Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1998, Qupperneq 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 23. apríl 1998
Nú grillum við
Nú grillum við
Þröstur Johnsen,
sælkeri síðustu
viku, skoraði á
samstarfsmann sinn
hjá Flugfélaginu,
Laufeyju Bjama-
dóttur að taka við
boltanum.
„Takk fyrir, Þröstur. Nú er komið
sumar og þar með grilltími. Veðrið
að undanfömu hefur líka boðið upp á
slíka iðju og því verða uppskriftirnar
miðaðar við það.
Sesam marinering:
(fyrir lamba- eða nautakjöt)
1/2 bolli matarolía
1/3 bolli sesamfræ
1/2 bolli sojasósa
1/4 bolli sítrónusafi (1/2 sítróna)
1 msk. sykur
1/4 tsk. pipar
2 rif hvítlaukur
Hitið þetta allt á pönnu. Meðan
það er heitt eru 4 laukar í þykkum
sneiðum settir út í ásamt steinselju.
Látið krauma aðeins og kælið síðan.
Látið kjötið liggja f þessum legi í 2-4
daga í fsskáp og þerrið það áður en
það er grillað. Berið það síðan fram
með bökuðum kartöflum og banana-
salati.
Bananasalat:
1 dós sýrður rjómi
1/2-1 tsk. sykur
kókosmjöl eftir smekk
2 sneiddir bananar
Hrærið saman sýrðan rjóma, sykur
og kókosmjöl. Best er að láta það
bíða í ísskáp í 2-3 tíma. Bananarnir
eru svo settir saman við, rétt áður en
salatið er borið fram.
Ávaxtaeftirréttur:
I dós perur
I dósjarðarber
3 bananar
200 g rjómasúkkulaði
7-8 kókosbollur
Setjið ávextina ásamt niðurskorn-
um banönum og súkkulaði í eldfast
mót (athugið að taka safann frá).
Kremjið kókosbollurnar yftr allt.
Bakið við 170° C í smástund. Berið
fram með þeyttum rjóma eða ís.
Ég hef ákveðið að halda
sælkeranum enn um stund innan
flugvallarsvæðisins og ætla að skora á
Jennýju Jóhannsdóttur að taka við.
Ég á von á að enginn verði svikinn af
hennar framlagi.
Laufey Bjarnadóttir er sælkeri
þessa viku.
O P ð B p O P
- Þá er kosningabaráttan hafin og
framboðslistarnri lofa bara nokkuð
góðu. Reyndir menn og ferskar konur í
bland. Dúlla, hans Bedda prýðir 13 sæti
V-listans og hún hóf kosninga-
baráttuna á barnum fyrir utan El Ranco
á Kanaríeyjum fyrir hálfum mánuði.
Hópur Eyjamanna lá þar afvelta eftir
gríðar vel útilátna nautakjötsmáltíð
þegar Dúlla fór að tala um pólitík og
agitera fyrir sínum lista. Það var eins
og við manninn mælt að allur drungi
var úr mönnum undir eins og hin
hressilegustu skoðanaskipti fóru af
stað. Sitt sýndist hverjum en að
afloknum umræðum varð niðurstaðan
sú að fara út að skemmta sér.
- V-lista balðið hefur komið út í
tvígang, bæði tölublöðin hin myndar-
legustu. Þeir V-listamenn báru blaðið í
hús eins og Alþýðuflokksmenn og
Sjálfstæðismenn hafa gert undanfarið
og er það ólíkt skemmtilegra heldur en
að sjá bunkana velkjast um í sjoppum
og búðum dögum saman.
Ekkert hefur enn sést til Fylkis en þar á
bæ hefur tíðkast að gefa út blað 1. maí
og því enn von.
- Gróusögur virðast fylgja kosningum
eins og dæmin sanna. Nú er mikið
talað um svekkelsi þeirra sem ekki
fengu náð fyrir augum uppstill-
inganefnda beggja lista. Heldur er þó
varasamt að trúa öllu sem skrafað er
því einn þeirra sem talað er um að hafi
farið í fýlu starfar á fullu fyrir sína menn
og annar auglýsir stuðning sinn við
sína menn í Fréttum. Því virðist vera
þolanleg sátt um listana í flokkunum
sem að þeim standa og bara almenn
ánægjameðal bæjarbúa.
- Þó er eitt sem enn vantar í
kosningabaráttuna og enginn virðist
taka eftir. Það eru loforðin. Að vísu eru
loforð stjórnmálamanna eins og
sólarglenna á íslenskum vordegi. Þau
eru gleymd daginn eftir kosningar.
