðnubræðslu, eitt stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki
landsins á sínum tíma.
Einar Sigurðsson kom
víðar við á ævinni. Hann
var einn þeirra sem hafði
forgöngu um stofnun
Sölumiðstöðvar hrað-
frystihúsanna og
fyrirtækja tengdum henni.
Var hann m.a. formaður
stjórnar SH um tíma.
Það sem einkenndi öll
störf Einars var að hann
var yfirleitt einu til
tveimur skrefum á undan
sinni samtíð. Sé hægt að
tala um athafnaskáld á
það við um Einar Sigurðs-
son, sem fékk viðurnefnið
ríki. Einar ríki markaði
djúp spor í framfarasögu
Vestmannaeyja og
landsins alls og gætir
þeirra víða enn þann dag í
dag. Einar byrjaði með
500 krónur þegar hann
opnaði verslun sína en
sennilega hefur verðmæti
fyrirtækja hans verið
metið í milljörðum þegar
veldi hans stóð sem hæst.
*
I blaðinu í dag er stiklað á
stóru í ævi Einars Sigurðs-
sonar. Efnið er aðallega
unnið upp úr bókum Þór-
bergs Þórðarsonar, sem
hann skrifaði um ævi
Einars. Einnig er stuðst
við upplýsingar frá
afkomendum Einars.
Ó.G.
Einar Sigurðsson um borð í Sigurði RE 4 en Sigurður er í dag gerður út frá
Vestmannaeyjum og er eitt fengsælasta loðnuskip íslenska flotans.
o.
Einar stundaði búskap í Vestmannaeyjum og hér er hann ásamt
heyskaparfólki sínu.
Vöruhúsið var eitt myndarlegasta verslunarhús landsins þegar
það var byggt. Einar er hér framan við Vöruhúsið við heybíl.
Él
HH
Fyrsti báturinn
Einar, lengsttil hægri um borð
í Sæbjörgu VE, sem var fyrsti
báturinn sem hann eignaðist
en þeir áttu eftir að verða fleiri.