Fréttir - Eyjafréttir - 05.02.1998, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 5. febrúar 1998
og
baki
fa bæst við
ngar sem
hverjir lítt
ísku starfi
Landakirkja
Fimmtudagur 5. febrúar
Kl. 17:00 T.T.T. (10- 12ára)
Laugardagur 7. febrúar
Kl. 14:00 Útför Guðrúnar Sig-
urðardóttur
Sunnudagur 8. febrúar
Kl. 11:00 Sunnudagaskólinn
Kl. 14:00 Almenn guðsþjónusta
-Hverfísmessa! Sjá fréttatil-
kynningu.
Kl. 20:30 Rokkmessa - Hljóm-
sveitin Dee Seven leikur við
góða heilsu.
Mánudagur 9. febrúar
K1.20:30 Bænasamvera og
Biblíulestur í KFUM & K
húsinu
Kl. 20:30 Fundur með foreldrum
og fermingarbörnum úr Barna-
skólanum.
Þriðjudagur 10. febrúar
Kl. 16:00 Kirkjuprakkarar (7-9
ára)
Kl. 20:30 Eldrideild KFUM &
K l'undar í húsi félaganna.
Kl. 20:00 Fullorðinsfræðsla
Landakirkju: Opinn fundur þar
sem frummælendur leggja fram
niðurstöður umræðukvöldanna
þriggja í samantekt sem flytja skal
á norrænni ráðstefnu um Siðfræði
Sjávarútvegs.
Miðvikudagur 11. febrúar
Kl. 10:00 Mömmumorgunn
Kl. 12:10 KyiTðarstund í hádegi
Kl. 15:30 Fermingartímar-Bama
skólinn
Kl. 16:30 Fermingartímar- Ham-
arsskóli
Kl. 20:00 KFUM & K húsið
opið unglingum
Kl. 20:30 Fundur með foreldrum
og fermingarbömum úr Hamars-
skóla.
Fimmtudagur 12. febrúar
Kl. 11:00 Kyrrðarstund á Hraun-
búðuni
Kl. 17:00 T.T.T. (10 - I2ára)
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20:30 Biblíulestur - Um að
vera „hluthafi í Kristi"! -eiga pant
himinsins. Er liægt að vita hvort
við förum til himins? Skoðum
málið í Biblíulestrinum!!!
Föstudagur
Kl. 17:30 Krakkakirkja fyrir böm
á aldrinuni 3 til 9 ára.
KI. 20:30 Unglingasamkoma.
Laugardagur
Kl. 20:30 Bænasamkoma.
Munið ábyrgð fyrirbiðjenda,
heilu borgirnar og löndin fengu
varðveislu frá hörmungum vegna
þeirra er báðu fyrir landi og lýð -
Guð er að kalla okkur kristna til að
sameinast í bæn. heill landsins er
okkar heill.
Við biðjum fyrir því að verkföll
og óáran hvers konar verði bægt
frá okkur.
Sunnudagur
KI. 15:00 Vakningarsamkoma
Ræðumaður: Jóhannes Hinriksson
Samskot vegna Kristniboðsins
Þriðjudagur
an1n7ú3m°W®alVrÍrbÖmá
Fjölbreyttur söngur og lifandi orð.
Hjartanlega velkomin.
Aðventkirkjan
l.augardagur 7. febrúar.
Kl. 10:00 Biblíurannsókn
Kl. 11:00 Guðsþjónusta. Gestur helg-
arinnar Theódór Guðjónsson.
Allir velkomnir.
Frábær árangur í fimleikum:
Ránarstúlkur
kræktu sér í 18
verðlaunapeninga
Tuttugu stúlkur í Fimleikafélaginu
Rán gerðu góða ferð á Skrúfu- og
meistaramót Fimlcikasambandsins
um síðustu helgi. Se\ þeirra komu
heim með verðlaun í farteskinu og
þar af voru tvær sem hlutu hæstu
einkunn sem veitt voru á mótinu.
En þeim árangri náðu aðeins þrjár
stúlkur.
