Fréttir - Eyjafréttir - 30.04.1998, Síða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 30. apríl 1998
Austurrískir og finnskir nemendur sem unnid hafa að rannsóknum á
neysluvafni mei nemum Framhaldsskólans íheimsókn:
Dáöust að flóknu og háHróuðu
veitukerfl Vestmannaeyinga
Hópurinn í heimsókn hjá Bæjarveitum. Friðrík Friðriksson, veitustjóri leiðir hau í allan sannleikann um vatnsöflun
Vestmannaeyinga og ueitukerfið sem uakti mikla athygli gestanna.
í síðustu viku var á ferð í
Vestmannaeyjum hópur fólks frá
Finnlandi og Austurríki.
Heintsóknin er liður í
Comenicusarverkefni sem styrkt
er af Evrópusambandinu, en
verkefnið fjallaði um neysiuvatn og
hvernig fólk nýtir það á ólíkum
svæðum í Evrópu, sérstaklega þó í
Joensuun, Innsbruck og á
Heimaey. Neysluvatn, gæði þess og
magn hefur mikil áhrif á afkomu
fólks og búsetu. I Evrópu er þetta
ekki talið vandamál en þó vakna
sífellt upp spurningar um það vatn
sem neytt er. Hópurinn stóð
saman af nemendum og kennurum
frá Joensuun í Finnlandi og
Innsbruck í Austurríki. Tíu
nemendur og fjórir kennarar
komu frá Austurríki, tveir
kennarar og þrír nemendur fá
Finnlandi auk þess var fulltrúi
vatnsveitunnar í Innsbruck með í
för. Farið var með gestina
skoðunarferðir um eyjuna,
bátsferð og þeim gefið rúgbrauð
bakað í hrauninu. Síðasta daginn
var farið með gestina með flugi
upp á Uakka og þaðan að vatnsbóli
Vestmannaeyinga uppi undir
Eyjafjöllum. Einnig var dælustöðin
í Bakkafjöru beimsótt.”
Fréttir fengu tvo nemendur í spjall,
þau Kaisa Mustonen sem er í
menntaskólanum (Lyseon Lukio) í
Joensuun í Finnlandi og Kufner
Marcus sem einnig er í menntaskóla
(Akademisches Gymnasium/AGI) í
Innsbruck í Austurríki. Þau vildu líka
koma á þakklæti fyrir hönd hópsins til
allra sem tóku á móti þeim í Vest-
mannaeyjum og stóðu að því að gera
þessaferð mögulega. Hún muni seint
líða úr minni."
Foruítnílegt samfélag
Kaisa Mustonen segist ánægð með
ferðina og að hún veki margar spurn-
ingar ekki bara um vatn, heldur ekki
síður um líf fólksins í plássi eins og
Heimaey. „Þetta er mjög ólíkt því
sem gerist í Joensuun fyrir utan það að
Heimaey er eyja og getur verið erfitt
að afla neysluvatns á slíkum stað,
enda skilst mér að það séu ekki nema
þrjátíu ár síðan Vestamannaeyingar
hættu að safna rigningarvatni af hús-
þökum og fengu vatn ofan af landi.
En mér mér hefur þótt Heimaey mjög
hrífandi og margt skemmtilegt að
skoða hér.“
Hvemig vaknaði áhugi þinn á þessu
verkefni?
„Ég er í námi í umhverfishagfræði
og líffræði og þegar ég frétti af því að
þetta verkefni stæði fyrir dyrum lá
beint við að taka þátt í því. Og allir
sem höfðu áhuga á því að taka þátt
áttu möguleika á því. Ég held að þessi
lönd sem taka þátt í verkefninu hafi
verið valin vegna þess hve ólík þau
eru. Þetta er verkefni sem staðið hefur
yftr í þrjú ár og er þetta síðasta árið
sem það er í gangi. Það er styrkt af
Evrópusambandinu, en einnig fengum
við styrki frá fyrirtækjum og sjóðum í
Finnlandi til þess að greiða niður
kostnað, en flugfarseðlana þurf-um
við að borga sjálf."
Kaisa hefur þó ekki verið við þetta
verkefni öll þrjú árin. heldur er þetta í
fyrsta skipti sem hún kemur að því.
