Fréttir - Eyjafréttir - 05.02.1998, Side 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 5. febrúar 1998
HreingerningafyrirtækiðKristjánssynir:
Eigum okkar leyniblðndur
Ungir menn
reyna alltaf að
finna farveg til
þess að sjá sér
farborða. Fyrir
þremur árum
hófu tveir ungir
menn í Eyjum
rekstur fyrir-
tækis sem þeir
kalla Kristjáns-
syni sf. og hefur
haslað sér völl í
hreingerningar-
bransanum.
Nafnið Kristjáns-
synir er tilkomið
til að heiðra föður
þeirra. Hann
benti þeim á
þennan atvinnu-
möguleika og
starfaði sjálfur
um tíma í Vest-
mannaeyjum, en
er nú stórveldi í
bransanum í
Þorlákshöfn.
Elías Rúnar
Kristjánsson segist
vera forstjóri, bók-
haldari og sá sem
sér um daglegan
rekstur fyrirtækis-
ins, jafnt á skrif-
stofunni og á
vettvangi. ,,Já Sig-
mundur Karl bróð-
ir minn er að vinna
í Hurðaverk-
smiðjunni, en ég kalla hann til ef að
einhver stór verkefni eru í gangi. En
annars gengur samstarfið vel og við
höfum nóg að gera, þó að núna sé
daufasti tími ársins. Við höfum hins
vegar föst verkefni, svo þetta reddast
alveg."
Elías segir að mesti annatíminn hjá
þeim sé í nóvember og desember, en
það dofni yfir starfinu eftir áramótin.
„Svo kemur vorfiðringurinn í fólkið,“
segir hann. „Verkefnin aukast með
hækkandi sól, þegar fólkið eygir betur
óhreinindin."
Hann segir að meðal verkefna hjá
þeim séu föstu verkefnin þeirra,
hreingemingar á gólfum hjá fyrir-
tækjum í bænum. „Þessi föstu
verkefni eru bundin við að bóna og
bónleysa ásamt viðhaldi og fægingu
gólfa. Einnig þrífum við íbúðir sem
eru að fara í sölu eða leigu, auk þess
sem við erum í gluggahrein-
gemingum. Svo emm við mjög góðir
í því að hreinsa rimlagardínur. Við
erum með algert galdj^'ni á
ElíasRúnar aðstörfum.
rimlagardínurnar, sem veldur því að
næst þegar þarf að þrífa þær, liggur
við að nóg sé að blása á þær Þetta efni
myndar verndarhúð á gardínunni
þannig að óhreinindin festast ekki í
þeim. Það er góður markaður fyrir
fyrirtæki af þessum toga. Fólk þarf
bara að átta sig á því að það eru til
menn sem hafa þetta starf að atvinnu."
Efnin sem þið notið, eru þau ekki
bæði hættuleg og óvistvæn og kannski
líka einhver galdraefni sem eru bara
auglýsingaskrum? „Nei við notum
eingöngu vistvæn efni og það er
ytirleitt ekki hægt að kaupa þau í
smásölu. Nokkur þeiiTa em framleidd
sérstaklega fyrir þennan bransa, en við
eigum einnig okkar leyniblöndur.
Efnin standa nú yfirleitt fyrir sínu, hins
vegar eru alls konar græjur sem
notaðar eru sem ekki standa undir
væntingum."
Eru Vestmannaeyingar þrifnir? „Já
þeir eru það, en samt em þeir frekar á
eftir tímanum, þegar kemur að
nýjungum. Uppi á landi eru fyrirtæki
þrifin á hverjum
degi, það er eins og
það gildi strangari
kröfur þar og veitir
kannski ekki af. Ég
held að þetta
helgist dálítið af
smæðinni héma.
Mér finnst Eyja-
menn ganga vel og
þrifalega um jafnt
heima hjá sér sem
annars staðar.“
Eru þið ekkert
beðnir um að þrífa í
bátum og skipum?
„Nei því miður
hefur ekkert verið
um það. En það er
kannski ráð að fara
að markaðassetja
sig í þeim geira.
Pabbi hefur hins
vegar verið mikið í
því að þrífa
vistarverur í bátum.
Auðvitað skitnar út
í bátum eins og
annars staðar."
Elías segir að
hann vilji nú helst
losna við að standa
í hreingemingum
heima hjá sér. Að
minnsta kosti segist
hann sýna lítið
frumkvæði í þeim
efnum þar.