Þátttakendur í Rán kepptu í 1„ 2.
og 3. þrepi og var Þórsteina Sigur-
bjömsdóttir sú eina sem keppti í 3.
stigi. Hún náði frábærum árangri á
dýnu, fékk 9,15 stig og varð í 3. sæti.
í fyrsta þrepi var keppt í tvennu
lagi, krakkar fæddir 1988 annars vegar
og krakkar fæddir 1987 annars vegar.
í fyrsta þrepi 1988 í gólfæfingum
röðuðu Ránarstúlkur sér í sæti tvö til
sjö. Olga Möller fékk 8,80 stig, Tanja
Björg Sigurjónsdóttir 8.75. Margrét
Rut Halldórsdóttir 8.60, Steinunn
Adolfsdóttir 8,40. Lilja Dröfn
Kristinsdóttir 8,20 og Jóhanna Lind
Þrastardóttir 8.05.
A dýnu skipuðu stúlkurnar sér í öll
fyrstu sætin. Tanja varð í l. sæti með
8,90, næst komu Stefanía Þorsteins-
dóttir með 8,80, Olga með 8,45, Alma
Guðnadóttir með 8,35 og Margrét
með 8,20.
Sama sagan endurtók sig á
trampólíninu. Olga varð í I. sæti með
9,60 og á eftir henni komu Stefanía
með 8,60, Tanja með 8,25, Margrét
með 8,00, Sigrún Halldórsdóttir með
7,00 og Lilja Dröfn með 6,05.
I samanlögðu var Olga efst með
26,85, Tanya kom næst með 25,90,
Margrét 24,80, Stefanía 24,60, Lilja
22,25, Sigrún 21,60 og Alnra 21,25.'
Keppendur í þessunr flokki voiu 20.
í l. þrepi 1987 voru 34 keppendur og
þar náði Anna Kristín Magnúsdóttir
frábærum árangri. I gólfæfingum var
hún í 2. sæti með 8,90. Á dýnu var
hún í l. sæti með 9,60 og einnig var
hún efst á trampólíni með 9,30.
í 2. þrepi varð Ama Björg Sigur-
björnsdóttir í 1. sæti í stökki með
8,50..
Af 112 keppendum voru tíu hæstu
stúlkumar valdar til að taka þátt í
meistaramótinu sem fram fór á
sunnudaginn og þeim hópi vom Anna
Kristín, Olga og Tanja úr Rán. Þær
náðu góðum árangri í mótinu, sér-
staklega Anna Kristín senr sigraði í í
æfingum á dýnu og trampólíni.
Á dýnu fékk hún 8,25. Olga var í 6.
sæti með 7.40 og Tanja í 8. með 7,10.
Á trampólíni fékk Anna Kristín 9,15,
Olga varð í 2. sæti með 8,95 og Tanja
í 5. með 8,65.
í samanlögðu varð Anna Kristín
efst með 25,40, Olga í 4. sæti með
24,00 og Tanja í 7. sæti með 23,75.
Hæsta einkunn sem náðist á mótinu
Guðmundur Þ.B. Úlafsson, tómstunda- og íbróttafulltrúí, Björguin Eyjólfsson
ípróttakennari. Guðjón Hjörfedsson bæjarstjóri, Þór Vilhjálmsson formaður ÍBV-
íjiróttafélags og ióhannes Úlafsson formaður knattspyrnudeildar ÍBV á þeim
stað sem búningsaðstaðan á að koma.
Á fimmtudaginn skrifuðu bæjar-
stjórn og IBV-íþróttafélag undir
samning vegna búningsaðstöð-
unnar við Hásteinsvöll sem verður
komin í gagnið fyrir sumarið.
ÍB V tekur að sér framkvæmdina og
hefur það fengið byggingafyrirtækið 2
Þ til að byggja húsið. Það verður
byggt við noröurendann á sal
Týsheimilisins. Teikningar, sem unnar
voru af Páli Zóphóníassyni, gera ráð
fyrir tveimur hæðum en f fyrsta
áfanga verður byggð ein hæð. Þar
verða tveir stórir búningsklefar fyrir
mfl. karla og kvenna, gufubað, dóm-
ai’aherbergi og sjoppa. Inni íTýsheim-
ilinu verður útbúin salernisaðstaða
fyrir vallargesti. Tækjageymsla, sem
nú er í anddyri, verður færð í núver-
andi þrekherbergi en þrekaðstaða
verður í garnla tippherberginu. Um
leið stækkar anddyrið.
