Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Blaðsíða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 28. maí 1998
Aukin víðsýni og umbu
lyndi í samskiptum við
-Er megintilgangur náms ásamt því að auka skilning okkar á ui
virðingu fyrir því, sagði skólameistari Framhaldsskólans í skc
Á laugardaginn var Fram-
haldsskólanum slitið og lauk
þar með formlega 19. starfs-
ári skólans sem að mati
skólameistara hefur að ýmsu
leyti verið sérstakt og ber þar
fyrst að telja sameiningu
Stýrimannaskóla og Fram-
haldsskóla. Alls útskrifuðust
48 nemendur frá FIV að
þessu sinni. Þar af voru 15
stúdentar og átta úr öðru stigi
skipstjómamámsins.
Ólafur H. Sigurjónsson, skólameistari,
gerði sameiningu Framhaldsskólans
og Stýrimannskólans að umtalsefni í
upphali skólaslitaræðu sinnar. „Þó að
ákvörðun um sameininguna hafi verið
tekin haustið 1996, var það fyrst í
vetur sem reyndi á framkvæmdina. Eg
met veturinn þannig að vel hafi tekist
til og nemendur séu fremur sáttir
þegar upp er staðið. Samstarlið við
kennara skipstjómarbrautar hefur
gengið vel og þakka ég þeim fyrir það.
Framtíðarverkefni okkar sameiginlega
er að tryggja það að hér verði áfram
hægt að stunda nám skipstjórn-
armanna svipað og verið hefur,“ sagði
Ólafur.
Ólafur sagði að tjöldi nemenda sem
hóf nám í haust haíi aldrei verið meiri.
„Fómm við yfir 300 nemenda markið.
Á vorönn hafa verið heldur færri eða
um 260 nemendur. Fjölmennustu
námsbrautirnar em náttúrufræðibraut
og félagsfræðibraut en þeim lýkur
báðum með stúdentsprófi. Það má
vera okkur nokkuð umhugsunarefni
hvort nemendur í bóknámi séu ekki ol'
margir og nemendur í verknámi of
fáir.“
K-neminn
Ólafur sagði að skólastarfið hafi í
aðalatriðum gengið vel og mikill
meirihluti nemenda hafi reynst
duglegt fyrirmyndarfólk á fjöl-
breyttum aldri. „Svörtu sauðirnir eru
auðvitað til innan um eins og er í
hverri hjörð. En við látum þá ekki
verða aðalatriðið í dag, því þetta er
einmitt dagurinn til að gleðjast yfir því
sem vel ergert. Af því tilefni kynni ég
ykkur fyrir ágætum nemanda, sem við
skulum kalla x-nema. Hann hefur átt
misjöfnú gengi að fagna en alltaf verið
bjartsýnn og ótrauður lagt í hverja
þraut. Eg er svo lánssamur að eiga í
fórum mínum sum af þeim svörum
sem hann hefur látið frá sér fara í
prófum og ritgerðum. Til dæmis þetta
úr ritgerð um Abraham Lincoln:
„Móðir Lincolns dó í æsku, en
Lincoln fæddist í bjálkakofa sem hann
hafði sjálfur byggt. Kvöld eitt árið
1865 fór Lincoln í bíó og var skotinn
til bana í sæti sínu af einum leikara í
myndinni. Hinn meinli morðingi John
Wilkes Booth var geðveikur leikari,
en þetta eyðilagði feril hans.“
Ölafur sagði að þegar litið væri yfir
veturinn kæmu í Ijós bæði plúsar og
mínusar. Nefndi hann þrennt sem
hann sagði að laga þyrfti. „í fyrsla lagi
eru það kennaramálin, en nú er
kennaraskortur í vissum greinum, t.d.
sérgreinum vélstjóra. Einnig er
fullmikið vinnuálag á marga kennara.
Halda þarf áfram að bæta menntun
kennaranna og fækka þeim sem ekki
hafa kennsluréttindi. Nú stunda
nokkrir af föstu kennurunum rétt-
indanám af kappi og er það vel.
