Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Blaðsíða 15

Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 28. maí 1998 Fréttir 15 Pólitík í majónesi og ijóma Stjórmálaflokkar og stjórn- málasamtök beita ýmsum að- ferðum til að ná athygli kjós- enda. Þau stjórnmálasamtök sem buðu fram í Vestmanna- eyjum fyrir kosningarnar um síðustu helgi viðhöfðu fjöl- breytta nálgun við kjósendur, hvort sem það var á formi greina í blöð, heimasíðu á Intemetinu eða útvarps og hvers kyns skemmtidagskrár. Svo að sjálfsögðu voru bæði framboðin með kosningaskrifstofur þar sem alls kyns bakkelsi var til reiðu handa þreyttum og sársvöngum kjósendum. Telur sá er þetta skrifar að hann hafi aldrei séð jafn öflug veisluborð hlaðin jafn miklu mæjónesi og rjóma á jafn skömmum tíma og þessi kosn- ingabarátta tók yfir. Fer þó ekki sögum af neinum pólitískum matar- eitrunum af þess völdum. Ekki skal lagður dómur á það hversu áhrifarík þessi hlaðborð eru á nýja kjósendur, hins vegar er það ekki ósennilegt að þetta efli baráttuanda þeirra sem hafa þegar mótaðar pólitískar skoðanir. Því hvað er betra en að ræða mál andstæðinganna og sinna eigin fylgismanna yfir kaffibolla og Fjölbreyttu úrvali bakkelsis. En í 'iugum margra stendur trúlega hæst í flóru áróðursins svignandi hlaðborð, iem náði hámarki á sjálfan kosningadaginn. Röltu þá bæjarbúar milli kosningakaffihlaðborða fram- ooðanna og nutu þess að baða sig í ástúð flokkanna. Því leiðin að hjarta kjósenda liggur samkvæmt þessu, í gegnum magann, eins og svo margt annað. Ég fór á kosningaskrifstofur fram- boðanna nokkrum sinnum á þessum rétta mánuði sem hvað mestur „hiti“ var í kosningabaráttunni og allir vissir og eða óvissir um sigur í kosningunum sjálfum. Þannig mátti finna nokkum taugatitring á báðum stöðum, sem rokkaði frá sigurvissu niður í efasemdir um gengi. En eins og svo algengt var í svörum manna þegar þeir vom spurðir um væntingar og vonir þá var samt jákvæðnin yfirleitt yfirsterkari neikvæðninni. „Við finnum mikinn. mjög mikinn og þó nokkum meðbyr. Það er mikill baráttuandi í okkar herbúðum og við emm sannfærð um að halda meirihlutanum/vinna meirihlutann.“ Til þess að ná niður innri spennu sem margir frambjóðendur voru helteknir af gátu menn stillt á útvarpsstöðina sína, farið á skemmtikvöld hjá uppá- haldsframboðinu sínu, mætt á pylsu- og kamivalhátíð eða hvíslað einhverju í eyra samherja að stemma sig við hinn rétta baráttuanda. Frambjóð- endur vom einnig duglegir við að fara niður á höfn og sækja vinnu- staðafundi, ef ske kynni að eitthvert vafaatkvæði væri á sveimi. Bæði framboðin starfræktu út- varpsstöð. Vestmannaeyjalistinn út- varpaði allan sólarhringinn og var þar prímus mótor útvarpsfrömuðurinn Bjarki Bragason ásamt Guðmundi Kristinssyni. Hann sagði á föstudag- inn fyrir kosningadaginn þegar undir- ritaður kíkti inn í beina útsendingu að það væri mjög aukin hlustun. „Það er sama hvert maður kemur, það em allir að hlusta á stöðina okkar. Við höfum reyndar aðeins hlustað á Eyverja- Sjállstæðismenn uoru með sitt kosningakaffi í Kiwanishúsinu og Vestmannaeyjalistinn uar í Alhýðuhúsinu. Júlíus Theódórsson stjórnaði tökkum og tólum á útuarui Heímaey en á Birtunni aðstoðaði Bjarki Bragason Þorgerði odduita uið spilunina. stöðina og finnst hún frekar bamaleg, svo emm við með fullkomnari tæki. Við emm með fyrstu stafrænu út- varpssöðina sem starfrækt er í Vest- mannaeyjum, eftir því sem best er vitað. Við miðum dagskrána líka við kamivalið sem við ætlum að vera með núna seinnipartinn og vonum að við náum að hita upp fyrir það.