Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Side 1
Fögnuður sjálfstæðismanna var mikill þegar fyrstu tölur komu í bæjar-stjórnarkosningunum
á laugardaginn. Þeir gátu líka vel við unað því þeir héldu meirihlutanum. Alls greiddu 2823
atkvæði af 3165 og var kjörsókn 89,19%. D-listi Sjálfstæðisflokks fékk 1593 atkvæði eða
58,89% og V-listi, listi Bæjar-málafélags Vestmannaeyjalistans fékk 1112 atkvæði eða 41,11 %.
Auðir seðlar og ógildir voru 118. Sjá bls. 8 og 15.
Geir q Reynistað færir útkvíarnar:
Opnar verslun
á Selfossi
Geir Sigurlásson, eigandi hús-
gagnaverslunarinnar Reynistaðar í
Vestmannaeyjum, mun opna hús-
gagnaverslun á Selfossi næst-
komandi laugardag.
Gísli Geirsson starfsmaður á Reyni-
stað segir að þeir hafi tekið 350m2
húsnæði á leigu undir starfsemi sína á
Selfossi að Austurvegi 56 og líti
nokkuð björtum augum á þessa tilraun
til reksturs húsgagnaverslunar á
Selfossi. „Til skamms tíma hefur
engin húsgagnaverslun verið rekin á
Suðurlandi, ef frá er talin verslunin
Reynistaður hér í Eyjum og þar af
leiðandi á Suðurlandi. Við teljum
þetta vænan kost, bæði til þess að efla
þjónustuna við fbúa á Suðurlandi og
ekki síður eykur þetta möguleika
okkar á að flytja meira inn sjálfir og
lækka vöruverð bæði hér í Eyjum og á
Suðurlandi. Jafnvel er hugsanlegt að
taka inn meiri vöru gegnum Eyjar í
stað þess að fara gegnum Reykjavík
með allan flutning."
Gísli segir að tveir starfsmenh muni
verða á Reynistað á Selfossi og hann
vonist til þess að Sunnlendingar muni
taka vel í þessa þjónustu.
Björn ivar
segirupp
Björn Ivar Karlsson, skurð-
læknir og yfirlæknir skurðdeild-
ar Sjúkrahússins, hefur sagt
starfi sínu lausu.
Björn staðfesti þetta við Fréttir í
gær og miðast uppsögn hans við
næstu mánaðamót og er uppsagnar-
frestur þrír mánuðir. „Ég er búinn
að starfa hér frá árinu 1975 og þetta
er algjörlega mín ákvörðun. Hvort
ég hyggst flytja héðan veit ég ekki
og hef ekki meira um þetta að
segja.," sagði Bjöm.
Karl Gauti Hjaltason ráðinn sýslumaður
Karl Gauti Hjaltason fulltrúi sýslu-
manns á Selfossi hefur verið
skipaður sýslumaður í Vestmanna-
eyjum frá og með 1. júlí í ár. Karl
Gauti hefur starfað sem fulltrúi
sýslumanns á Selfossi undanfarin
sjö og hálft ár, en þar áður hafði
hann verið rúmt ár fulltrúi sýslu-
mannsins í Kefiavík en í niillit íðinni
starfaði hann hjá ríkisskattanefnd.
Einnig hefur Karl Gauti starfað að
félagsmálum í íþróttahreyfingunni
og verið formaður Karatesam-
bandsins.
Karl Gauti segist hlakka til að koma
til Vestmannaeyja og takast á við nýtt
og krefjandi starf. „Embættið í Vest-
mannaeyjum hefur verið talið eitt af
fimm til tíu stærstu sýslumannsem-
bættum á landinu svo að ég tel að
þessi ráðning sýni ákveðið traust á
mér og mínum verkum."
Karl Gauti hefur búið í Kópavogi
þrátt fyrir að vinna hjá sýslumann-
inum á Selfossi. Það er því freistandi
að spyrja hann hvort hann muni búa
þar áfram þó hann hafi fengið em-
bættið í Vestmannaeyjum.
„Ég átti nú von á því að ég yrði
spurður að þessu. Svarið er að sjálf-
sögðu nei. Ég og ijölskylda mín mun-
um að sjálfsögðu flytja til Eyja. Ég
hef komið til Eyja nokkrum sinnum
og mér hefur þótt fallegt þar og haft
góð kynni af Éyjamönnum. Ég efast
því ekki um að okkur muni koma til
með að líða ágætlega þar.“
Aðal verkefni Karls Gauta hjá sýslu-
manninum á Selfossi hafa snúist um
ákærur, sektir og dóma, og ýmis
lögreglumál. „Ég veit ekki hvort þessi
mál vega eitthvað þyngra varðandi
umsókn mína um embættið í Vest-
mannaeyjum en önnur störf mín. Það
má vel vera en það hefur ekki haft
nein úrslitaáhrif."
Er þetta að einhverju leyti pólitísk
ráðning? „Nei alls ekki. Þó ég sé í
Sjálfstæðisflokknum, þá hef ég ekki
sinnt neinu pólitísku starfi þar og er
alveg óbundinn af pólitík," segir Karl
Gauti að lokum
Eiginkona Karls Gauta, Sigurlaug
Stefánsdóttir starfar í Islandsbanka á
Suðurlandsbraut í Reykjavík og eiga
þau tvo syni, Kristófer 15 mánaða og
Alexander íjögurra ára.
Tilraun hjá okkur
Fréttirnáðu tali af Sigríði B. Guðjóns-
dóttur skattstjóra, sem sótt hafði um
sýslumannsembættið í Eyjum, en
jafnframt hafði eiginmaður hennar
séra Skúli Sigurður Olafsson sótt um
embætti sóknarprests Landakirkju.
Sigríður segir að hún hafi ekkert nema
gott um ráðningu Karls Gauta að
segja. „Ég tel Karl Gauta vel að þessu
starfi kominn og óska honum alls hins
besta. Umsókn mín um embætti
sýslumanns og eiginmanns míns um
prestsembættið var tilraun hjá okkur
báðum til þess að geta fengið störf
sem hentuðu okkar menntun og metn-
aði. Niðurstaðan er þessi og við unum
henni og óskum nýjum sýslumanni til
hamingju með starfið og einnig að
Vestmannaeyingar fái góðan og
gegnan sálusorgara.
Ráðinn maður með svipaða reynslu
Fréttir töluðu einnig við Jóhann
Pétursson héraðsdómslögmann, sem
er eini Vestmannaeyingurinn sem
sótti um embætti sýslumanns. Hann
segir að Karl Gauti sé án efa vel að
þessu starfi kominn. „Ég þekki Karl
Gauta ekkert persónulega en þarna er
ráðinn maður með svipaða reynslu og
ég. Ég sótti að sjálfsögðu um starfið
með það fyrir augum að fá það, en
Karl Gauti hefur verið metinn hæfari
og ég óska honum til hamingju með
þetta embætti.“ Jóhann Pétursson
segir að hann hafi fundið fyrir góðum
stuðningi Eyjamanna við sig varðandi
umsókn sína og vildi nota tækifærið til
þess að þakka þann stuðning og
velvild.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTOÐ:
Græðisbraut 1 - sími4813,
H
Sumaráœtlun Herjólfs
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alla daga nema sun.. Kl. 08:15 Kl. 12:00
sunnudaga Kl: 14.00 Kl: 18.00
aukaferð föstudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
Tieriólfur .BRUAR BILIÐ
Tterfinpiu Sími 481 2800 Fax 481 2991
Bókabúðin
Heióaivegi 9 - Sími 481 1434