En hvemig sérðu
framtíðina?
„Ég er bjartsýnn. Það er gott að
vera sinn eigin herra og geta ráðið
vinnutíma sínum mikið til sjálfur. Ég
ætla að minnsta kosti að vera í þessu
starfi áfram og lýst vel á framhaldið."
Um 70 manns mættu á kynningu Húseyjar.
Fjörugt kynningar- og
skemmtikvöld hjá Húsey
Síðastliðinn föstudag efndi Bygg-
ingavöruverslunin Húsey til kynn-
ingar á ýmsum vörum sem versl-
unin hefur upp á að bjóða. Tveir
öflugir fulltrúar komu frá Húsa-
smiðjunni í Reykjavík og kynntu
verkfæri, gluggakarma, ýmis
galdraefni og allt sem nöfnum tjáir
að nefna úr heimi byggingariðn-
aðarins. Var gerður góður rómur
að kynningunni og fyrirspurnum
fróðleiksþyrstra Eyjamanna
svarað.
Boðið var upp á veitingar í mat og
drykk sem allt rann Ijúflega niður.
Mönnum var gert að skyldu að mæta
með höfuðföt. því verðlauna skyldi
frumlegasta höfuðfatið. Óhætt er að
segja að hápunktur kvöldsins muni
hafa verið þegar skorið var úr um
frumlegasta höfuðfatið. Sá sem varð
fyrir valinu og hreppti verðlaunin fyrir
frumlegasta og glæsilegasta höfuð-
fatið var Egill Egilsson. Eða eins og
sagði í umsögn dómnefndar: „Hattur-
inn er einstaklega glæsileg og vönduð
smíð á allan hátt og ber maðurinn
höfuðfatið sérstaklega vel. Þar fer
saman holning og hattur.“
Að lokinni vel heppnaðri dagskrá
Egill Egilsson með flottasta hattinn.
sem fór að mestu fram í glæsilegum
golfskála Golfklúbbs Vestmannaeyja
héldu menn út á örkina í frjálsu flugi
og mun hafa tekist með sóma í
hvívetna.
Vestmannaeyjalistinn býður fram
Síðastliðinn sunnudag var haldinn
opinn fundur um framboðsmál
Vestmannaeyjalistans. Á fundinum
urðu líflegar umræður og er greinilegt
að mikill áhugi er á því að stefna að
sigri Vestmannaeyjalistans við kosn-
ingamar í vor.
Nú þegar hefur verið tekin
ákvörðun um að Vestmannaeyja-
listinn bjóði fram og er undirbúningur
fyrir framboðið þegar hafinn. Sem
fyrr standa Alþýðubandalag, Alþýðu-
flokkur og Framsóknarflokkur að baki
framboðinu en að auki hafa bæst við
óflokksbundnir einstaklingar sem
fram til þessa hafa sumir hverjir lítt
eða ekki tekið þátt í pólitísku starfi.
Ofangreind stjórnmálasamtök og
aðilar munu stofna sérstakt bæjar-
málafélg um framboðið og starf Vest-
mannaeyjalistans í bæjarstjóm Vest-
mannaeyja. Stofnfundur félagsins
verður haldinn í Þórsheimilinu
fimmtudaginn 12. febrúarn.k. kl. 20.
Við uppröðun á framboðslista
Vestmannaeyjalistans verður haldin
skoðunarkönnun meðal bæjarbúa
þannig að framboðið spegli vilja sem
flestra.
Allir þeir sem áhuga hafa á að bjóða
sig fram eða komið geta með ábend-
ingar um áhugasama frambjóðendur
eru vinsamlegast beðnir um að hafa
samband við einhvem eftirtalinna sem
allra fyrst þar sem stefnt er að þvf að
skoðanakönnunin verði í byrjun mars
og framboðslistinn verði tilbúinn
skömmu síðar.
Guðmundur Þ.B. Ólafsson, sími:
481 1714, Guðni F. Gunnarsson,
sími: 481 2208, Jóhanna Njálsdóttir,
sími: 481 1177 og Skæringur Georgs-
son, sími:481 1196
Undirbúningshópur
Bæjarmálafélags
V estmannaeyjalistans
Sigurgeir Jónsson
skrifar
ttodegi
Af opinberum
framkvæmdum
Oft er það sem skrifari botnar lítið í
framkvæmdum manna. Einkum á það þó við
þegar opinberir aðilar eiga í hlut. Þá er oft eins
og allt sem heitir heilbrigð skynsemi sé látin
lönd og leið og bara sullast áfram í
framkvæmdagleði. Enda allt í lagi, það em bær
eða ríki sem borga brúsann.