“ Þegar undirritaður kom á staðinn var oddviti Vestmannaeyjalistans, Þor-gerður Jóhannsdóttir í beinni út- sendingu að létta fólki biðina. Hún var eingöngu í því að kynna lög, en blés ekki neinum pólitískum áróðri út á ljósvakann. „Þetta er fyrst og fremst skemmtistöð og dægradvöl íyrir unga fólkið,“ sagði Bjarki. , JÉ.g verð að senda Omari á Fréttum kveðju,“ sagði Þorgerður. „Bjarki, hvar er lagið með Páli Óskari. Þú manst lagið hvað heitir það aftur. Já Yndislegtlíf. Ég verð að senda Ómari kveðju með því.“ og svo hljómaði Yndislegt líf á ljósvakanum og í eyru hins vinnandi manns og plötu- snúðurinn dillaði sér með tónlistinni í X-V bol og var greinilega kominn í kamivalstemmningu. Ekki veit ég hvort Ómar heyrði nokkum tíma kveðjuna, eða hvort þetta var liður í einhverju pólitísku samsæri milli Frétta og Vest- mannaeyjalistans, enda það í sjálfu sér aukaatriði, þegar ekki er vitað um hlaðborð innan seilingar. Hvemig líst oddvitanum á stöðuna svona síðasta daginn fyrir kosningar? „Ég held að það komi til með að muna fímm atkvæðum þegar búið verður að telja upp úr kjörkössunum." Hvort fara þau á hægri eða vinnstri hendina? „Ekki spuming að þau fara á þá vinstri. Við emm bjartsýn og finnum meðbyr,“ segir Þorgerður. „Sígandi lukka er best.“ Ég gekk út úr útsendingunni og út á götuna. Það virtist vera að þykkna upp og ekki útlit fyrir að veðurguðimir ætluðu að verða á kamivalstultunum. Skyldi þetta vita á eitthvað stærra og meira og ég hugsaði um atkvæðin fimm. Ég lagði land undir fót og kom mér upp í Asgarð þar sem höfuðvígi íhaldsins er. Þar voru Eyverjar búnir að koma fyrir sinni útvarpsstöð, Utvarp Heimaey. Þegar ég kem inn er Einar Sigurðsson að tala við einhvem hlustanda sem var að biðja um óskalag, en ekki allir á eitt sáttir um það hvort hann væri á sjó eða landi að panta sitt óskalag. „Undir bláhimni, hverbiður um Undir bláhimni," segir Einar ásamt Júlíusi og er fullur hneykslunar og heilsar komumanni. Hvemig gengur útvarpsstöðin, er mikil hlustun og samkeppni milli þessara stöðva sem framboðin em með? , Já það er alltaf að aukast hlustunin, segirÉinar. Við heyrum það þar sem við komum, að fólk hlustar mikið á stöðina. Við erum líka með betri sendi en hin stöðin og náum lengra. Við reynum að vera í beinu sambandi við fólk, en um beina samkeppni er ekki að ræða held ég.“ Einar segir að þetta sé ekkert áróðursútvarp, sem Eyverjamir séu með. „Hins vegar hafa frambjóðendur komið í viðtöl, en við leggjum aðal- lega upp úr því að vera með góða tónlist sem allir geta hlustað á.“ Hvemig finnst ykkur kosninga- baráttan undanfama daga hafa verið? „Mér heyrast þeir vera hálf ör- væntingafullir hjá V-listanum og ekki mjög málefnalegur málllutningur," segir Júlíus. „Og þetta bjórmál uppi í Ásgarði, sem þeir ætluðu að gera einhverja sprengju úr er bara rugl,“ segir Einar. „Að minnsta kosti er ekkert af þessu unga fólki, sem á að hafa verið að drekka bjór, með bjór fyrir framan sig ámyndinnisem birtist íFylki. Þetta er eins og hvert annað upphlaup, sem enginn getur tekið mark á.“ Svo mörg vom þau orð og ekki laust við að mér þætti ég kominn í hring. Á efri hæðinni vom nokkrar konur að setja kort í umslög. Þær sögðust hafa góða tilfmningu fyrir sigri síns flokks í kosningunum, enda mikil vinna búin að vera í gangi með það að markmiði að tryggja, að fólk mætti á kjörstað og ekki síður ef takast mætti að snúa einhverjum til betri vegar á síðustu stundu. Benedikt Gestsson.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.