Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 05.02.1998, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 05.02.1998, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 5. febrúar 1998 Fréttir 13 vegna ungt fólk sér ekki framtíð í því að búa hér. Hluti skýringarinnar er fábreytt skemmtanalíf en aðalástæð- an er sú að nú komast færri að kjötkötlunum. Þar á kvótakerfi í fiskveiðum stóra sök. Þar til fyrir tíu árum áttu ungir menn möguleika á að komast í útgerð, auðvitað með misjöfnum árangri en menn áttu von- ina um að komast í álnir. Nú er búið að loka fyrir þennan möguleika því aumur er kvótalaus maður. Honum eru allar bjargir bannaðar á þessum vettvangi. Um leið hefur bátum fækkað þó flotinn hafi aldrei verið öflugri og afkastameiri. Bjart í Sumarhúsum er að finna í öllum íslendingum og við erum til í að fóma miklu fyrir sjálfstæðið. Gott gengi í sjávarútvegi og kvótakerfið hafa getið af sér sterkar einstak- lingsútgerðir sem eru einn af hom- steinum byggðarlagsins. Stofnendur þeirra voru ungir menn, nýskriðnir út úr stýrimannaskóla og með tvær hendur tómar. Með vonina og dugn- aðinn að vopni lögðu þeir upp; nokkrir heltust úr lestinni en flestir náðu að þrauka og uppskám eftir þvf. Þama voru á ferðinni kraftmiklir einstaklingar sem ætluðu sér stóra hluti sem skiluðu sér til bæjarfélagsins en spumingin er -hvað hefðu þessir menn gert í dag? Varla hefðu þeir farið í útgerð. Einhverjir hefðu komist í góð skipsrúm og orðið skipstjórar en draumurinn um eigin útgerð er ekki til staðar. Er nú svo komið að til að svala athafnaþránni sér fólk meiri mögu- leika í því að opna sjoppu í Reykjavík en að fara í útgerð í Eyjum. Tvöávísanahefti Nú skyldi enginn ætla að sá sem þetta skrifar sé á móti kvótakerfinu, þvert á nróti. Kvótakerfið og framsal á kvóta er ein af stoðum undir velsæld í Vestmannaeyjum en á því em gallar sem þarf að laga og opna þarf ungum og efnilegum mönnum leið inn í stétt útgerðarmanna. í könnun sem bæjarstjóm stóð fyrir um ástæður þess að fólk flytti frá Eyjum, svaraði einn á þá leið að það væri ekki nóg að tvö ávísanahefti væru í Vestmannaeyjum. í þessari athugasemd er nokkur broddur því að sumum finnst að sér þrengt eftir sameiningu frystihúsanna árið 1992. Aðrir segjast settir hjá ef þeir em ekki réttu megin í pólitík eða heyra undir annað afl sem má sín einhvers í bæjarfélaginu. Ljótt er ef satt er því ef eðlileg samkeppni nær ekki að þrífast er illa komið fyrir okkur. Þá er líka spuming hvort þama er ekki líka komin ástæða fyrir því að færra ungt fólk sér framtíð í að búa í Eyjum. Þá kvarta þeir sem hafa misstigið sig í lífinu á einhvem hátt yfir því að eiga sér ekki viðreisnar von í Eyjum. í því er nokkur sannleikur og þessu þarf að snúa við. Tækífærin eru fyrir hendi Hvað hægt er að gera til að snúa þróuninni við verður ekki svarað hér. Vestmannaeyjar standa föstum fótum þó fólki eigi eftir að fækka eitthvað. Þama á sér stað þróun sem við ráðum ekki við. Fólk sækir í fjölmennið. Þar eru tækifærin og við því er ekkert að gera en þessi þróun getur snúist við. Þá koma sveitarfélög, sem tekist hefur að halda sjó, standa með pálmann í höndunum. Vestmannaeyjar