Kópavogur - 21.11.2014, Blaðsíða 8

Kópavogur - 21.11.2014, Blaðsíða 8
8 21. Nóvember 2014 Einstakir gripir og fjölbreyttar rannsóknir „Safnið geymir marga góða gripi sem eru af margvíslegum toga og erfitt er að gera upp á milli þeirra. Safn Jóns Bogasonar af skeldýrum er afar merkt safn, geymir um 790 skráðar tegundir af innlendum skeldýrum og um 1350 erlendar tegundir Safnið sem slíkt er merkilegt fyrir það að vera að stofni til einkasafn þar sem eigandinn hefur haldið vel utan um uppruna gripanna með nákvæmri skráningu,“ segir Finnur Ingimarsson, líffræðingur og settur forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs. Fleiri einstaka gripi má finna á stofunni og nefnir hann meðal annars fyrstu há- hyrningsbeinagrindina sem sett var upp á Íslandi en hún var upphaflega á Hvalasafninu á Húsavík. Þá er á safninu upprunalegt eintak af landakorti sem var teiknað eftir mælingum Guðbrands biskups Þorlákssonar en það var gefið út í kortabók hollenska kortagerðamannsins Abrahams Orteliusar árið 1590. Steingerðar tennur rostunga, steingerðar skeljar úr Tjörneslögunum, laufblöð og surtarbrand frá Barðarströnd er þar einnig að finna. Risaeðla? Finnur segir að aðsóknin að Nátt- úrúfræðistofunni hafi aukist til muna eftir að hún flutti í Safnahúsið, Hamra- borg 6a, árið 2002 en þar er að finna eina náttúrugripasafn höfuðborgar- svæðisins sem opið er almenningi. Nýja húsnæðið býður upp á góða sýningaraðstöðu þar sem gestir geta fræðst um jarðfræði Íslands og íslensk dýr en þar er að finna fjölbreytt úrval náttúrugripa. Áður hafi fjöldi gesta verið 1-2000 á ári en sú tala hafi farið upp í 7000 strax við flutningana. Síðan þá hefur fjöldi gesta verið á bilinu 10 – 12.000 á ári. Náttúrufræðistofan er opin gestum sex daga vikunnar. „Síð- ustu ár hafa skólahópar verið ríflega þriðjungur safngesta en hlutfall grunn- og framhaldsskólanema hefur farið vaxandi. Þá hefur borið á því síðustu tvö ár að nemar úr erlendum fram- haldsskólum, einkum frá Danmörku, sæki safnið heim.“ Aðspurður hvað sé vinsælast í skólaheimsóknum barna og ungmenna segir Finnur að búr með lifandi ferksvatns– og sjávarlífverum veki gjarnan mikinn áhuga hjá öllum skólastigum. Þá eigi örninn, fálkinn, álftin og krumminn ávallt sinn sess auk þess sem marglitir steinar og kristallar veki verðskuldaða athygli. „Beinagrind háhyrningsins veldur einnig miklum heilabrotum um hvort þar sé risaeðla á ferð“ Sérstæðir þörungar Meðal þess sem gestir geta skoðað á Náttúrufræðistofu Kópavogs, í sér- smíðuðu búri, er svokallaður kúlu- skítur. Hann er eitt af sérstæðustu fyrirbærunum í náttúru Íslands og finnst aðeins í Mývatni hér á landi en hefur auk þess fundist í Akanvatni í Japan og vatni í Úkraínu. Kúluskítur er stórvaxið vaxtarafbrigði af grænþör- ungategundinni Aegagropila linnaei sem er nokkuð algeng víða í vötnum og vex þá oftast eins og skófir. Kúlurnar sem finnast í Mývatni geta orðið allt að 10cm í þvermál en smærri kúlur, 1-3cm í þvermál finnast í Vatnshlíðarvatni á Vatsskarði, Selvallavatni á Snæfellsnesi og Snjóholtsvötnum á Héraði. Nafn fyrirbærisins kann að vekja eftirtekt en það er dregið af því að í gegnum tíðina hefur sá gróður sem festist í netum bænda við Mývatn verið kallaður einu nafni skítur. Sökum sérstöðu sinnar hefur þótt við hæfi að kúlurnar fengju nafn og lá beinast við að kalla þær kúluskít. Finnur segir tilvist Kúluskíts sé nú ógnað og ekki hafi fundist nema nokkrar kúlur síðast þegar var leitað eftir þeim. „Sennilega vegna aukinnar næringarefnaákomu í vatninu, einkum fosfórs, í kjölfar kísilgúrnámsins og svo aukins fjölda ferðamanna. Blágrænar bakteríur sem áður mynduðu mikinn blóma eða grugg í vatninu í sumum árum