Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Side 14

Fréttir - Eyjafréttir - 17.11.1994, Side 14
 70 ÁRA VERSLUNARAFMÆLI ElNARS SlGURÐSSONAR Rmmtudagunnn 17, nóvember 1994 Störf Einars að útflutnings- málum á fiskafuröum; Forystu- maður í útflutningi sjávarafurða Einar og Svava meö börnum sínum. Aftari röö frá vinstri: Svava, Elísabet, Agúst, Siguröur, Olöf og Guðríður. Fremri röö frá vinstri: Sólveig, Svava og Einar og á milli þeirra er Auður, svo koma Elín og Helga. Einar var cinn helsti forystumaður Islendinga í útflutningi sjávaraf- uröa. Hann var einn frumkvöðla að stofnun Sölumiðstöðvar hrað- frystihúsanna árið 1942. Hann og Elías Þorsteinsson frá Keflavík voru cinkum í forystu fyrir SH fyrstu áratugina ásamt fjöl- mörgum frystihúsamönnum víðs vegar af landinu. Samstarf Einars, Elíasar og Ólafs Wrðarsonar frá Laugabóli í Isafjarðardjúpi var langt og farsælt. Ólafur var for- stjóri Jiikla scm var skipafélag í eigu frystihúsanna og flutti frystan fisk á erlenda markaði. Sölumið- stöðin hóf lljótt markaðssctningu í Bandaríkjunum og réð stjórn SH Jón Gunnarsson verkfræðing til starfa fyrir Coldwater sem var dótturfyrirtæki SH í Banda- ríkjunum. Þessi markaðssókn tókst vel og er Coldwater nú stærsta sölufyrirtæki á frystum fiski í Bandaríkjunum. Uppbygging Sölumiðstöðvarinnar Einar var stjómarformaður Coldwater uni skcið og sat sömuleiðis í stjóm Sölumiðstöðvar- innar, lengst af sem varaformaður. Hann var formaður stjómar SH um tíma. Einar eyddi miklum tíma í þessa uppbyggingu og starf hans fyrir Sölumiðstöóina var mjög mikið. Hann skynjaði það sem eitt mikil- vægasta vcrkcfni Islendinga el'tir stríð að þróa frystiiðnaðinn hratt og ná fót- festu með íslensk fyrirtæki við sölu afurðanna erlendis. SH varð fljótt stærsta útflutningsfyrirtæki ís- lendinga og hefur haldið því sæti æ síðan. Ymis fyrirtæki voru stofnuð í tengslum við SH, t.d. Umbúðamið- stöðin sem framleiddi umbúðir fyrir frystihúsin, Jöklar sem áður var getið um sem flutti fiskinn á erlenda markaöi og Tryggingamiðstöðin sem starfaði sem vátryggingafélag og tryggði bæði afurðir og fiskiskip. Þessi félög eru öll starfandi enn þann dag í dag og em öflug og fjárhagslega mjög sterk. Fyrirtæki Einars voru jafnframt stórir hluthafar í þessum fyrirtækjum en eignaraðild var annars dreifð milli frystihúsanna í þessum fyrirtækjum. Sölumiðstöðin var að hluta til félagsleg hreyfing sem byggði upp atvinnulíf víða um land með samvinnu og einstaklingsfram- taki dugnaðarmanna á hverjum stað. SÍF, LÍÚ og Fiskifélagið Einar var einnig tengdur Sölusam- bandi íslenskra fiskframleiðenda (SIF) og tók virkan þátt í starfi sam- takanna og sat m.a. í stjóm þeirra. SÍF hefur annast útflutning á saltfiski fyrir íslendinga um áratuga skeið. Einar tók þátt í mörgum öðmm fé- lögum innan sjávarútvegsins s.s. LÍÚ og Fiskifélaginu. Alls staðar var hann ásamt öðrum til forystu kallaður. Einar hafði mjög gaman af félags- málum innan atvinnulífsins og hafði auk þess áhuga á stjómmálum. Hann þótti mjög góður ræðumaður, lét hátt rómur á fundum og var rökfastur í deilum. Það var sjaldnast lognmolla í kringum hann hvort sem var í fyrir- tækjarekstri eða félagsmálum. Starfsþrek hans var mjög mikið og hann átti gott með að laða til starfa unga og upprennandi mcnn. Fjöl- margir sjómanna hans urðu ungir skipstjórar og mjög margir þeirra síðar landsþekktir aflamenn. Fjölskylduhagir Einar var tvígiftur. Fyrri kona hans hét Þóra Eyjólfsdóttir. Þau slitu sam- vistum. Þau