Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Blaðsíða 8
Fréttir
Fimmtudagurinn 21. mars 1996
Auðvitað var
mér kennt wn
-segir Arnaldur Bjarnason, fyrrum bæjarstjóri, um úrslit kosninganna 1990
þegar hann hvarf úr bæjarstjórastólnum eftir ósigur vinstri flokkanna..
í biðröð framan við mat-
salinn íTæknigarði, þarsem
Endurmenntunarstofnun
Háskóla íslands er til húsa,
er kunnuglegt andlit.
Maðurinn hefur sést á fót-
boltaleikjum ÍBV á
fastalandinu undanfarin
sumur en hefur lítið sést í
Vestmannaeyjum síðan
1990. Þarna er kominn
Arnaldur Bjarnason, fyrrum
bæjarstjóri. Hann stundar nú
nám í markaðs- og út-
flutningsmálum hjá
Endurmenntunarstofnun HÍ
en hans aðalstarf er hjá
Framleiðsluráði land-
búnaðarins. Arnaldur var
fyrirferðarmikill á síðum
Frétta þau fjögur ár sem
hann starfaði sem bæjar-
stjóri en síðan höfum við
litlar fréttir haft af honum.
Hér ber vel í veiði og er
Arnaldur strax til í að segja
frá því sem á daga hans
hefur drifið síðan hann flutti
frá Eyjum. Einnig kemur
hann inn á kynni sín af Eyja-
mönnum, vonbrigðum og
sárindum í kjölfar
kosninganna 1990. Reyndar
segist hann hafa séð úrslitin
fyrir og varað við þeim en
engu að síður var honum
kennt um þó enginn vildi
viðurkenna það opinber-
lega.
Ólíkt umhverfi
Amaldur Bjamason réðist til Vest-
mannaeyja sem bæjarstjóri í kjölfar
kosningasigurs vinstri manna í bæjar-
stjórnarkosningunum 1986. Þá unnu
Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og
Framsóknarflokkur sigur á Sjálf-
stæðisflokknum. Arnaldur hafði
kynnst sveitarstjómarmálum áður sem
sveit-arstjóri en í ólíku umhverfí.
Þannig að hann vissi á margan hátt
hvað hann var að fara út í. Amaldur
bauð af sér góðan þokka sem bæjar-
stjóri. Hann leið þó fyrir það að vera
ráðinn pólitískt og að vera aðkomu-
maður. Sjálfstæðismenn litu aldrei á
hann sem sinn bæjarstjóra og svo er
það nú einu sinni svo að menn þurfa
lengri tíma en eitt kjörtímabil til að
sanna sig fyrir Vestmannaeyingum. I
bæjarstjómarkosningunum 1990 kol-
féll meirihluti vinstri manna. -Það var
óverðskuldað, sögðu meirihlutamenn,
ARNALDUR BJARNASON, fyrrum bæjarstjóri: -Þessi úrslit voru í sjálfu sér mjög óverðskulduð
en ég reiknaði alltaf með því að meirihluti vinstri manna félli. Það réði ég af því að Alþýðubandalagið
myndi örugglega tapa öðrum fulltrúa sínum en að Framsókn missti sinn eina fulltrúa kom mér á óvart.
sem urðu engu að síður að bíta í það
súra epli að sjá á eftir völdunum til
sjálfstæðismanna. A vissan hátt má
segja að Amaldur hafi orðið hálf-
gerður blóraböggull. Hann sá á eftir
bæjarstjórastólnum, flutti frá Vest-
mannaeyjum og hefur lítið sést þar
síðan, er í raun týndur og tröllum
gefínn.
Gjörólík sveitarfélög
Amaldur hafði í nokkur ár verið
sveitarstjóri í Mývatnssveit áður en
hann réðist til Eyja. Hann var því á
heimavelli í sveitarstjómarmálum en
ólíkari sveitarfélög er varla hægt að
hugsa sér. Eða eins og hann lýsir því
sjálfur: Friðsæld Mývatnssveitar með
sinn landbúnað og ferðamennsku og
beljandi haf í kringum Eyjar þar sem
lífið er fiskur og aftur fiskur.
„Þetta vom talsverð umskipti en
starfið var svipað. Auðvitað em at-
vinnuvegir þessara tveggja sveitar-
félaga gjörólíkir en alls staðar gilda
sömu reglur og lögmál í sveitarstjóm-
armálum. Það vom líka umskipti að
fara úr víðáttu Mývatnssveitar til
Vestmannaeyja þar sem allt er á
einum og sama punktinum. Þegar það
kom til lals að fjölskyldan flytti til
Eyja hafði ég minnstar áhyggjur af
sjálfum mér, það var frekar að ég
hefði áhyggjur af eiginkonunni en
hvorugt okkar varð fyrir von-
brigðum,” sagði Amaldur um fyrstu
kynni sín af Vestmannaeyjum og
Eyjamönnum. „Okkur líkaði dvölin
það vel að við höfum síðan horfit á það
með mikilli eftirsjá hafa ekki haldið
áfram búsem þar,” bætti hann við.
Hörð pólitík á báðum
stöðum en ólík
Þeir sem fylgjast með fréttum vita að
pólitíkin er hörð í Mývatnssveitinni og
er slagur í skólamálum nýjasta dæmið
um það. En það er líka tekist á í bæjar-
pólitfkinni í Eyjum þannig að harka í
pólitík kom Amaldi ekki á óvart. „I
Vestmannaeyjum er tekist á eftir
flokkspólitískum línum en í Mývatns-
sveitinni ráða átök milli byggðarlaga
ferðinni. Er það oft miklu erfiðara. I
flokkapólitíkinni gilda óskráðar reglur
sem allir virða og átökin era meira á
yfirborðinu. Eins og ég kynntist þessu
í Vestmannaeyjum bára allir bæjar-
fulltrúar fyrst og fremst hag bæjar-
félagsins fyrir bijósti þó oft gustaði
hressilega.”
Eyjamenn kröfuharðir
Þegar Amaldur kom til Vestmanna-
eyja var að ljúka þeim kafla í sögunni
sem hófst með Heimaeyjargosinu
1973. Uppgjöri við Viðlagasjóð var
lokið. Var komið að því að bærinn
yrði að standa á eigin fótum. Grettis-
taki hafði verið lyft í uppbyggingu
bæjarins en margt var enn ógert.