Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Síða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Síða 13
iHWHWWWli rimmtudagurinn IT. nóvember 1994 70 ÁRA VERSLUNARAFMÆLI ElNARS SlGURÐSSONAR Einar Sigurðsson startar FES í fyrsta skipti. FES var loðnubræðsla sem rekin var í tengslum viö Hraðfrystistöðina. Hraðfrystistöð Vest- mannaeyja verður til Ég tel, aö ég hafi byrjað minn at- vinnurekstur 20. nóvember 1924, daginn, sem ég opnaði búóina. Upp á þann dag hef ég haldið síðan sem tímamót í lífi mínu.“ Að kvöldi þessa dags skrifar Einar í dagbók sína: „I gærkvöldi kom Esja með nokkuð af vörunum mínum frá Reykjavík og „Islandið" í morgun með vaminginn frá Skotlandi. Ég hafði ætlað aó opna í morgun á venjulegum búðartíma, en gat það ekki, því að ég þurfti að komast í bankann til þess að leysa út vörunar, og bankatími hófst ekki fyrr en klukkan ellefu. Ég gat þess vegna ekki byrjað höndlunina fyrr en eftir hádegið. Ég seldi því lítið þann dag.“ Verslunina nefndi Einar Boston eftir fyrsta húsinu sem faðir hans eignaðist í Eyjum. Nafnið virtist hitta í mark því ekki leið á löngu áóur en Einar var kallaður Einar í Boston og loddi það við hann þangað til hann fór að versla í Vömhúsinu, þá var hann kallaður Einar í Vöruhúsinu. Neftóbak í 25 kg. mottum Boston var að mestu matvöruverslun en þar var einnig selt tóbak. Einar hafði á boðstólum skorið neftóbak sem móðurbróðir hans skar en sumir vildu skera sitt tóbak sjálfir. „Rjólið var flutt inn í svokölluðum mottum, og voru 25 kíló í hverri mottu, en hver rjólbiti vó eitt kíló. Vandfýsnir neftóbaksmenn lögóu mikið upp úr því, að rjólið væri ekki farið að þoma. Brugðu þeir ekki ósjaldan nokkmm bitum á vogina til að ganga úr skugga um, hver kynni að vera þyngstur. Rjólbitinn kostaði 9 krónur og 50 aura.“ Þessi meðferð á tóbaki þætti varla við hæfi í dag en þegar Einar Sigurðsson var að byrja sína höndlun þótti þetta sjálfsögð og eðli- leg þjónusta. Af frásögn Einars má ráða að aðrir kaupmenn hafa ekki tekið hann, 18 ára unglinginn, alvarlega. Gísli J. Johnsen sá þó ástæðu til að setja upp feikna stóra auglýsingu framan við búðardymar á Boston. „Þar vom myndir af jólasveinum og mikil upp- talning á alls konar góðgæti, sem fengist hjá Gisla við gjafverði. Ekki var þessi auglýsing sett mér til höfuðs. Það er varla aó Gísli hafi vitað, að ég var til og verslaði í Boston. Og þannig held ég að það hafi verið með fleiri af þessum stór- körlum í Eyjum í þann tíð. Þeir sáu mig ekki, enda var ég þá farinn aó stunda upp á kraft að ganga lotinn í herðum til þess að sýnast sem minnstur.11 Húsaleiga hækkaði úr 60 í 100 krónur eftir fyrsta árið Þegar Einar hafði verslað í eitt ár kom að því að endumýja húsaleigu- samninginn. „Og nú var ekki við annað komandi hjá Stefáni en að húsaleigan hækkaði úr 60 upp í 100 krónur á mánuói. Og ég varð aö gera mér það að góðu. Þetta var mat Stefáns á afkomu forretningarinnar. Hundrað krónur voru ekki lítill peningur í þann tíð, og ekki síst, þegar haft er í huga húsnæðið, sem ég átti þama við að búa. Hundrað krónur mundu vera nálægt hálfum mánaðar- launum verkamanns nú á tímum. Þá var tímakaupið 1 krónaog lOaurar. Það var þó svo, að verslunin óx, Einar Sigurðsson naut hefðbundinnar skólagöngu sem á fyrri hluta aldar- innar var miklu styttri en skólaganga sú sem ungt fólk nýtur