eiga alla möguleika á að verða meðal þeirra en til þess þarf framsýni og kjark. Við höfum dæmi um hvort tveggja áárinu 1997. Bærinn yfirtók rekstur grunnskólanna og málefni fatlaðra og fyrstu skrefin lofa góðu. Þetta era dæmi um að Eyjamenn hafa bæði getu og eru tilbúnir til að takast á við erfið og krefjandi verkefni. Auk þess var stofnaður Listaskóli Vestmanna- eyja sem býður upp á mikla möguleika verði hlúð að honurn. Önnur dæmi um kraft og dugnað era árangurinn í fótboltanum, uppgangur Rannsóknasetursins, aukin umsvif Isólfur Gylfi spyr um háan löggæslukostnað á þjóðhátíð og öðrum útihátíðum: Mismumin milli höfuðborgar- svæðlslns og landsliyggðminnar Löggæslukostnaður á móðhátið er 1500 búsund til 1000 liúsund krónur, segir isólfur Gvlfi. Tölvunar og Þróunarfélagsins, fjár- festingar upp einn milljarð hjá bæði ísfélagi og Vinnslustöð og afrek í tónlist og á öðrum sviðum lista. Eflaust má tína fleira til en allt kemur þetta okkur til góða í framtíðinni. Halda þarf áfram á þessari braut, hugsa fram á veginn, grípa þau tækifæri sem gefast og sjá til þess að klíkuskapur og eiginhagsmunapot verði ekki ofan á í bæjarfélaginu. Það leiðir til stöðnunar sem er vísasta leiðin til hnignunar. Þá þarf að gefa frumkvöðlum og mönnum með for- ystuhæfileika tækifæri. Þeir rekast víða á en til að ná árangri þarf hörku og ósérhlífni sem þeir eiga í ríkum mæli. Þeir ætlast líka til rnikils af öðram og sætta sig illa við meðal- mennsku. Við skulum ekki heldur gleyma þeim sem minna eiga sín. Þó þeir þurfi á aðstoð að halda í augna- blikinu geta þeir seinna orðið nýtir þjóðfélagsþegnar. Að lokum er rétt að minnast þess að í vor verður kosið til bæjarstjómar. Þá gefst bæjarbúum tækifæri til að gefa flokkunum einkunn fyrir starfið á kjörtímabilinu. Hver þeirra fær fall- einkunn skal ósagt látið, valið er ykkar, Vestmannaeyingar. Eftirskrift Þegar þetta var skrifað var verkfall sjómanna ekki skollið á. Standi það út mánuðinn skulum við bara gleyma þessu, eins og krakkamir segja. Það mun taka mörg ár fyrir Vestmanna- eyjar að ná sömu stöðu og í dag ef það tekst þá nokkum tímann. Þetta verk- fall hlýtur að vekja upp margar spumingar, m.a. þá hvort sjómönnum og útgerðarmönnum er treystandi til að hafa forræði með kvótanum. Allir era sammála um að fiskurinn sé sam- eign allrar þjóðarinnar. Það hlýtur að vera krafa hennar, að þeir, sem falið er forræði yfir auðlindinni, komi sér saman um framkvæmdina. Það er ekki til of mikils mælst. Og hver er réttur fiskverkunarfólks sem sífellt færi minni sneið af kökkunni sem fiskurinn gefur? Ómar Garðarsson, ritstjóri. ísólfur Gylfi Pálmason, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurlands- kjördæmi, hreyfði þörfu máli þegar hann lagði fram fyrirspurn fyrir dómsmálaráðherra um löggæslu- kostnað félagasamtaka og íþrótta- félaga vegna skemmtana sem þau halda í fjáröflunarskyni. Hann bendir á að haldi félög dansleiki eða útihátíðir greiði þau frá 5000 krónum fyrir skemmtanaleyfi og 9000 krónur fyrir hvem staifandi löggæslumann. „ÍBV-íþróttafélag greiðir 1500.000 krónur til 1800.000 krónur í löggæslukostnað á Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Svipaða