Fréttir - Eyjafréttir - 05.02.1998, Page 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 5. febrúar 1998 • 5. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Myndriti: 481 1293
Alltklárt
fyrir loðnuna
Sigurður Friðbjörnsson, hjá
bræðslu Vinnslustöðvarinnar, sagði
að þeim væri ekkert að vanbúnaði
að byrja.
„Að vísu erum við þessa stundina
að vinna við önnur verkefni en mynd-
um snarlega hætta í þeint ef loðna
færi að veiðast og yrðum klárir um
leið og fyrsti farmurinn kæmi, sem
vonandi verður sem fyrst,“ sagði
Sigurður.
Afkastagetan verður hin sama og í
fyrra. 800 til 900 tonn á sólarhring.
„Við erunt alltaf klárir,“ sagði Bogi
Sigurðsson, verksmiðjustjóri í FES.
„Og við erum klárir í slaginn þegar
hann byrjar, okkur er ekkert að van-
búnaði í því.“ Bogi sagði að afkasta-
geta þeirra í vetur yrði sú sama og í
fyrra eða um 700 tonn á sólarhring.
Þá er allt klárt fyrir frystinguna en
sameiginleg afkastageta stöðvanna er
hátt í 800 tonn á sólarhring.
Sjómannaverkfall
Fyrstu merki sjómannaverkfallsins
eru að nú er nær allur Eyjaflotinn
bundinn í höfninni. Dragist það á
langinn verða áhrifm víðtækari og í
fiskvinnslunni má gera ráð fyrir að
þau komi fram af fullum þunga
strax í lok næstu viku. Sjómenn í
Vestmannaeyjum eru um 400 og
fjöldi fiskvinnslufólks er álíka
þannig að fari allt á versta veg
verða um 800 manns atvinnulaus
um miðjan mánuðinn.
Verkfall sjómanna í Vestmanna-
eyjum nær til allra undirmanna á
flotanum og vélstjóra á skipum með
1500 KWH aðalvélar og stærri. í
þeint flokki eru stærstu loðnuskipin
og togaramir. Félagar í S.s. Verðandi
felldu verkfallsboðun og eru þeir og
vélstjórar á minni bátunum ekki í
verkfalli. Það er þó sþammgóður
vermir því verkbann LÍÚ tekur gildi
frá og með næsta þriðjudegi. Þá verða
allir sjómenn í Eyjum, rúmlega 400
manns, ýmist í verkfalli eða verk-
banni.
Vinnslustöðin virðist vera einna best
sett hvað hráefni varðar. Ingi
Júlíusson, verkstjóri, sagði í gær að
þeir væru að vinna úr ferskunt fiski
sem Jón Vídalín landaði. „Einnig
erum við með Rússafisk og þetta
samanlagt á nægja vinnslunni fram í
næstu viku. Jafnvel út vikuna,“ sagði
Ingi.
„Við eigum fisk út þessa viku,
kannski fram á mánudag," sagði Jón
Ólafur Svansson, hjá ísfélaginu.
,JEftir það verður lítið um að vera hjá
okkur að óbreyttu ástandi. Reyndar
höfum við alltaf keypt nokkuð af
trillufiski en bæði sýnist mér að spáin
fyrir næstu daga lofi ekki góðu um
sjósókn hjá þeim og eins má búast við
að hart verði barist um ftskinn frá
þeim á markaðnum,'1 sagði Jón
Ólafur.
Sigurbjöm Hilmarsson, hjá ftskverk-
uninni Eiði, sagði að þar væri til
hráefni til vinnslu fram í miðja næstu
viku. „Síðan bara stoppar þetta. Að
vísu koma trillumar til með að landa
einhverju en sá ftskur hentar okkur
yfirleitt ekki,," sagði Sigurbjöm.
Hjá fiskverkuninni Kinn fengum við
þær upplýsingar að þar væri hægt að
vinna í fiski út næstu viku, miðað við
að full vinna væri fyrir allt starfs-
fólkið.
Sigríður Magnúsdóttir, hjá Aðgerð-
arþjónustunni Kútmagakoti, sagði að
vinna hjá þeim dygði einungis út
þessa viku. „Svo fáum við fiskinn frá
trillunum, þvíþeirmegaróa. En það
fer náttúrlega eftir veðri og vindum
hver sá afli verður og í febrúar hefur
það nú oft verið stopult hjá trillunum,"
sagði Sigríður.
