Fréttir - Eyjafréttir - 21.03.1996, Síða 9
Fimmtudagurinn 21. mars 1996
„Vissulega höfðu ýmsar framkvæmdir
dregist aftur úr vegna gossins en það
var eins og Vestmannaeyingar vildu
gleyma því. Þeir voru mjög kröfu-
harðir á alla þjónustu en í því kom líka
fram stolt þeirra til að gera betur en
aðrir á öllum sviðum.”
Gatnakerfið var enn lélegt og ýmis-
legt, sem fólki finnst nú sjálfsagt að
samfélagið sjái um, hafði dregist aftur
úr. Amaldur sá því fram á mörg stór
verkefni þegar hann kom til starfa.
Hann leit á þetta sem eðlilegar af-
leiðingar gossins. Hann segir þó að
bæjarfulltrúamir hafi ekki verið á
sama máli og það var þeirra að taka
ákvarðanir. „Menn vom óhræddir við
að ráðast í framkvæmdir og það
stundum umfram getu bæjarfélagsins
en dæmið virðist hafa gengið upp.
Gleðst ég yfir því sem ég heyri, að
bæjarsjóður standi vel í dag. Þannig að
hann virðist hafa ráðið við fram-
kvæmdir á þessum tíma og þeim sem
komu seinna.”
Stoltastur af
orkusamningnum
Þegar Amaldur var spurður að því
hverju hann væri stoltastur af frá
bæjarstjóraárum sínum í Eyjum stóð
ekki á svarinu. „Það var lausnin sem
fékkst á veitumálum bæjarins. Þetta
var stór áfangi sem bæjarfélagið býr
að enn þann dag í dag og mun gera
um langa framtíð. Nú búa Eyjamenn
við öryggi í orkumálum. Orkuverð
hefur lækkað umtalsvert frá þessum
tíma og á enn eftir að lækka. Þama var
um flókna lausn að ræða sem náðist
með samstöðu allra flokka í bæjar-
stjóm. Er mér ljúft að minnast
samstarfsins við Eirík Bogason, veitu-
stjóra, og veitustjóm alla í þessu máli.”
Trúði ekki á sigur
vinstri manna
Þegar kom að kosningunum 1990 var
ekki annað að sjá en að vinstri
flokkamir héldu meirihluta sínum í
bæjarstjóm Vestmannaeyja. Alla vega
töldu bæjarfulltrúar meirihlutaflokk-
anna sig hafa sterka málefnastöðu og
bentu á miklar framkvæmdir á kjör-
tímabilinu því til staðfestingar.
Amaldur segist ekki hafa verið sömu
skoðunar þegar kom að kosningunum
sem voru afhroð fyrir vinstri menn.
Alþýðuflokkur hélt sínum tveimur
bæjarfulltrúum, Alþýðubandalagið
tapaði öðram manni sínum en Fram-
sókn þurrkaðist út út bæjarstjóm. A
rústum meirihlutans hreyktu sjálf-
stæðismenn sér af sex bæjarfulltrúum
af níu en þeir höfðu fjóra áður.
Það þarf alltaf
að finna sökudólg
Amaldur segist ekki gera sér grein
fyrir hvað brást. „Þessi úrslit vom í
sjálfu sér mjög óverðskulduð en ég
reiknaði alltaf með því að meirihluti
vinstri manna félli. Það réði ég af því
að Alþýðubandalagið myndi ömgg-
lega tapa öðmm fulltrúa sínum en að
Framsókn missti sinn eina fulltrúa
kom mér á óvart. En þar réðu mestu
innbyrðisátök í þeirra röðum og
skortur á samstöðu, held ég þó ég hafi
ekki verið kunnugur innviðum Fram-
sóknarfélagsins í Vestmannaeyjum.”
En hveijum var um að kenna hvemig
fór?
„Ömgglega var mér kennt um að
einhverju leyti. Það þarf alltaf
einhvem sökudólg en í dag verð ég
ekki var við það í viðmóti þessara
fyrmm samherja minna eða
Vestmannaeyinga almennt. Sjálfur
varð ég ekki sár en vonbrigðin vom
mikil. Þetta em nú einu sinni leik-
reglumar í pólitíkinni. Þegar ráðið er
pólitískt verður maður að gera ráð
fyrir þessu og hlíta úrslitum þegar þau
liggja fýrir,” sagði Amaldur og er ekki
annað að sjá en að þama fylgi hugur
máli.
Fréttir
Örugglega var mér
kennt um að einhverju
leytí. Það þarf alltaf
einhvern sökudólg en í
dagverðég ekkivarvið
það í viðmóti þessara
fyrrum samherja minna
eða Vestmannaeyinga
almennt. Sjálfur varð ég
ekki sár en vonbrigðin
voru mikil.
Hver var vilji
sjálfstæðismanna?
Eftir kosningamar heyrðust raddir um
það í Eyjum að sigurvegarar kosn-
inganna, sjálfstæðismenn hefðu
augastað á Amaldi sem bæjarstjóra.
Þegar þetta er borið undir Arnald
segir hann að þessi orðrómur hafi
borist sér til eyma. „I hreinskilni sagt
þá átti ég ekki von á því og sá ekki að
það gæti gengið. En þegar ég heyrði
þennan orðróm vildi ég kanna hvort
eitthvað væri hæft í honum. Ég hef
aldrei fengið óyggjandi svar við þvf
hvort eitthvað var til í þessu eða ekki.
