Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Qupperneq 1
\
R
Leitið ekki langt yfir skammt. Allar byggingavörur á einum stað.
HUSEY
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
VESTMANNAEYINGA
Garðavegi 15- sími 48 1 115 1
^LAMELLA
PARKET
1 1
23. árgangur Vestmannaeyjum, 21. mars 1996 12. tölublað - Verð kr. 130 - Sími: 481-3310 - Myndriti: 481-1293
Vestmannaeyingurinn Logi Jes Kristjánsson kom sá og sigraði á
Innanhússmeitaramóti íslands í sundi. Hann setti tvö íslandsmet og
varð þrefaldur íslandsmeistari. Á myndinni er Sólveig Adolfsdóttir,
formaður ÍBV, að afhenda honum verðlaun.
Bæjarráð á þriðjudaginn:
Samþykkf að stofna
Þróunarfélag Vm
-Starf atvinnu- og ferðamálafulltrúa lagt niður en
forstöðumaður félagsins tekur við hlutverki hans.
Sjálfstæðismenn hafa lagt fram
tillögu að stofnun Þróunarfélags
Vestmannaeyja sem m.a. á að yfir-
taka starf atvinnu- og ferðamála-
fulltrúa. I tillögunni er gert ráð fyrir
að stofnendur félagsins verði Vest-
mannaeyjabær, Rannsóknasetur
HI, Hafnarsjóður og Bæjarveitur
Vestmannaeyja. Gera á samning
um framlag frá Atvinnuþróunar-
sjóði Suðurlands vegna samnings
sjóðsins við Byggðastofnun um at-
vinnuráðgjöf á Suðurlandi. Starf
atvinnu- og ferðamálafulitrúa verð-
ur Iagt niður en forstöðumaður
Þróunarfélagsins mun taka að sér
verkefni hans.
Guðjón Hjörleifsson fylgdi tillögu
um Þróunarfélagið úr hlaði í bæjarráði
á þriðjudaginn. I gögnum með tillög-
unni kemur fram að félaginu er ætlað
að stuðla að jákvæðri þróun atvinnu-
lífs í Vestmannaeyjum með nánu
samstarfi við Rannsóknasetrið, at-
vinnufyrirtæki, einstaklinga og Vest-
mannaeyjabæ. Menn eiga að snúa sér
til félagsins varðandi ráðgjöf og því er
ætlað að leita uppi möguleg tækifæri
sem leitt gætu til fleiri atvinnutæki-
færa í bænum.
I skilgreiningu á þjónustu félagsins
fyrir einstaklinga segir að það skuli
leggja mat á nýjar hugmyndir, afla
upplýsinga og aðstoða við útvegun
(jármagns og ráðgjöf við stofnun og
rekstur fyrirtækja.
Fyrirtækjum verður m.a. boðið upp á
aðstoð við markaðsvinnu, mat á hug-
myndum, upplýsingaleit, gerð
greiðslu- og rekstraráætlana og verk-
efnis- og framleiðslustjómun.
Þróunarfélagið á einnig að vinna að
stefnumörkum í ferðamálum í samráði
við ferðamálahóp sem hagsmuna-
aðilar standa að.
Stofnfé verður í upphafi I milljón
króna, bærinn greiðir 40%, Hafnar-
sjóður, Bæjarveitur og Rannsókna-
setrið 20% hvert. Forstöðumaður
Þróunarfélagsins á einnig að sinna
verkefnum fyrir væntanlegt al-
menningshlutafélag sem bæjarstjórn
samþykkti að koma á stofn sl. haust.
Fulltrúi V-listans í bæjarstjóm sam-
þykkti tillöguna þar sem hún væri í
takt við hugmyndir minnihlutans að
stofna sérstakan atvinnuþróunarsjóð í
Vestmannaeyjum.
„Við ætlum með þessu að fara í
markvissari aðgerðir í atvinnu- og
ferðamálum og koma forstöðumann-
inum nær fyrirtækjum og atvinnu-
lífinu almennt. Og reyna að tengjast
Háskólanum enn meira sem bak-
hjarli.
I gegnum Byggðastofnun fáum við
1,2 milljóna styrk úr Atvinnuþró-
unarsjóði Suðurlands og 250 vinnu-
stundir í viðbót, sent eiga að geta nýst
fyrirtækjum í bænum,“ sagði Guðjón
bæjarstjóri um væntanlegt Þróunar-
félag Vestmannaeyja.