sögu er að segja um Iöggæslukostnað á landsmótum hestamanna og öðrum sumarhátíðum. Kostnaður þessi er mjög íþyngjandi fyrir félögin," segir ísólfur Gylfi í fyrirspum sinni og bendir á að í miðbæ Reykjavíkur séu 90 veitingastaðir sem rúma um 11.000 manns sem safnast saman eftir lokun. Þá fyllist miðbærinn af fólki en löggæslukostnaðurinn lendir ekki á samkomuhölduram heldur almenn- ingi í landinu. Hér er því um ákveðið ósamræmi að ræða varðandi gjald- töku. Hyggst dómsmálaráðherra beita sér fyrir breytingum hvað þetta varðar og ef svo er á hvem hátt?“ spyr ísólfur Gylfi. Þorsteinn Pálsson, dómsmálaráð- herra, sagði í svari sínu að lögreglu- stjóram sé heimilt að innheimta aukakostnað vegna löggæslu í tengsl- um við skemmtanir ef löggæslan er meiri en venjulegt er. „Vissulega getur falist mismunun í þessu milli lögregluumdæma þar sem eru margir lögreglumenn og auðvelt að takast á við sérstök viðfangsefni sem koma upp og hinna þar sem era fáir löggæslumenn og útilokað að takast á við nema með viðbótarlöggæslu. í þeim tilvikum gera lögin ráð fyrir löggæslukostnaði hjá þeim sem fyrir skemmtun standa," sagði Þorsteinn. Hann sagði ekki auðvelt að breyta þessu en það hafi verið skoðað með ýmsu móti. Mjög mikilvægt sé að reyna að tryggja samræmda fram- kvæmd þessara lagaákvæða en það verði ekki gert nema með laga- breytingum. „En jafnvel þó menn litu til þess þá stöndum við frammi fyrir því að í litlum lögsagnarumdæmum verður aldrei hægt að áætla fyrir svo miklum kostnaði sem einstaka útihátíðir geta haft í för með sér,“ sagði Þorsteinn. Isólfi Gylfa fannst ekki koma nógu skýrt fram hjá ráðherra hvort mögulegt er að breyta þessu og koma í veg fyrir mismunun. „Þegar við berum saman höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina gleymast þættir eins og þessir. I nýrri skýrslu Byggðastofn- unar um höfuðborgarsvæðið og landsbyggðina kemur einmitt fram að menningarlíf á landsbyggðinni líður m.a. fyrir þetta - að við erum að borga þama kostnað sem ekki er lagður á hér á höfuðborgarsvæðinu. Og eins og kom skýrt fram í fyrirspum minni þá er oft og tíðum um fjáröflun að ræða fyrir félagasamtök sem hafa síðan ómæld áhrif í viðkomandi byggðar- lögum. Þess vegna hvet ég dóms- málaráðherra taka þetta gaum- gæfilega til athugunar og breyta lögum,“ sagði ísólfur Gylfi að lokum. Auknar námskröfur á sjúkraliðabraut Framhaldsskólans: Nytt kerfi þyðir launalausa kynn- ingu á sjúkarhúsum í Reykjavík -Nemar sem byrjuðu nám samkvæmt fyrra kerfi eru enn á launum Nú standa fyrir dyrum breytingar á námsskrá sjúkraliða. Breyting- arnar taka meðal annars til starfs- þjálfunar þeirra. Fram að þessu hafa sjúkraliðar á námsbraut sjúkraþjálfunar við Fram- haldsskólann í Vestmannaeyjum fengið starfsþjálfun við Heilbrigðis- stofnun Vestmannaeyja samkvæmt sérstökum samningi. Starfsþjálfunin hefur verið í 32 vikur, í formi sumarafleysinga og þeir þegið laun fyrir. Þar af voru þeir í átta vikur í Reykjavík. Með breyttu skipulagi námsbrautarinnar er stefnt að því að auka bóknámið í sérfögum og setja verknámið undir sérstakan leiðbein- anda sem er þeim innanhandar á sjúkrastofnunum. Starfsþjálfunin mun fara úr 32 vikum niður