Bærinn veitti 15 milljónum króna
til verksins. „Eg hlýt að gleðjast yfir
þessum áfanga,“ sagði Jóhannes
Ólafsson formaður knattspymu-
deildar. „Þetta hefur verið baráttumá!
mitt í mörg og nú er búningsaðstaðan
loks í sjónmáli."
HÖFDINGLEGAR MÓTTÖKUR Hópurínn kom með Herjólfi á
sunnudagskuöldíð og uar vel fagnað. Allar fengu stúlkumar, tijálfarar og
fararstjórar blóm sem viðurkenningarvott fyrir góða frammistölu.
var 9,60 og þeim árangri náðu þrjár
stúlkur, þar af tvær úr Rán. þær Ánna
Kristín og Olga.
Þjálfarar stúlknanna eru Kristjana
Ingibergsdóttir, Kristbjörg O. Þórðar-
dóttir og Anna Hulda Ingadóttir.
„Þetta er sennilega besti árangur sem
við höfum náð,“ sagði Kristbjörg í
samtali við Fréttir. „Stúlkumar stóðu
sig allar frábærlega og það að koma
heim með 18 verðlaun segir sína sögu.
Við náðum átta gullverðlaunum. fimm
silfur og fimm brons. Þetta vakti mikla
athygli og var stúlkunum hrósað í
hástert fyrir góðan árangur, góða
framkomu og getu.“
Fréttatilkynningar frá Landakirkju:
Huerfismessa í Landakirkju
Nú hefjast hverfismessur á nýju ári. Markmiðið er að loka hringnum fyrir
vorið svo að allir íbúar bæjarins hafi fengið boð um að koma í hverfismessu.
Hafa viðbrögð íbúa verið mjög jákvæð hingað til bæði í mætingu og
kökubakstri fyrir messukaffið. Lætur nærri að 80 manns til viðbótar við þá
rúmlega hundrað sem venjulega sækja messu hafi látið sjá sig hverju sinni
sem fulltrúar síns hverfis. Nú er heitið á íbúa við Bröttugötu. Heiðartún,
Strembugötu. Hátún. Smáragötu. Fjólugötu, Sóleyjargötu, Illugagötu og
Brekkugötu að gera enn ben.tr og fjölmenna til messu og koma með meðlæti
á hlaðborðið fyrir messukaffið. Fermingarböm úr þessum götum tnunu taka
virkan þátt. Prestar Landakirkju.
Nú stendur fyrir dyrum fyrsti fundur Sjálfshjálparhóps um sorg á nýju ári.
Hann verður haldinn í KFUM & K húsinu við Fífilgötu næstkomandi
fimmtudag. 5. febrúar, kl. 20:30. Á fúndinum mun Vera Björk Einarsdóttir
hjúkrunatfræðingur kynna ýmsar aðgengilegar bækur sem fjalla um málefni
sorgarinnar og lesa valinn kafla úr einni þeirra. Er fundur þessi gott tækifæri
fyrir all syrgjendur til að sitja yfir kaffibolla og kertaljósi og ræða um það
brýna málefni sem sorgin og viðbrögðin við henni eru.
F ramkvæmdahópurinn.
Systir mín, uppeldissystir og kær
vinkona
Guðrún Sigurðardóttir
frá Blátindi
Vestmannaeyjum
verður jarðsungin 7. febrúarkl. 14.00
frá Landakirkju í Vestmannaeyjum.
Fyrir hönd vandamanna
Sigurrós Sigurðardóttir,
Anna Jónsdóttir, Eygló Emilía Jónsdóttir,
Magnús Jónsson,
Stefanía Þorsteinsdóttir og Sigrún Þorsteinsdóttir.