Heildarloðnuafli Eyjaflotans 160.260 tonn:
Sigurður VE ú toppn -
um með 22,000 tonn
Fjórir bátar komnir með yfir 20 þúsund tonn.
Á þriðjudaginn höfðu m'u loðnuskip
frá Vestmannaeyjum landað
160.260 tonnum frá áramótum.
Guðmundur VE var aflahæstur
þeirra með 21.500 tonn. Flotinn er á
veiðum við Snæfellsnes og finnst
sjómönnum, sem rætt var við, orðið
lokalegt. Nánast er búið að afskrifa
vestangöngu, sem oft hefur teygt á
vertíðinni, en þrátt fyrir það vonast
þeir til þess að veiði haldist til
mánaðamóta.
Sigurgeir Sævaldsson er stýrimaður á
Berg VE sem var á leið til Eyja með
fullfermi sem þeir fengu við Malarrif.
Þar hefur flotinn verið að veiðum
undanfama daga og sagði Sigurgeir að
ástand loðnunnar væri orðið hálf loka-
legt. „Meirihluti loðnunnar er
hrygndur en maður vonar að veiði
haldist til mánaðamóta eins og hún
hefur gert undanfarin ár. Brælan hafði
slæm áhrif á loðnunna og það var fyrst
í gær, mánudag, sem veiði var þokka-
leg,“ sagði Sigurgeir.
Vesturgangan svokallaða hefur oft
orðið til þess að lengja loðnuvertíðina
en sjómenn em svartsýnir á að hún láti
sjá sig í ár. Ekkert hefúr frést af loðnu-
göngum úti fyrir Vestfjörðum og
Guðmundur Sveinbjömsson, skipstjóri
á Sighvati Bjamasyni VE, segir að
góð steinbítsveiði fyrir vestan styðji
þetta. „Steinbíturinn tekur ekki línuna
þegar loðnan gengur yfir þannig að allt
bendir til þess að engin ganga komi
vestan að,“ sagði Guðmundur.
Samkvæmt þeim upplýsingum sem
lágu fyrir í gær var Sigurður VE afla-
hæstur Eyjaskipa með 22.000 tonn.
Kap VE var næst með 21.600,
Guðmundur VE var með 21.500, fs-
leifur VE rúm 20.000, Gígja VE
18.800 tonn. Sighvatur Bjamason VE
18.200 tonn, Huginn VE 16.000 tonn,
Gullberg VE 16.000 tonn, Kap VE
21.600 tonn, Heimaey VE 13.700
tonn og Bergur VE 9.800 tonn.
Samtals em þetta 160.260 tonn.
Hver a lottómiðann?
Laugardaginn 2. mars kom vinningur að upphæð kr. 3.896.880 á
lottómiða sem keyptur var í Söluskálanunt í Goðahrauni. Eigandi
ntiðans hefur ekki vitjað vinningsins ennþá.
Bjami Guðmundsson. markaðsstjóri íslenskrar getspár, staðfesti þetta
þegar Fréttir höfðu samband við hann í gær. Miðinn, sem er tíu raða sjálf-
val, var keyptur í Söluskálanunt milli klukkan 5 og 6 föstudaginn 2. mars.
Vinningstölumar vom 6 - 11 - 12 - 31 - 33 og skiptist hann á tvo miða.
Hinn miðinn var seldur í Hafnarfirði og hefur eigandi hans gefið sig fram.
„Eigandi miðans í Vestmannaeyjum hefur aftur á móti ekki enn haft sam-
band við okkur,“ sagði Bjami.
FJOLSKYLDU-
TRYGGING
TRYCCINGA fasteigna-
MIÐSTÖÐIN HF. TRYGGING
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 4813235i
licriólfur h(.
BRUAR BILIÐ
Sínti 481 2800 Fax 481 2991
Vetraraætlun n
Alla vlrka daga
FráEyjum: Kl. 08:15
Frá Þorl.höfn: Kl 12:30
Aukaferð á Föstudögum
Frá Eyjum 15:45
Frá Þorl.höfn 19:00
Sunnudaga:
Frá Eyjum kl. 14::00
Frá Þorlákshöfn kl. 18.00