„Námið í skólanum sem ég er í tekur
þrjú ár og það er alltaf hreyfing á
nemendum. Þeir útskrifast og svo
framvegis, en ég er á öðru ári í skól-
anum. Þetta hefur verið mikil hóp-
vinna sem hefur verið mjög gefandi
og skemmtileg og þó að tungumálin
séu ólík, þá hefur það ekki valdið
neinum vandræðum. Þetta er opið
Kaisa Mustonen.
ungt fólk sem hefur metnað og áhuga
á því sem það er að gera. Hins vegar
vissum við ekki að það yrði farið í
heimsókn til Islands. Það kom síðar
inn í myndina og er kannski smá
óvæntur bónus nú þegar verkefninu
fer að ljúka. Einnig mun það vera í
undirbúningi að íslenski hópurinn fari
til Innsbruck í september. en það er
ekki Ijóst enn þá hvort finnski hóp-
urinn fer þangað.“
Hópurinn hefur farið í skoðunar-
ferðir um Heimaey til þess að sjá
hvemig vatnsins er aflað og það kerfi
og tækni sem notuð er til þess að
koma því til neytenda. „Við skoð-
uðum Bæjarveitumar og hvemig allt
er tölvustýrt þar frá einum stað.
Einnig skoðuðum við vatnstankinn og
þegar við förum aftur upp á land
munum við skoða dæluhúsið uppi á
Bakka. En auðvitað höfum við líka
skoðað eitt og annað sem kemur
kannski ekki verkefninu beint við, eins
og þjóðgarðinn á Þingvöllum. sem þó
er mjög áhugaverður út frá
vatnsfræðilegum sjónarhóli. Einnig
fómm við í Bláa lónið.“
Kaisa segir að vatnið í Joensuun
komu úr berglögum djúpt í jörðu og
því sé dælt upp á yfirborðið og þaðan
íhúsin. Hún segir að þó að Finnland
sé stundum kallað Þúsundvatnalandið,
þá sé neysluvatnið ekki yfirborðsvatn
í Joensuun. „Vatn sem fengið er úr
jörðu er miklu hreinna og ferskara. en
ef það fengist úr vötnum, og lindum.
eða sem rigningarvatn. Hins vegar er
vatnið ekki alls staðar gott í Finnlandi.
eins og til dæmis í Helsinki. þá finnst
mér það betra í Joensuun."
Eigið þið svo að skila einhverri
skýrslu um niðurstöður verkefnisins?
„Já bæði í skólanum og einnig
munum við skrifa grein um ferðina í
dagblaðið í Joensuun sem heitir Karja-
lainen og ber nafn af sveitarfélaginu.
Og ég hlakka mjög til þess.“
Hvemig finnst þér vatnið hér í
Heimaey?
,,Mér finnst það mjög gott hér og
ftnn lítinn mun á þvf og uppi á landi,
þó flnnst mér það einhvem vegin öðm
vísi í Reykjavík. en ég get ekki skil-
MarcusKufner
Stóðu sig vel
í Ameríku-
keppni
sýningar-
stúlkna
Vestmannaeyjastúlkurnar Val-
gerður Sigurjónsdóttir 16 ára,
Ester Helga Sæmundsdóttir 18 ára
og Guðný Sigríður Gísladóttir 15
ára slógu heldur betur í gegn í
Ameríkukeppni sýningarstúlkna
1998, því þær fengu allar
samninga við umboðsskrifstofur
crlendis og fá því að spreyta sig við
fyrirsætu- og sýningarstörf í
London, París og New York í
sumar og komast í skóla þar sem
þær fá frekari þjálfun í faginu.
Stúlkumar tóku þátt í Ameríku-
keppninni á vegum Módelskóla John
Casablancas og sagði fulltrúi Casa-
blancas á Islandi, Kolbrún Aðal-
steinsdóttir. að þetta væri mikill sigur
fyrir Vestmannaeyjar og ímynd
Éyjtinna jafnt hér heima sem erlendis.
Stúlkumar segja að þær hafi verið
valdar úr hópi stúlkna fyrir ári síðan
til þess að taka þátt í keppninni. Sjálf
Ameríkukeppnin var svo haldin í
New York um páskana, þar sem þær
náðu þessum frábæra árangri.
Þær segjast vera mög ánægðar og
Ester segir að hún sé varla komin
niður á jörðina ennþá. Hins vegar
langi þær allar til þess að spreyta sig
á þessu sviði og þær hafi stuðning
foreldra sinna til þess.
Kolbmn Aðalsteinsdóttir verður í
Eyjum þann 9. maí nk. þar sem hún
muni verða til viðtals á Pizza 67 og
velja stúlkur í næstu keppni að ári.