í dag. Að loknu námi frá Bamaskólanum hélt hann til Reykjavíkur í Verslunar- skólann. Það hefur ömgglega talist til undantekninga á þessum ámm að fólk utan af landi héldi til náms i Verslunarskólanum enda var það bæði fyrir aukið vömval og að hún varð æ kunnari í bænum. Eg fór að lána í mánaðarreikninga. Það jók veltuna. Þá var samkeppni mjög hörð og einstaka vömr seldar jafnvel við innkaupsverði. Þetta var auðvitað gert til að draga viðskiptamenn að verslun-inni í von um, að þeir keyptu líka i leiðinni fleira, sem álagningin var meiri á.“ Vöruhúsið Greinilega bjó þó meira í stráksa en stórkarlamir reiknuðu með og árið 1926 falast Einar eftir lóð á mótum Vestmannabrautar og Skólavegar. Þar reisti Einar Vöruhúsið sem enn þann dag í dag er eitt myndarlegasta verslunarhús sem reist hefur verið í Vestmannaeyjum. Það tók ein fjögur eöa fimm ár aó byggja Vöruhúsið. „Mönnum sýndist nú sitthvað um þetta tiltæki mitt, nýlega orðinn tví- tugur og aðeins búinn að versla í búðarkytm í hálft þriðja ár. Ég átti ekkert undir mér í bankanum eins og þeir stóm, Gunnar Olafsson og Gísli J. Johnsen eða kaupfélögin Bjarmi, Fram og Drífandi. Ég fékk ekki heldur neina fjárhagsáðstoð viö bygginguna hjá Islandsbanka. I dag- bókinni stendur: „Kristinn Olafsson bæjarstjóri hefur það eftir Gunnari Ólafssyni, að ég sé sjálfsagt ekki mikill kaupmaður." Seinna sagði Gunnar, þegar ég keypti eignir aðalkeppinautar hans, Gísla J. Johnsen: „Nú er Einar orðinn vit- laus.“ „Ástþór Matthíasson telur mig núll sem kaupmann," hef ég fært í dagbókina. Þrátt fyrir þessar hrakspár byrjaði Einar að versla í hluta Vömhússins fyrir jól. „Þetla var á þriðja ári eftir að ég hafði byrjaó í Boston með tvær hendur tómar og vörur, sem komust fyrir í einu kofforti." Einar rak átta verslanir í Eyjum Þegar Vömhúsiö var fullbúið fjórum til fimm ámm síðar er því skipt í deildir eins og seinna varð algengt í verslun. Þetta framtak Eir.ars sýndi framsýni hans og útsjónarsemi. A þeim ámm sem hann stóð í verslunar- rekstri rak hann átta verslanir. Var Vömhúsið þeirra stærst og stóðst það samanburð við hvaða verslun sem var á Islandi á árunum um og eftir 1930. Það kom að því að verslunin nægði ekki til að svala athafnaþrá hans en um þetta tímabil segir hann: „Frá því ég byrjaði í Boston með tvær hendur tómar, var nú komið að því að ég átti myndarlegasta verslunarhúsið í bænum, Vöruhúsið, með fjómm búðum og íbúð yfir og auk þess tvö önnur verslunarhús, sem ég hafði byggt, raunar ekki stór, en á góðum stöðum. Kallaði ég annað Verslunina Vísi og hitt Sjóbúðina. Auk þes_s rak ég verslun í Boston og Viðey. Ég var þannig samtímis með átta búðir eða deildir og var ekki enn farinn að komast í tæri við lána- stofnanir. Ég hafði að vísu fengið smáveðdeildarlán út á Vömhúsið, tvö til þrjú þúsund krónur. Þá fengu menn veðdeildarbréf og urðu sjálfir að koma þeim í veró. Ég varð að selja mín bréf og láta 'rúmlega þriója hlu- tann í afföll. Þetta var þá kallaóur frjáls markaður, en heitir nú svartur," sagði Einar Sigurósson í bók Þórbergs Þóðrarsonar, Fagur fiskur í sjó um lánaviðskipti á þessum ámm. mikill áfangi í lífi Einars þegar hann útskrifaðist. Einar segir reyndar að einkunnir sínar hafi ekki verið til að hrópa húrrra fyrir en útskriftin þótti það mikill viðburóur að móðir hans sá ástæðu til aó fara til Reykjavíkur