hafa undanfarin ár gert það ár- lega og jafn vel stærri hluta úr ári. Af því leiðir að minna sólarljós nær til botns sem nærir kúlurnar“ Á heima- síðu Náttúrufræðistofu má finna ítar- legar upplýsingar um kúluskít og þar er einnig að finna stutt myndskeið frá botni Mývatns. Af öðrum tegundum sem finnast eingöngu á Íslandi nefnir Finnur rykmýstegundina stóru topp- flugu (Chironomus islandicus) og tvær tegundir hellamarflóa sem fundust fyrst í Þingvallavatni 1998. Fjölbreyttar rannsóknir Á Náttúrufræðistofunni hafa verið stundaðar rannsóknir frá stofnun hennar 1983. Undanfarin ár hafa þær einkum verið á sviði ferskvatns- vistfræði. „Við erum á síðustu metr- unum með okkar hluta í rannsókn sem miðar að því að flokka allt yfirborð landsins í svo kallaða vistgerðarflokka en sú flokkun er einkum gerð út frá gróðurfari. Náttúrufræðistofnun Ís- lands hefur yfirumsjón með verkefninu en okkar vinna fellst í því að kanna vötn, bæði straumvötn og stöðuvötn. Þá eru flokkuð saman vötn og svæði sem hafa svipað gróðurfar.“ Finnur nefnir ýmis önnur verkefni sem starfsmenn Náttúrufræðistofu, sem eru fimm talsins, hafa á sinni könnu. Vöktun á lífríki og efna- og eðlisþáttum Þingvallavatns sem er ver- kefni á vegum Landsvirkjunar, Orku- veitu Reykjavíkur, Umhverfisstofnunar, Þingvallaþjóðgarðs, Bláskógabyggðar og Grímsnes–og Grafningshrepps. Annað verkefni er vöktun á smá- dýrum í Elliðaám fyrir Stangaveiði- félag Reykjavíkur. Þá hafa Stofan, í samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands fylgst með landnámi lífs í nýju vatni, Blávatni, uppi á Oki í Borgarfirði. „Að auki tökum við að okkur lífríkisúttektir á vatnavistkerfum og nú stendur yfir úttekt á Meðalfellsvatni í Kjós að beiðni Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis.“ Erum með landið í láni Aðspurður um náttúru– og umhverfis- vitund Íslendinga segir Finnur að um langa hríð hafi hagsmunir mótað mjög afstöðu manna til umhverfisverndar, oft stundarhagsmunir þar sem aðeins sé litið til nánustu framtíðar. „En það sem er gott til skamms tíma er kannski ekki eins gott sé til lengri tíma litið. Aukin þekking á gangverki náttúr- unnar, samspili ólíkra tegunda lífvera og þeirra aðstæðna sem jörðin og hið ólífræna umhverfi býr þeim í því formi sem við köllum vistkerfi, er að ýta fólki til betri umgengi og vitundar um um- hverfið, en betur má ef duga skal. Öll efni sem lífverur nærast á ganga í hringi, eru endurnýtt. Slíka endur- nýtingu þurfum við að innleiða í alla framleiðslu okkar mannanna. Í þessu felst líka að fólk læri að meta það sem það hefur, við getum ekki alltaf endur- heimt það sem við höfum skemmt eða raskað. Viðhorf sem við þurfum að temja okkur er að við fengum landið ekki í arf frá foreldrunum, við erum með það í láni frá börnunum okkar. “ „Viðhorf sem við þurfum að temja okkur er að við fengum landið ekki í arf frá foreldrunum, við erum með það í láni frá börnunum okkar.“ Á Náttúrufræðistofu Kópavogs er að finna eina náttúrugripasafn höf- uðborgarsvæðisins sem opið er al- menningi. Sýningaraðstaðan er með ágætum segir á heimasíðu stofunnar www.natkop.is og þar er að finna fjölbreytt úrval náttúrugripa, með áherslu á jarðfræði Íslands og íslensk dýr. Þar eru einnig stór fiskabúr með lifandi ferskvatns- og sjávarlífverum. við erum með landið að láni hjá börn- unum okkar, segir Finnur Ingimarsson. risaeðlubein? Finnur Ingimarsson segir að beinagrind háhyrningins veki spurningar hjá fjölmörgum gestum. mörg sjávardýr má sjá á Náttúrufræðistofu Kópavogs, eina náttúrugripasafni landsins sem opið er almenningi. Þangað koma milli 10 og 12 þúsund gestir árlega.

x

Kópavogur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.