Sjómannafélagið Jötunn sendi frá
sér harðorða ályktun í gær þar sem
því er mótmælt að Smáey VE hélt
til veiða á þriðjudagskvöldið eftir
að verkfallið skall á. Um borð voru
fimm menn, skipstjóri, stýrimenn
og vélstjórar sem ekki eru í verk-
falli.
„Með þessu athafi em félagar okkar
í S.s. Verðandi að ganga í okkar störf
og er illa farið ef félagar okkar
svíkjast svona aftan að okkur," segir í
ályktuninni.
Magnús Kristinsson, útgerðarmaður
Smáeyjar, formaður Útvegsbænda-
félagsins og í stjóm LIÚ er sakaður
um siðleysi að senda skip sitt til veiða
undir þessunt kringumstæðum. Skor-
Ekki eru ntiklar líkur til að samn-
ingar náist allra næstu daga en fari svo
að verkfallið dragist á langinn verða
800 manns án atvinnu strax í næstu
viku. Auk þess sem loðnan ntun sigla
óáreitt framhjá en það er von manna
að hún verði til þess að kveikja
samningsvilja hjá deiluaðilunt.
að er á samninganefnd sjómanna að
hvika hvergi og em sjómenn hvattir til
að standa saman. Málið hefur vakið
sterk viðbrögð og haft áhrif á
samningaviðræður hjá ríkissátta-
semjara en bæði Magnús og skipstjóri
Smáeyjar vilja láta reyna á hvort
rétturinn sé þeirra megin eða ekki.
,JEg tel mig ekki vera að brjóta lög,“
sagði Magnús. „Ég vil þó ekki verða
þess valdandi að samningaviðræður
stöðvist. Það er alfarið mín túlkun að
ég sé ekki að brjóta lög eða mínir
menn. Um borð í Smáey hafa bæði
undir- og yfirfmenn tekið troll og
gengið frá afla.“
Smáeyjardeilan veldur titringi
SmáeyVE,
Breki VE og
íjórar trillur
að veiðum
Samkvæmt upplýsingum á
Loftskeytastöðinni voru Smáey
VE, Breki VE, Dala Rafn VE og
fjórar trillur á sjó í gær.
Smáey er á sjó í óþökk sjó-
mannasamtakanna en Breki fiskar í
siglingu sem er heimilt í verkfalli og
Dala Rafn er að koma úr siglingatúr
frá Þýskalandi.
I Eyjum eru um 40 trillur og þar af
eru um tíu sem gerðar eru út allt árið.
Af þeim voru fjórar á sjó í
gærmorgun. Þá er vitaþ um fjóra báta
sem eru í breytingum annars staðar
en að öðru leyti var allur Eyjaflotinn
í heimahöfn í upphaft verkfalls.
Formaður Verðandi:
Kvótagreíf-
arnir uiróast
ráða ferðinni
Magnús Guðmundsson, for-
niaður Verðandi, segir stöðuna
vera heldur ógæfulega í
kjaradeilu sjómanna og útvegs-
manna. Og reyndar sé málið
skrýtið þegar grannt er skoðað.
„Málið er að 80% til 90% útgerða í
landinu eru í þokkalegunt málurn
gagnvart sjómönnum og eru að
hluta til nteð ýmist markaðstengt
verð, selja á mörkuðum eða senda
fiskinn út í gámunt. Ef samn-
inganefnd LÍÚ viðurkenndi þessa
staðreynd er kominn samnings-
grundvöllur til að byggja á. Svo eru
sumar bræðslurnar að bjóða
afurðatengt verð sem ég held að geti
verið framtíð í,“ segir Magnús.
Þessi 10% til 15% útgerðannanna
kallar Magnús kvótagreifa og segir
að frá sínum bæjardyrunt séð virðist
þeir fara með ferðina í samn-
ingamálunum. „Kvótagreifamir
virðast vera það sterkir innan LÍÚ
að hin 80% til 90% fá engu ráðið.
Þetta hafa okkar samningamenn
undrast mjög,“ sagði Magnús.
YGGI
IR
LDUNA
gingamálin á
ægilegan h
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/1.
RÉWNGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 4813:
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alla daga nema sun. Kl, 08:15 Kl. 12:00
sunnudaga Kl: 14.00 Kl: 18.00
Zlerinlhir BRUAR BILIÐ
Tttr/utQt-i/ Sími 481 2800 Fax 481 2991
Bókabúðin
Heiðaivegi 9 - Sími 481 1434