Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Side 6

Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Side 6
FRÉTTIR Dregið í FIV Dregið hefur verið í happdrætti FÍV sem efnt var til á degi símenntunar 24. febrúar 1996. Vinningsmiði er nr. 21. Handhaft miðans haft samband við Áslaugu Tryggvadóttur náms- ráðgjafa í síma 481 1079. NÁmRunuDim 0G fíUÐLÖND Sunnudaginn 24. mars heldur Sig- rún Helgadóttir líffræðingurerindi í Rannsóknasetri Háskóla íslands og Vestmannaeyjabæjar og hefst það kl. 14:00. í erindinu mun hún íjalla um náttúrufriðun og friðlönd. Sig- rún er með mastersgráðu í „þjóð- garðafræðum” frá Edinborgarhá- skóla. Hún hefur starfað sem land- vörður og starfar nú hjá Náttúru- vemdarráði. 1 erindi sínu mun Sig- rún fjalla um friðlönd, náttúmfrið- un, náttúiuvemd og skilgreiningar á hinum ýmsu hugtökum sem tengj- ast þessu viðamikla og mikilvæga efni. Hún mun einnig ræða um skipulag innan friðlýstra svæða hér- lendis og segja frá tilgangi einstakra friðlýsinga. SPURT&SVAKAÐ: Eiga sfelpurnar eitthvað þrek ettír? SlGBJÖRN ÓSKARSSpN, PJÁLFARI KVENNALIÐS ÍBV: „Já já, ég er nú hræddur um það. Stelpurnar eru í mjög góðu formi og það skiptir engu máli þótt við fáum aðeins þrjá daga til að hvíla okkurfyrir undanúrslitin en Stjarnan heila viku. Það er ekkert skárra að vera í vikusleni í stað þess að demba sér strax í næsta verkefni, sem er auðvitað að slá Stjörnuna út. Við erum eina liðið sem höfum náð stigum af þeim undanfarin misseri og við erum nú á mikilli siglingu." ÍBV sló Víkinga út i æsi- spennandi oddaleik í Eyjum á þriðjudaginn. ÍBV mætir Stjörnunni í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Fyrsti leikurinn fer fram í Garðabæ á laugardaginn en annar leikurinn í Eyjum á mánudaginn kl. 20. Fréttir Fimmtudagur 21. mars 1996 Línuskautafaraldur geisar þessa dagana enda hefur veðurblíðan leikiö við okkur að undanförnu. En það er aldrei of varlega farið því á mánudaginn slasaðist þrennt eftir að hafa farið of geyst á línuskau- tunum. Tveir unglingspiltar hand- leggsbrotnuðu mjög illa og stúlka meiddist nokkuð í andliti. Annan piltinn þurfti að senda til Reykja- víkur í aðgerð en hinn pilturinn, Ivar Ágústsson sem er að verða 15 ára, var í tvo tíma á skurðarborðinu hjá Birni Ivari Karlssyni. Báðar pípur í hægri hönd fóru í sundur og var um opið brot að ræða. Unga fólkið sem er á línuskautunum hef- ur því miður notað göturnar sem sín svæði og er yfirleitt án nokkurra hlífa. Einnig eru dæmi um að verið sé að hanga aftan í bílum á skaut- unum en þá er auðvitað verið að leika sér að dauðanum. I samtali við Fréttir sagði ívar, þar sem hann lá inni á sjúkrahúsinu, að hans fyrsta verk yrði, þegar hann fer aftur á línuskauta eftir nokkra mánuði, að kaupa sér hjálm og hlífar á oln- boga, hné og úlnliði en slíkar hlífar hefðu getað dregið verulega úr meiðsl- um hans og jafnvel komið í veg fyrir handleggsbrotið sem var rétt fyrir neðan úlnlið. Slysið átti sér stað í brekku norðan við Tangann. „Eg var að fara niður brekkuna og að beygja til hægri. Eg var á frekar lítilli ferð og var að bremsa mig af en lenti þá á smá- steini. Eg fór í hring í loftinu og lenti með hægri höndina á rennustein. Höndin var alveg í sundur og beinin stóðu út. Þetta var opið beinbrot. Það voru nokkrir karlar að vinna þama rétt hjá og þeir hlupu til mín og hringdu á sjúkrabíl. Mér leið alveg hræðilega illa,“ sagði Ivar sem enn var sár- kvalinn þegar rætt var við hann í gær og ekki útséð með hvort hann slyppi við aðra aðgerð á hendinni. skautum fyrir tveimur árum og segist vera sá næst besti í Eyjum. „Eg hef ekki mikið meitt mig, bara smá í þumalputta. En það er mjög algengt að krakkar séu að hrufla sig og fá blöðrur á hælana. Það svakalegasta sem ég hef lent í er þegar ég renndi mér niður Helgafellsbraut og alveg niður að Imynd á Strandveginum á fimm mínútum. Auðvitað var ekkert vit í því, svona eftir á. Ég hef líka verið að teika en það er ntjög vinsælt en það er lífshættulegt," segir Ivar og móðir hans tekur heils hugar undir það. Hún bendir á að ekki þurfi nema smá steinvölu til að stórslys geti hlotist af. hvet krakka sem eru að byrja að kaupa sér hlífar og almennilega línuskauta. Þetta er algjört drasl sem er verið að selja í búðunum héma. Fyrstu línuskautamir mínir dugðu bara í einn mánuð. Svo finnst mér að bærinn ætti að skaffa okkur einhverja aðstöðu. Vinsælast er að safnast saman á bflastæðunum aftan við Trygginga- miðstöðina og svo er verið að skauta á götunum sem er líka hættulegt. Það vantar þrautir og eitthvað fjör í þetta. Línu skautar em orðnir mjög vinsælir og það safnast hellingur af unglingum saman á kvöldin til að skauta um bæinn. Ef einhver aðstaða væri til þyrftum við ekki að vera á götunum," sagði ívar að lokum. Datt a linuskautum hlaut oi - Hveturalla til þess að vera vel hlífum búna og með hjálm. Islendingur sjósettur Víkingaskip Gunnars Marels Egg- ertssonar skipasmiðs, var sjósett við Reykjavíkurhöfn sl. laugardag. Borgarstjóri Reykjavíkur, forseti íslands og fleira fyrirfólk var við- statt sjósetningu auk fjölda fólks. Vestmannaeyingar voru þar einnig áberandi enda Gunnar Marel Vestmannaeyingur í húð og hár. Frú Vigdís Finngadóttir, forseti íslands, gaf víkingaskipinu nafnið Islendingur. Að sögn Gunnars Marels er það sama nafnið og á fyrsta og eina víkingaskipinu sem smíðað var hér á landi fyrir um þúsund árum síðan eftir því sem sögur segja. Myndin var tekin á hafnarbakkanum í Reykjavíkur- höfn á iaugardaginn. Gunnar Marel telur að mánaðarvinna í viðbót við bryggjuna fari í að gera skipið klárt til að sigla undir fulium seglum. VOR KYNNING 10% afsláttur af líkams- og förðunarvörum og fleira fallegt. Föstudag kl. 11-19 Laugardag kl. 11-15 Qpev-ið að /ita i'K'ti/

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.