áttu einn fósturson, Einar Þór Einarsson. Einar kvæntist síðar Svövu Agústsdóttur úr Reykjavík. Þau áttu ellefu böm á 16 árum og komust tíu á legg, átta stúlkur og tveir drengir, en eitt barnið lést í æsku. Böm þeirra hjóna eru Guðríður, hjúkrunarfræðingur, gift Guðfinni Sigurfinnssyni, lækni. Þau eiga tvö böm. Elísabet var annað bam þeirra Einars og Svövu en tvö elstu bömin eru fædd í Vestmannaeyjum. Elísabet er meinatæknir og gift Þorsteini Helgasyni, prófessor, og eiga þau þrjú böm. Sigurður er lögfræðingur og stjómar nú Isfélagi Vestmanna- eyja hf. sem er arftaki Vestmanneyjafyrirtækja Einars. Sigurður er kvæntur Guðbjörgu Matthíasdóttur, kennara, og eiga þau fjögur böm. Agúst er hagfræðingur og er nú prófessor við Háskóla ís- lands. Hann er kvæntur Kolbrúnu Ingólfsdóttur, meinatækni, og eiga þau þrjú böm. Svava er kennari og gift Jóni Skaptasyni kennara við Há- skóla íslands. Þau eiga fjögur böm. Olöf er efnafræðingur og er prófessor í efnafræði við háskóla í Kalifomíu í Bandaríkjunum. Hún er gift David Deamer prófessor við Kalifomíuhá- skóla. Helga er meinatæknir og maður hennar er Davíð Egilson, jarð- fræðingur. Þau eiga fjögur böm. Sólveig er málfræðingur og kennari. Hún er gift Haraldi Hrafnssyni, kenn- ara og húsasmíðamei«tara. Þau eiga tvö böm. Auður er íslenskufræóingur og viðskiptafræðingur. Sambýlis- maður hennar er Ami Erlingsson sjómaður og eiga þau eitt bam. Elín er kennari og er gift Þóri Hrafnssyni, íslenskufræðingi. Þau eiga þrjú böm. Haraldur og Þórir em bræður. Bama- böm Einars og Svövu em nú 26 talsins. Einar lést árið 1977,71 árs að aldri. Hann hafði alltaf verið við hesta- heilsu og var annálað hraustmenni. Það varð landsþekkt þegar hann synti gegnum brimgarðinn fyrir Suðurlandi til aö ná í skip sem var að fara til Eyja. Hann stundaði sund mikið og aðrar líkamsæfingar. I för sinni til Japans og Kína nokkru fyrir andlát sitt veiktist hann illa fyrir hjarta og það dró mátt úr honum og leiddi síðan til dauða hans árið 1977. Kona Einars, Svava, lést ári seinna. Staða fyrirtækjanna í dag Fyrirtæki Einars vom mörg og fjöl- breytileg. Helst þeirra var Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf., sem rak útgerð, fiskvinnslu og loðnu- bræðslu í Vestmannaeyjum. Hraðfrystistöðin í Reykjavík var með fiskvinnslu og útgerð og Isfell var út- gerðarfélag sem m.a. gerði út Sigurð, líklega mesta aflaskip Islendinga. Sigurður, sem heitir í höfuð föður Einars, Sigurðar Sigurfinnssonar hreppstjóra, var smíðaður í Bremerhaven 1960 og var þá ásamt systurskipum stærsti togari ís- lendinga. Skipinu gekk illa fyrstu árin en síðan rættist úr og það var aflahæst allra íslenskra togara ár eftir ár. Síðar var Sigurði breytt í loðnu- skip og reyndist einstaklega vel, var afiahæstur hverja vertíðina á fætur annarri. Sigurður er nú gerður út frá Vestmannaeyjum kominn á fertugs- aldurinn en ennþá eitt besta skip fiotans. Synirnir héldu merkinu á lofti Þegar Einar og Svava voru fallin frá ráku börnin fyrirtækið saman. Sigurður var þá kominn til Vest- mannaeyja og hafði tekið við framkvæmdastjóm fyrirtækisins þar. Agúst kom heim frá námi sama ár og Einar dó og tók við framkvæmda- stjóm í Reykjavík. Fyrirtækin voru rekin í svipuðum farvegi og hafði verið þegar Einar lifði. I Reykjavík æxluðust mál þann- ig að við samruna Bæjarútgerðar Reykjavíkur og Isbjamarins árið 1985 varð til stórt útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtæki í Reykjavík Grandi hf. Arið 1990 var