til að fagna þessum áfanga í lífi hans. Verslunarskólanum var slitið þann 1. maí kl. fjögur og þetta var árið 1924. í Vöruhúsinu hafði Einar Sigurðs- son komið upp vísi að frystihúsi sem upphaflega var byggt til að geynia kjöt. Þarna fer Einar að framleiða ís og í bcinu framhaldi af því fer hann að kaupa fisk, aðal- lega ýsu á vertíðinni, og ísar hann til útflutnings. Þar með var teningunum kastað í annað sinn í lífi Einars Sigurðssonar ríka. Þessi fiskútflutningur, sem byrjaði smátt, varð vísirinn að stórveldi Einars í útgerð og fiskvinnslu sem átti eftir að teygja anga sína víða um land. Á þessum ámm eru menn aó stíga fyrstu skrefin í frystingu á fiski og fylgdist Einar með og tók þátt í því ævintýri sem þá var að hefjast í ís- lenskum sjávarútvegi. Gerði Einar m.a. tilraunir til að senda frystan fisk til Englands, með misjöfnum árangri reyndar en mjór er mikils vísir. Um upphaf Hraðfrystistöðvarinnar segir Einar: „Ég var alltaf að smástækka frystihúsið í Vöruhúsinu. Nú kom að því, að ég tók mín fyrstu lán í útibúi Utvegsbanka Islands í Vestmanna- eyjum. Þaó var 21. október 1936, 6000 krónur. Svo fékk ég annað lán jafnhátt mánuði seinna. Þá voru liðin 12 ár frá því, er ég byrjaði að versla í Boston. Frystihúsið var þá metið með vélum og öllu saman á 66.400 krónur, 14. apríl 1937. Hraðfrystistöö Vestmanneyja var formlega tilkynnt til firmaskrár Vest- mannaeyja 16. febrúar 1938. Ég var einkaeigandi og rak fyrirtækið með ótakmarkaðri persónulegri ábyrgð, og hefur svo verið allt fram á þennan dag, eða í 30 ár.“ Fiskur frystur í fyrsta sinn Um vorið og sumarið kaupir Einar fisk, mest kola, sem hann frysti. „Svo var það vorið 1939, aó fyrir alvöru var farið að flaka og frysta fisk í frystihúsi Vöruhússins, og það var í fyrsta sinn, sem fiskur var flakaður og frystur í Vestmannaeyjum með sama hætti og gert er enn þann dag í dag. Ég hafði, eins og áður segir, heilfryst nokkuð af fiski í ísfiskkarinu pg gert tilraunir meö flakafrystingu. ísfélag Vestmannaeyja og Fiskur og ís byrjuðu ekki að frysta flakaðan fisk fyrr en nokkrum árum seinna.“ Einari var ljóst að ef flökun og frystingu ætti að reka í stórum stíl yrði hann að komast nær sjó og í stærra húsnæði. Fékk hann augastað á Goodthaabseigninni, sem Gísli J. Johnsen hafði átt, en Utvegsbankinn eignaðist eftir að Gísli varð gjald- þrota árið 1930. Einar var þá 33 ára og segist ekki hafa átt mikið undir sér. „Ég var ekki í neinu vinfengi við framámenn í stjómmálum né fjár- málum, þekkti ékkert bankastjórana í Reykjavík, hafði ekki fengið lán hjá Utvegsbankanum, utan þær 12 þúsundir, sem áður gat. Það hafði því lítið reynt á hæfileika mína eða getu til að ávaxta fé, sem mér yrði trúað fyrir. Aform um stórt frystihús Það var svolítið meira en að kaupa þessar eignir á pappírunum, lang- stærsta atvinnufyrirtækis, sem verið hafói í Eyjum. Ég áformaði að koma þama upp myndarlegu frystihúsi. En ég gerði mér ekki grein fyrir því í svipinn, að það hlaut að fylgja í fariö að koma á fót útgerð eigin báta.