í 28 vikur, en óljóst er hversu langur tími mun verða í kynningu á sjúkrahúsi í Reykjavík með leiðbeinanda. Þennan tíma í Reykjavík er nem- andinn launalaus, en fær þó sjö þúsund króna ferðastyrk. Komið hefur upp gagnými á Framhalds- skólann fyrir að bjóða upp á sjúkra- liðanám og geta hins vegar ekki boðið upp á verklega þáttinn í Eyjum. Á móti hefur verið sagt að námið sé lánshæft hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, eins og til að mynda vélstjómar- og skipstjómarbraut. Iris Þórðaidóttir deildarstjóri náms- brautar sjúkraliða við Framhalds- skólann segir að nemamir viti af þessu þegar þeir hefji námið. En þrír hópar hafa farið til Reykjavíkur á þessum forsendum Hún segir þetta fyrirkomulag spumingu um fjöl- breytni og komi til með að auka víðsýni og reynslu nemandans. „í Vestmannaeyjum býður Heilbrigðis- stofnunin ekki upp á þá fjölbreytni sexn nauðsynleg er og hætt við að nemamir séu einungis í aðhlynningu aldraðra. Við hefðum aldrei fengið nein pláss í Reykjavík ef nemamir hefðu fengið laun. Þess vegna heitir þetta „kynning". Málin vora orðin þannig að sjúkrahúsin neituðu orðið að taka nema inn á sjúkrahúsin í starfsþjálfun, sem líka var hluti af niðurskurði í heilbrigðiskerfinu. Þess má einnig geta að veittur hefur veiið ferðastyrkur að upphæð sjö þúsund krónur á mann.“ fris segir einnig að jafnvel þótt að nemar færa inn á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja með leiðbeinanda þá fengju þeir ekki laun fyrir það. Hún segir hins vegar að unnið sé að því að sjúkraliðar með réttindi sem gerast leiðbeinendur geti fengið eins til tveggja launaflokka hækkun á meðan þeir era með nema hafi þeir lokið námskeiði fyrir leiðbeinendur. , J>etta er aukin ábyrgð á sjúkraliða og okkur finnst ekki óeðlilegt að þeir fái einhverja umbun fyrir. Nemamir fá einnig einingar fyrir verklega þáttinn sem ekki var áður. Nú er heildareiningafjöldinn í nánxinu 120 en var áður 87.“ Hún bætir við að það sé ekki óeðli- legt að einhverjir sjúkraliðar séu inni á sjúkrahúsunum samkvæmt gamla kerfinu og séu þá á launum. „Það er alltaf hætta á einhverri sköran þegar verið er breyta skipulagi. í Vest- mannaeyjum era sex nemendur á launum samkvæmt gamla kerfinu en fjórir þeirra hafa verið í Reykjavík frá áramótum, þá launalausir. Reiknað er með að allir eigi að vera komnir inn á nýja ketfið fyrir 1. september á þessu ári og verði þá enginn á launum. Laun leiðbeinandans eru greidd af Menntamálaráðuneytinu og skólamir semja svo við viðkomandi sjúkrahús, vegna hans.“ Hildur Helgadóttir hjúkrunarfram- kvæmdastjóri Sjúkrahúss Reykja- víkur segir að í gamla kerfinu komi nokkrir nemar inn í áttatíu til hundrað prósent starf á nematímanum og era hluti af vinnuaflinu. „Þeir nemar sem eru í nýja kerfinu koma inn einn dag í viku á hverja deild meðan þeir eru í bóklega náminu og leiðbeinandinn hefur þá með sér í sinni vinnu, einn í senn. Eftir bóklega námið tekur við sextán vikna starfsþjálfun til dæmis á sjúkradeild. Það er ekki óeðlilegt að einhver skörun eigi sér stað undir þessurn kringumstæðum. Þannig er það ætíð þegar nýtt nám fer í gang."

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.