tekin ákvörðun um að samcina rckstur Hraðfrystistöðvar- innar og Granda hf. Sú sameining tókst mjög vel og styrkti fyrirtækið verulega. Grandi er nú eitt allra stærsta sjávarútvegsfyrirtæki iandsins. Ágúst gerðist prófessor við Háskóla íslands um svipað leyti. Sigurður rak Hraðfrystistöö Vest- mannaeyja í óbreyttu formi til 1992. Þá vom Hraðfrystistöðin og Isfélag Vestmannaeyja sameinuð undir nafni Isfélags Vestmannaeyja hf., en það er elsta starfandi fyrirtæki í sjávarút- vegi hérlendis. Þannig má segja að brautryójenda- starf Einars Sigurðssonar í atvinnumálum, einkum í Vestmanna- eyjum beri skýr merki enn í dag. Fyrirtækin em enn starfandi eins og í Vestmannaeyjum eða sem hluti af stærri heild eins og í Reykjavík. Það eru þúsundir Islendinga sem hófu sinn starfsferil í fyrirtækjum Einars og minnast vel þessara miklu umbrotatíma í íslensku þjóðlífi. Einar Sigurðsson var frumkvöðull eða athafnaskáld í margvíslegum skilningi. Þótt 70 ár séu nú liðin síðan 18 ára piltur í Vestmannaeyjum opnaði matvömverslun og 17 ár frá dauða hans þá markaði hann djúp spor og ruddi brautir til hagsbóta fyrir landsmenn alla. Fjöldi fyrirtækja um landið og umsvif þeirra Upphaf starfsemi Einars Sigurðs- sonar var í Vestmannaeyjum og þar var alltaf höfuðstarfsemi fyrirtækja hans. Hann rak samt víða fyrirtæki um landið. Hann stofnaði Hraðfrystistöóina í Reykjavík árið 1942, sem var stað- sett á Grandagarði og varð stórt fyrirtæki, og rak það til dánardags. Hann gerði út nokkra báta frá Reykjavík frá 1950 til 1970. Einar Sigurðsson fiutti til Reykjavíkur árið 1950 en gerði út togarann Sigurð frá Reykjavík frá 1960. Hann rak enn- fremur frystihús í Kefiavík um 20 ára skeið, þar sem gerðir voru út þrír bátar, þegar mest var, og var eitt af stærri frystihúsum þar. Einar rak á tímabili lítið frystihús í Höfnum og rak frystihús og gerði út tvo togara frá Flateyri í nokkur ár. Hann rak í stuttan tíma frystihús á Seyðisfirði. Hann gerði út 14 báta, þegar þeir vom fiestir. Hann átti lengi einn fjórða í Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni hf. í Reykjavík og í lokin einn þriðja af hlutafé félagsins. Félagið rak tvær loðnu- og fiskimjölsverksmiðjur í Reykjavík og gerði út um tíma fjóra togara og síldarflutningaskip og var það eitt af öfiugustu fyrirtækjum í íslenskum sjávarútvegi á milli áranna 1955 og 1980. Hann átti jafnframt hlut í Fiskiðjunni hf. í Kefiavík og var þar stjómarformaður um tíma en það félag rak loðnu- og fiskimjöls- verksmiðju í Kefiavík um 20 ára skeið, sem hætti rekstri upp úr 1980. Gerði félagið á tímabili út fjóra stóra loðnubáta sem voru seldir í framhaldi af því að félagið var lagt niður upp úr 1980. Störf að félagsmálum í Véstmannaeyjum og annars staðar Einar tók mikinn þátt í félagsmálum, fyrst og fremst í Vestmannaeyjum, sem ungur maður. Þar má nefna félagsstörf á vegum íþróttahreyfing- arinnar, sem voru mjög umfangsmikil. Hann var einn af stofnendum félagsins Akóges 1926, tók mikinn þátt í starfi þess og var heiðursfélagi Akóges í Vestmanna- eyjum og Reykjavík, þar sem hann beitti sér mjög mikió fyrir stofnun þess síðamefnda 1942. Hann sat í bæjarstjóm Vestmannaeyja tæplega tvö kjörtímabil fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og sat á Alþingi, sem varaþingmaður Austurlands í nokkur ár. Einar Sigurðsson, Friðfinnur Finnsson, Oddgeirshólum og Jakob Ó. Ólafsson, skrifstofustjóri, á fiugvellinum í Vestmanna- eyjum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.