“ Það varð svo úr að bankinn vildi selja og strax var hafist handa vió uppbyggingu. Gömul hús viku fyrir nýjum. „Allt var nú steypt í hólf og gólf, og þá var kominn myndarlegur frystiklefi, sem tekur 1000 tonn af fiski. Að lokum var svo gerður vinnu- salur á neöri hæðinni, í svonefndu þurrkhúsi, og var það eina nýtanlega húsið af öllum þeim byggingum, sem vom fyrir neðan Strandveg. Hitt voru timburhús. En þau urðu síðar að þoka, eftir því sem byggingu Hrað- frystistöðvarinnar miðaði áfram. Þama var ég með lífi og sál, seint og snemma, og gladdist af að sjá klefa- byggingunni og uppsetningu vélanna miða áfram. Nú var hugurinn ekki lengur við verslunina." segir Einar um það þegar uppbygging Hrað- frystistöðvarinnar við Nausthamars- bryggju hófst. Dugnaðar- og atorkumaður I grein í marshefti sjómannablaðsins Víkings 1940 gleðst Ólafur Lámsson héraðslæknir í Vestmannaeyjum yfir því að starfsemi skuli vera aö hefjast á ný eftir aó Gísli J. Johnsen varð að hætta. „Við Hraðfrystistöðina munu nú vera 50 fastráðnir karlmenn og 50 stúlkur, en auk þeirra vinna þama dagiaunamenn af og til, eftir því sem með þarf. Er augljóst, hversu mikil atvinnubót þetta er fyrir Eyjabúa. Allir Eyjabúar geta glaðst yfir því að kominn er atorku- og dugnaðar- maöur í staða Gísla J. Johnsen: er það Einar Sigurðsson. Atorka hans og dugnaður sýnir sig vel í því hversu rösklega hann hefur gengið fram í því að koma á fót Hraðfrystistöð sinni þama í Edinborgarhúsunum, en miklu hefur þurft að breyta og byggja að nýju til þess að fá haganleg húsa- kynni. Frá 22. desember, en þá skrifaði Einar undir kaupsamninginn, hefur Einar verið þama sístarfandi frá því árla morguns til síðla kvölds, og hefur verkinu miðað svo hratt undir hans eftirliti, að hinn 10. febrúar sl. voru vélar Hraðfrystistöðvarinnar settar í gang í fyrsta skipti, og hófst fiökun og frysting á fiski fjómm dögum síðar eða 14. febrúar. Áfköst við frystingu eru um það bil 50 smá- lestir á sólarhring." Fyrsti báturinn Þessar línur úr grein Ólafs lýsa því vel kraftinum sem Einar Sigurðsson bjó yfir. Þarna var hann að fara inn á nýjar brautir en á honum var ekkert hik að finna. Mikilvægið fyrir byggðarlagió var ómetanlegt og sést best á því að strax vinna rúmlega 100 manns í Hraðfrystistöðinni og þeim átti eftir að fjölga. Ekki síst eftir að Einar hóf útgerð líka. Vorið 1939 kaupir hann sinn fyrsta bát, Sæbjörgu VE 244, sem var gamall 12 tonna bátur og úreltur því bátar sem voru keyptir á þessum tíma vom helmingi stærri. En Einar byrjaði alltaf smátt og útgerðin átti eftir að vaxa. Umhugað um starfsfólkið Einari var mjög umhugað um velferð starfsfólksins og var þar langt á undan sinni samtíð. Hann lét smíða matstofu sem um leið var samkomu- staður starfsfólksins. Þar vom m.a. haldnir tónleikar síðdegis á sunnu- dögum. Ekki lét hann þar við sitja því hann kom upp gufubaði og hand- boltavelli og var starfandi leikfimiflokkur innan fyrirtækisins. Fékk fólk að fara í leikfimi og gufu- bað á fullum launum. Einarkomupp kvöldskóla fyrir starfsfólkið. Þar var kennt móðurmálið, erlend mál og Is- landssaga. Starfaði skólinn einnig í vinnutímanum án skerðingar á kaupi. Síðast en ekki síst var bókasafn í Hraðfrystistöðinni. Á góðviðrisdögum var algengt að starfsfólkinu væri boðið inn í Herjólfsdal eða undir Löngu þar sem slegið var upp veislu og í þrjú skipti bauð Einar í skemmtiferðir upp á land. Þetta segir Einar að hafi mælst vel fyrir. „Ymsum þótti þetta ganga vitfirringu næst, aó stökkva úr húsinu, hálffullu af óunnum fiski, og fara að leika sér. En fólkið kunni að meta þetta.“ Skólagangan

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.