SUKKULAÐISUHULAÐISUKKULAÐI
Sjálísagt þekkja flestir Eyjamenn
handboltamanninn Zoltán Belanýi en
hann hefur um margra ára skeið
verið einn af burðarásunum í
handboltanum i Eyjum. Hann og
kona hans, Gabriella, hafa lengi
beðið eftirþví að fá íslenskan
ríkisborgararétt og nú á dögunum
fengu þau þær ánægjulegu fréttir að
í það færi að styttast. Börnþeirra
þrjú eru þegar búin að fá réttinn,
Belló fær sinn í ágúst og Gabriella í
desember. Belló var Eyjamaður
vikunnar hjá okkur í fyrra ennú finnst
okkurkominn timi til að þessi verðandi
Eyjamaður okkar fái kynningu, hún
Gabriella.
Fullt nafn? Gabriella Polkovics Bélanýi.
Fæðingardagur og ár? 16. október 1966.
Fæðingarstaður? Ungverjalandi.
Fjölskylduhagir? Gílt Zoltán Bélanýi og
við eigum þrjú börn, Domino, Daniellu og
Jónatan Aron sem öll eru orðin löglegir
íslendingar.
Menntun og starf? Lærður kennarí,
sjúkraþjálfari, íþróttakennari og þjálfari.
Vinn við fimleikaþjálfun hjá Rán.
Laun? Aldrei nóg þegar maður á þrjú böm.
Helsti galli? Get verið svolítið lokuð.
Helsti kostur? Góður vinur vina minna.
U ppáhaldsmatur? íslenskur fiskur,
grænmeti og súkkulaði, súkkulaði og
súkkulaði af öllum tegundum
Versti matur? Það sem ég má ekki borða.
Uppáhaldsdrykkur? íslenskt sódavatn og
maltöl.
Uppáhaldstónlist?
Kelly Family og Celine Dion.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir?
Það er margt. En mér finnst gaman að
hanna ýmsa hluti, svo sem húsgögn. Svo
er mjög gaman að fara til Ungverjalands á
sumrin og hitta fölskylduna.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir?
Að strauja.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Kaupa eitthvað fyrir
fjölskylduna og gera eitthvað fyrir
handboltann og fimleikana hér.
Uppáhaldsstjórnmálamaður? Fylgist
ekkert með pólitík.
Uppáhaldsíþróttamaður? Bragi Belánýi,
það er nýja nafnið hans Belló.
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap?
Ekkí ennþá en vonandi verður það í
framtíðinni.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Gamanmyndir
og fréttir.
Uppáhaldsbók? Nokkrar ungverskar
bækur. Ég er ekkert að telja þær upp hér.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Hreinskilni.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
annarra? Baknag.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á?
Strendurnar á Ítalíu.
-Er gott að búa í Vestmannaeyjum?
Stórkostlegt, svo öruggt, allt svo hreinlegt,
dásamlegt.
-Hvernig líður þér að vera bráðum orðinn
„alvöru" íslendingur? Það er mjög góð
tilfinning að komast inn í þetta þjóðfélag.
Hér eru allir svo vingjarnlegir og ég vona að
við eigum eftir að falla inn í þetta samfélag.
Við erum ánægð og hamingjusöm.
-Verðurðu áfram Ungverji í hugsun? Ég
held að í hjarta mínu verði ég áfram bæði
Ungverji og íslendingur. Kannski má orða
það svo að hjartað hafi bara stækkað við
það að fá íslenskan ríkísborgararétt.
Eitthvað að lokum?
Okkur langar til að búa áfram í
Vestmannaeyjum. Aftur á móti er framtíðin
óráðin og við vitum ekki á þessari stundu
hvert framhaldið verður. En hér hefur okkur
liðið frábærlega vel og við vonum að
Vestmannaeyingar minnist okkar sem
góðra vina hvar sem við verðum.
NYFfEDDIR VESTMfiNNfiEYINGfiR
Stúlka
Þann 1. apríl
eignuðust
Magnea
Richardsdóttir
og Ómar
Þórhallsson
dóttur. Hún vó
tæpar 10
merkur og var
48 sm að
lengd. Hún er
fædd í
Reykjavík.
Með henni á
myndinni er
stóra systir Lilja
Dröfn.
Drengur
Þann 6. apríl eignuðust Sigurhanna Friðþórsdóttir og
Jón Atli Gunnarsson son. Hann vó 14 merkur og var
52 sm að lengd. Með henni á myndinni er Selma stóra
systir. Ljósm. var Drífa Björnsdóttir.
• •
00,0 nurux/u
9lla«
J
xmxw:
Nýji geisladiskurinn
með Litlum Lærisveinum
er frábær gjöf.
❖
Góður boðskapur
með sannkallaðri Eyjasveiflu.
❖
Fæst keyptur í
Vöruvali, Bókabúðinni og Flamingó.
Atvlnna - atvlnna
i
Vantar konur vanar snyrtingu og pökkun og einnig
aðgerðamenn í aukavinnu.
Upplýsingar gefur Ási Friðriks
Vinnusími: 481 3477
Heimasími: 481 1077
Gsm: 894 0377