Fyrir allmörgum árum starfaði skrifari hjá
Vestmannaeyjabæ sem forsvarsmaður einnar af
stofnunum bæjarins. Einhverju sinni þurfti hann
að fá handverksmann til smávægilegra
viðgerðarstarfa í húsinu. Sá mætti á staðinn og
kannaði hvað gera þyrfti, sagðist síðan myndu
koma kl. átta morguninn eftir og taldi að þessu
smáræði yrði lokið fyrir hádegi. Skrifari var
mættur til starfa kl. átta næsta dag en ekkert
bólaði á viðgerðarmanninum. Raunar hringdi
hann upp úr níu og sagðist hafa verið kallaður til
mjög aðkallandi verkefnis, kæmist því ekki fyrr
en eftir hádegi. Það var svo sem allt í lagi og kl.
eitt mætti hann til starfa, hvarf síðan á braut um
þrjúleytið til eigin erinda en kom aftur kl. fimm
og lauk störfum klukkutíma síðar. Nokkrum
dögum síðar kom hann með reikning sem hann
bað skrifara um að skrifa upp á. Sá reikningur
hljóðaði upp á átta tíma vinnu og skrifari
tilkynnti honum strax að þetta plagg skrifaði
hann ekki undir. Verkið hefði tekið þrjá tíma en
ekki átta. Þá kom setningin sem skrifari man
enn í dag: „Skiptir þetta einhverju máli, er það
ekki bærinn sem borgar þetta?"
Eftir nokkur orðaskipti skrifaði viðgerðar-
maðurinn nýjan reikning og skrifari samþykkti
að fjórir tímar teldust hæfileg þóknun til hans.
Með það plagg hvarf hann síðan á braut og hefur
væntanlega fengið borgað.
í haust var hafist handa við framkvæmdir á
hinu nýja húsnæði Listaskólans og var ákveðið
að verja sex milljónum til verksins. Nú hefur
skrifari starfað í þessu húsi um nokkurra ára
skeið og taldi næsta víst að byrjað yrði að dytta
að þaki og gluggum hússins en það hefur vart
haldið vatni og vindi um langan tíma. Þrátt fyrir
ábendingar var það þó ekki gert, heldur farið í
breytingar innanhúss. Ekki dugðu sex
milljónimar umræddu langt í þeim fram-
kvæmdum og einhvers staðar sá skrifari það á
prenti að tuttugu milljónir til viðbótar hefði
þurft. Og enn er talsvert eftir ógert.
Svo fengum við á dögunum mikið vatnsveður
eins og ekki er sjaldgæft í Vestmannaeyjum. Þar
með gerði gamalkunnur þakleki vart við sig en á
undanfömum árum hefur oft þurft að tína til
fötur og stampa til að taka við vatni sem lekið
hefur úr loftinu. Sem betur fer var verið að
kenna í tækjastofu Framhaldsskólans, sem enn
er staðsett í húsinu, og gátu því menn breitt yfir
tæki og tól sem eflaust hefðu annars farið illa.
Þetta var í vesturhluta hússins en ekki varð vart
leka í austurhlutanum sem hefur þó alla jafna
verið meira vandamál. Skrifari hefur um það
illan grun að vatn hafi þó komist þar inn en
mikil og þykk ný einangrun í lofti, ásamt nýrri
loftklæðningu, hafi komið í veg fyrir að vatnið
kæmist alla leið niður. Nú er skrifari ekki illspár
maður að eðlisfari og vissulega vonar hann að
nýju innréttingamar í Listaskólanum skemmist
ekki í vetur. En til þess þarf hagstætt veðurfar.
Og skrifari beinir þeim eindregnu tilmælum til
þeirra sem fara með ferðina í málefnum þessa
húss að því fé sem ætlað er tíl framkvæmda í því
á þessu ári, verði varið til að gera það vatnshelt.
Þrátt fyrir það að bærinn borgi brúsann ef illa
fer.
Sigurg.