Fréttir - Eyjafréttir - 30.10.1997, Qupperneq 15
Fimmtudagur 30. október 1997
Fréttir
15
Úrval af
ZCCO skóm
Þægindin ganga fyrir!
Hjaitans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð,
hlýhug og vináttu við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu.
Klöru Tryggvadóttur
áðurbúsettri í Vestmannaeyjum
Tryggvi Sigurðsson Sigríður Ólafsdóttir,
Amdís Bima Sigurðardóttir,
Garðar Sigurðsson Bergþóra Óskarsdóttir,
Óskar Hallgrímsson Kolbrún Óskarsdóttir
Hallgrímur Hallgrímsson Steinunn Jónsdóttir
börn og bamabörn.
D*
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa.
✓
Gunnars Olafssonar
frá Gilsbakka
Vestmannabraut 10, Vestmannaeyjum.
Stella Ottósdóttir og tjölskylda
u*
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi
Guðmundur Kristinn Axelsson
lést að heimili sínu Áshamri 30.
Utförin verður frá Fossvogskapellu
kl. 15 föstudaginn 31. október nk.
Þóranna Guðmundsdóttir Daníel Jónsson
Valdimar Guðmundsson Guðrún Eyland
Axel Guðmundsson
Hafsteinn Guðmundsson
böm og bamaböm.
Besli aÓalfundurinn í mörg ár
ísólfur Gylfi stóð sig vel á trommunum á fimmtudagskvöldið.
Á miðvikudag og fimmtudag í síðustu
viku var haldinn hér í Eyjum
aðalfundur Sambands veitinga og
gistihúsaeigenda. Samband veitinga-
og gistihúsaeigenda em, eins og
nafnið bendir til samtök hótela og
veitingastaða og skiptast félagar
nokkum veginn jafnt milli þessara
tveggja greina. Félagið er aðili að
Vinnuveitendasambandi íslands.
Félagið rekur skrifstofu með tvo
starfsmenn. Um 70 manns sóttu
fundinn og dagskrá í tengslum við
hann. Fundurinn var haldinn í Ásgarði
Stokkhólmi og Lundi, og vara-
formaður 100 hótela keðju í Svfþjóð,
„Sweden hotels” erindi á fundinum
um umhverfismál hótela og
veitingahúsa og spamað í rekstri.
Farið var í skoðunarferð í rútu og
vom fulltrúar á fundinum ánægðir
með dagskrána en nokkur hluti þeirra
var að koma í fyrsta skipti til Eyja.
Samtökin eru nú að vinna að þvf að
flokka hótel á íslandi með stjömugjöf.
Við þetta verður notað kerfi sem
notað er í Danmörku. Slík stjömugjöf
hjálpar ekki aðeins ferðamönnum að
en gestir á fundinum fylltu bæði hótel
bæjarins og einhverjir vom á
gistiheimilum.
Meðal annarra hélt Ejnar Söder,
hótelstjóri og eigandi Star Hotel í
gera sér grein fyrir hvers konar hóteli
hann kemur til með að dvelja á heldur
ekki síður þeim sem eru að selja
ferðir. Ekki sé endilega rétt að sækjast
eftir sem flestum stjömum. því földi
ferðamanna vilji t.d. dvelja á tveggja
stjömu hótelum. Þeir ferðamenn hafi
ákveðið að vera ekki að borga meira
en sem næmi tveggja stjömu hóteli.
Viðskiptavinimir væru oft mikið
ánægðari á góðu tveggja stjömu hóteli
en slöku þriggja stjömu hóteli, því þá
væm væntingamar meiri.
Áslaug Alfreðsdóttir er formaður
samtakanna og Ema Hauksdóttir
framkvæmdastjóri. Þær sögðu í
samtali við Fréttir á fimmtudags-
kvöldið að mjög vel hefði tekist til.
Menn hefðu á orði að þetta væri besti
aðalfundurinn í mörg ár. SVG
(Samband veitinga og gistihúsa-
eigenda) halda aðalfundi sína víðs
vegar um land, en á fimm ára fresti í
Reykjavík. Þær Áslaug og Ema töldu
betri stemmningu skapast á þeim
aðalfundum sem haldnir væru úti á
landi, menn væm á sama stað og
eyddu frítímum saman, kynntust
innbyrðis, og gætu miðlað hver öðmm
af reynslu sinni. Það væri í raun
aðalmálið á þessum aðalfundum en
ekki aðalfundarstörfm, þau tækju
minnsta tímann, þessi almennu
samskipti skiluðu mestu og gæfu
fulltrúum á aðalfundi oft mest.
Fundinum lauk á fimmtudagskvöld
með kvöldverði á Hótel Bræðraborg
og skemmtun á eftir. Öllum að
óvörum birtust þeir Guðjón bæjar-
stjóri og Páll Marvin, ferðamála-
fulltrúi í miðju borðhaldi og buðu ábót
á súpuna. Hélt Guðjón uppi fjörinu
ásamt þeim Árna Johnsen, sem að
sjálfsögðu spilaði á gítarinn og ísólfi
Gylfa Pálmasyni, sem reyndar er
vanur gítarspilari en settist að þessu
sinni við trommusettið og spilaði eins
og hann hefði aldrei gert annað. Var
góður rómur gerður að þessari nýst
árlegu hljómsveit og skemmtu menn
sér fram á nótt við undirleik þeirra og
hljómsveitarinnar Eymanna.
Áslaug Alfreðsdóttir formaður og Erna
Hauksdóttir framkvæmdastjóri voru
ánægðar með fundinn.
Árni Johnsen klikkaði ekki frekar en fyrri daginn.
Smáar
Ibúð óskast
Óska eftir íbúð á leigu. Þriggja til
fjögurra herbergja. A sama stað
er óskað eftir barnakojum.
Upplýsingar í síma 481 3462
íbúð til leigu
Fjögurra til fimm herbergja íbúð í
tvíbýlishúsi í austurbænum til
leigu. Leiga 35.000 á mánuði.
Laus strax. Upplýsingar í síma
487 9010
Bíll til sölu
Mitsubishi Colt ‘88. Gott
staðgreiðsluverð. Upplýsingar í
síma481 3017
Toyota jeppi
Til sölu Toyota jeppi árgerð
1986. Af sérstökum ástæðum er
söluverðið aðeins kr. 200.000,-
Upplýsingar í síma 481 1177
Bíll til sölu
Mitsubishi L300 4x4 árgerð ‘88 til
sölu. Til sýnis og sölu að
Hrauntúni 17. Upplýsingar í síma
481 1775 og 899 2547
Til sölu
Barnakojur
Til sölu eru góðar barnakojur
Seljast ódýrt.
Upplýsingar í síma 481 2070
Barnavagn
Til sölu er silver Cross
barnavagn, dökkblár með
bátalaginu. Notaður af einu
barni. Verð kr. 30.000,-
Upplýsingar í síma 481-3305
A-A fundir
A-A fundir eru haldnir sem hér
segir í húsi félagsins að
Heimagötu 24: Sunnudaga kl.
11:00, mánudaga kl. 20:30
(Sporafundir), þriðjudaga kl.
20:30 (kvennadeild),
miðvikudaga kl. 20:30,
fimmtudaga kl. 20:30, föstudaga
kl. 23:30 og laugardaga, opinn
fjölskyldu- fundur, reyklaus, kl.
20:30. Móttaka nýliða hálfri
klukkustund fyrir hvern auglýstan
fundartfma. Athugið símatíma
okkar sem eru hvern fundardag
og hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru í 2 klst. í senn.