En mér fannst þetta bera vott um að
störf mín hefðu verið vel metin og
hefðu unnið bænum gagn. Það skiptir
í raun mestu máli þegar öllu er á
botninn hvolft,“ segir." Amaldur.
Þegar Amaldur er beðinn um að
nefna eftirminnilega menn frá Vest-
mannaeyjum segir hann marga koma
upp í hugann. „Enda em Vestmanna-
eyingar um margt sérstakt fólk en af
samstarfsmönnum mínum vil ég nefna
Sigga Vídó sem þá var hafnarstjóri.
Mér þykir sérstaklega vænt um hann.
Við áttum gott samstarf og milli okkar
þróaðist góð vinátta.
Ég vil lflca nefna Sigga Reim sem
alltaf er jafn hreinn og beinn. Hann
vildi alltaf ræða við bæjarstjóra sinn
um þau mál sem honum lágu á hjarta
þegar leiðir okkar lágu saman. Ég gæti
nefnt marga fleiri.“
Sárindi
Vorið 1990 stóð Amaldur uppi í
atvinnuleit og æxluðust málin þannig
að hann flutti aftur upp á fastalandið.
„ Því fylgdi ákveðið umrót og átök
og alltaf fylgja því ákveðnir erfiðleikar
að koma sér fyrir á nýjum stað. En
bömin okkar vom búsett á höfuð-
borgarsvæðinu og þau toguðu í okkur.
Ég réðist í tímabundið verkefni hjá
Stéttarsambandi bænda. Það snerist
um atvinnuþróun til sveita og þar taldi
ég mig eiga möguleika á að geta látið
gott af mér leiða. Þetta var erfitt í
byrjun enda bændafólk vart farið að
skynja þörfina á hliðartekjum og auka-
búskap. Tómleikinn sem ég mætti í
fyrstu gagnvart nauðsynlegum breyt-
ingum breyttist mikið á þessum
tæplega fjómm árum sem ég starfaði
við þetta. Eftir á finn ég að starf mitt
hefur orðið til vemlegs gagns og
hugarfarsbreytingar,” sagði Amaldur
sem í framhaldi af þessu verkefni
réðist til Framleiðsluráðs land-
búnaðarins.
/ námi með starfinu
Þar vinnur hann að því að kanna áhrif
alþjóðaviðskiptasamninga á land-
búnaðinn en það hefur þróast upp í
könnun á verðmyndun landbúnaðar-
vara. „Þetta er bæði skemmtilegt og
kreíjandi starf þar sem verið er að þróa
aðferðir til að að fylgjast með verð-
13
myndun landbúnaðarvara. Þannig að
hægt verði að finna út hvað hver ber
úr býtum, bóndinn, framleiðandinn,
heildsalinn og smásalinn. Þar hef ég
m.a. átt mjög merkilegt samstarf við
Neytendasamtökin um verðkannanir á
smásölu- stiginu," segir Amaldur.
Meðfram starfi sínu hefur hann aflað
sér menntunar hjá Endurmenntunar-
stofnun HI. Lætur hann það ekki aftra
sér þó hann sé kominn á sextugs-
aldurinn. „Ég stunda námið með
vinnunni þannig að ég hef nóg að gera
og stundum of mikið. Fyrst nam ég
rekstrar- og viðskiptafræði. Það tók
þrjár annir og nú er ég á námskeiði í
markaðs- og útflutningsfræðum.”
Hugurinn leitar oft til
Vestmannaeyja
Hugur Arnalds og konu hans, Jónínu
Björgvinsdóttur, leitar oft til Eyja og
þau fylgist með í gegnum vini og
kunningja auk þess sem þau lesa
Fréttir í hverri viku og eru félagar í
ÁTVR. „Við höfum ekki oft komið til
Eyja síðustu sex árin en ferðum
þangað á ömgglega eftir að fjölga í
framtíðinni því sonur okkar, Björgvin,
og unnusta hans hafa ákveðið að
setjast þar að,” sagði Amaldur sem
ekki hafði meiri tíma í spjall. Um
kvöldið átti af að vera árshátíð og sem
einn af skemmtikröftum samkom-
unnar hafði hann í mörg hom að líta.
Eyjamenn hafa mátt horfa á eftir
mörgum góðum manninum upp á
fastalandið á undanfömum ámm.
Auðvitað kemur maður í manns stað
en allir skilja þeir eftir sig skarð.
Misjafnlega stór, en það er skaði fyrir
bæjarfélagið að menn skuli ekki leita
fyrir sér á öðrum vettvangi í bænum
þegar breyting verður á högum þeirra.
Þetta kom m.a. upp í huga
blaðamanns þegar hann horfði á eftir
Amaldi. -Það er eftirsjá í honum.
UNSAN
Gleraugnaþjónusta LINSUNNAR verður í
snyrtivöruverslvuiinni NINJU verður í dag
og á morgun firá kl. 10:00 - 18:00.
Heiðar Jónsson aðstoðar við val á
umgjörðum á morgun, föstudag
Góð gleraugu - Gott verð
Nýtt frá Alain Mikli, Ferré og Blue Bay.