Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.1997, Qupperneq 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 30. október 1997
Náttúrustofa Suðurlands vígð:
Mikilvægt að
hafa aðgang að
rannsóknum
heima í héraði
-segirArmann Höskuldsson forstöðumaður
Það kom í hlut Ingibjargar Pálma-
dóttur, heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra að vígja Náttúru-
stofu Suðurlands á fóstudaginn í
fjarveru Guðmundar Bjarnasonar
umhverfisráðherra. Náttúrustofan
tók til starfa fyrr á árinu og veitir
Armann Höskuldsson hennir
forstöðu.
„Ingibjörg varð að klippa á borðann
því Guðmundur umhverfisráðherra
komst ekki,“ sagði Ármann í samtali
við Fréttir. „Náttúmstofan er þar með
fonnlega komin á laggimar og komin
í eigið húsnæði í Rannsóknasetrinu.
Höfum við yfir að ráða 16% af
húsnæðinu."
Náttúrustofan er rekin í tengslum
við Náttúrugripasafn Vestniannaeyja
en Ármann segir að þar sé ekki um
fjármálaleg tengsl að ræða. „Þessar
tvær stofnanir þyrftu að komast undir
eitt þak. Ég sé það ekki gerast á
næstunni en að því þarf að stefna. Þá
mundu þær njóta betur hvor annarrar
og safnið er ein aðalástæðan fyrir því
að Náttúrustofu var valinn staður í
Eyjum.
Ármann segist vera þokkalega
bjartsýnn á framtíðina en bendir á að
ennþá standi aðeins ríkið og
Vestmannaeyjabær að Náttúrustof-
unni. „Önnur sveitarfélög á Suður-
landi hafa ekki ennþá tekið ákvörðun
um að vera með. Hún verður tekin
innan SASS á næstunni. En við erum
með verkefni hér og uppi á landi
þannig að við höfum ekki sett það
fyrir okkur. Það er mikilvægt fyrir
sveitarstjórnir að hafa aðgang að
upplýsingum rannsóknarstofu heima í
héraði þannig að það yrði allra hagur
að sem flest sveitarfélög komi að
þessu með okkur,“ sagði Armann.
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigöisráðherra, klippir á borðann við vígslu Náttúrustofunnar.
Landssamband smábálaeigenda:
Fiskveiðistefncm fjand»
smleg landsbyggðinni
Landssamband smábátaeigenda
sendi frá sér ályktun í vikunni þar
sem varað er við núverandi
fiskveiðistefnu stjórnavalda. I á-
lyktuninni segir að annars vegar
fari ekki saman hugmyndir
stjórnvalda um stjórnun fiskveiða
og verndun, og hins vegar að
tæknin sem notuð er við fiskveiðar
geti reynst tvíeggjað sverð í
sókninni eftir lífsgæðum.
Sigurbjörn Hilmarsson, smábáta-
karl, segir að í ályktuninni sé bent á að
óbreytt fiskveiðlög skapi miklar
þrengingar hjá þeim stóra hópi
smábátaeigenda sem nú vinni innan
sóknardagakerfisins. Smábátaeig-
endur í aflamarkskerfinu hafi einnig
beðið þess til margra ára að hlutur
þeirra yrði réttur gagnvart öðrum
útgerðarhópum.
„Stöðugur fólksflótti úr strandveiði-
byggðum landsins, þar sem nú standa
hundruð íbúða auðar og eigendum
verðlausar, sýnir glögglega að mark-
mið fiskveiðilaganna um atvinnu-
öryggi og eflingu byggðar eru að
snúast í andhverfu sína,“ segja smá-
bátamenn og leggja áherslu á að
réttlætiskennd þjóðarinnar sé stórlega
misboðið. „Þessi óánægja brýst m.a.
fram í ruglingslegum kröfum um
skattlagningu á sjáarútveginn - sem er
úr öllu samhengi við starfsumhverfi
atvinnugreinarinnar.“'
Einnig er bent á að kerfið sé lokað
ungu fólki. „Hliðið sem til skamms
tíma hefur staðið opið fyrir hinni
nauðsynlegu endumýjun veiðimanna
í veiðimannasamfélagi, hefur verið
smábátaflotinn. Þannig hefur hann
gegnt því hlutverki að ala upp hverja
sjómannakynslóðina af annarri. Á
sama tíma hefur ásókn í menntun í
sjávarútvegi stórlega dregist saman.
Það er verðugt íhugunarefni hvort
ekki sé beint samhengi hér á milli.
Veiðimannasamfélag velur búsetu
eftir aðlægi veiðilenda. Þannig risu
byggðir íslands í hundraðatali vegna
nálægðar við gjöful fiskimið.
Fiskveiðistjórnunarkerfi sem brýtur
þessa grundvallarforsendu byggðanna
brýtur að Iokum byggðimar sjálfar.
LS skorar á almenning og stjóm-
völd að vakna nú þegar til skilnings á
þeirri nauðsyn að snúa þessari þróun
við. Eitt af meginverkefnum þeirrar
vinnu er að styrkja og efla smábáta-
útgerðina,“ segir í lokaorðum álykt-
unarinnar.
Hemmi Gunn á opnu húsi
í kertaverksmiðjunni
Opið hús var í kerta-
verksmiðjunni Heimaey á
laugardaginn var. Við það
tækifæri gafst gestum og
gangandi tækifæri til þess að
skoða verksmiðjuna og kynnast
því hversu miklu má koma til
leiðar, ef allir leggjast á eitt.
Eftir að markaðsátakið hófst,
sem nú er í gangi, hefur vegur
fyrirtækisins verið allur upp á við.
Hermann Gunnarsson, sem
þekktur er fyrir að styðja málefni
fatlaðra, kom á staðinn og vakti
vera hans mikla gleði og áhuga
jafnt gesta sem starfsmanna.
Hermann segir að sér finnist þetta
ólýsanlegt framtak. „Eghef
kynnst fötluðu fólki og veit að
svona átak er bylting í lífi þess.
Við gerum okkur betur grein
fyrir því að það þarf að veita
fötluðum hjálparhönd og vitum
að öll vinna sem miðar að því að
virða rétt þeirra til þess að taka
þátt í samfélaginu af fullri reisn
skilar sér. Við sjáum bara gleðina
og áhugann sem skín úr hverju
andliti hérna.*1
Hermann segir að önnur
byggðarlög geti tekið
Vestmannaeyjar sér til
fyrirniyndar í þessu efni. „Það er
margt hægt að gera,“ segir hann.
„Einnig tel ég að við getum margt
lært af þessu fólki og ég er ekki í
nokkrum vafa að það hefur kennt
mér að meta margt í lífinu á
annan og betri hátt, en ella,“ sagði
Hermann.
Dæja, starfsmaður
Kertaverksmiðj-
unnar Heimaeyjar,
á spjalii við Hemma
Gunn.