Okkar ágæti x-nemi var eitt sinn að
lýsa einum þekktasta kennara allra
tíma, Sókratesi og sagði: „Sókrates var
frægur grískur kennari, sem gekk um
og gaf mönnum góð ráð, þeir drápu
hann.“
Næst nefndi Ólafur agaleysi sem
vart yrði við, bæði í námi og félagslífi
nokkurs hluta nemenda. „Skólinn
hefur verið að móta ákveðnar reglur
þar að lútandi og hefur t.d. nýlega sett
sér áætlun í vímuvörnum. Hinsvegar
er því ekki að leyna að hér er einnig á
ferðinni skortur á sjálfsaga. Nemendur
eru margir hverjir alltof góðir við
sjálfa sig og láta það eftir sér að fylgja
ekki þeim reglum sem skólinn,
heimilin eða þeir sjálfir hafa sett.
Sjálfsaga verða menn að temja sér,
áður en haldið er til starfa í
atvinnulífinu, eða í framhaldsnám,
ekki síst háskólanám," sagði Ólafúr og
nefndi í þriðja lagi húsnæðismálin.
„Þrátt fyrir að við höfum eignast
myndai'legt verknámshús, þari' skólinn
meira pláss, auk þess að gamla húsið
sárvantar viðhald. Nú er komin
hreyfing á þetta mál og henni þarf að
fylgja eftir.“
Þaðjákvæða
Af því jákvæða og því sem vel hefur
gengið nefndi Ólafur gott gengi
nemenda í námi sem líta yrði á sem
aðalatriði í skólastarfinu. „Mikið af
mjög sterku og góðu námsfólki er í
skólanum og víða mátti sjá háar
einkunnir á þessu vori. Þetta er
sérstakt fagnaðarefni og ekki síður
gott gengi margra nemenda er við
höfum útskrifað, bæði í námi annars
staðar og í starfi á ýmsum víg-
stöðvum. Aðsókn að skólanum er
vaxandi, þrátt fyrir fækkun íbúa, en
reyndar mismunandi eftir nárns-
brautum.
Félagslíf nemenda hefur einnig
blómstrað og er á uppleið, þó ekki sé
framkvæmdin alltaf hnökralaus.
Skólinn hefur í vetur haldið áfram
samstarfi við tvo erlenda framhalds-
skóla, í Austurríki og Finnlandi. Nú í
vor fengum við heimsókn 20 manna
hóps nemenda og kennara frá þessum
skólum og tóku nemendur okkar og
kennarar á móti þeim í gistingu og
fjölbreytta dagskrá. Þetta er hið
svonefnda vatnsverkefni og hafa
okkar nemendur nú sett sér það
markmið að endurgjalda þessa heim-
Nýútskrífaðír stúdentar setia upp hvítu kollana.
Magnús Kristinsson, formaður Útvegsbændafélagsins, ásamt premur
nemum sem útskrifuðust af 2. stigi skipstjórnanámsins.
Myndir Sigurgeir Jónasson.
Ragnar Eðvaldsson flutti ávarp fyrir hönd nemenda.
Viðurkenningar fyrir námsárangur
Eftirtaldir fengu viðurkenningar fyrir árangur í námi: Anna Kristín Birkisdóttir,
Svetrir Haraldsson og Tinna Tómasdóttir fengu bækur ffá þýska sendiráðinu
fyrir góðati árangur í þýsku. Fyrir góðan árangur í verslunargreinum á
versluntuprófi fékk Björk Steingrímsdóttir bók frá Endurskoðun Sig.
Stefánssonar. Orri Jónsson á 2. stigi véistjómarbrautar hlaut bæði véistjóraúrið
frá Vélstjórafélaginu fyrir vélstjómargreinar og vandað mælitæki fyrir
rafmagnsfi'æðigreinar frá Geisla.
Á skipstjómarbraut 2. stig fékk Óiafur Ólafsson bók frá Rotary íyrir árangur
í íslensku og Trausti Bergland Traustason fékk loftvog frá Sigurði Einarssyni
og sjónauka frá Útvegsbændafélaginu fyrir góðan námsárangur. Á
sjúkraliðabraut fengu allir útskriftarnemamir sex Nýja Testamentið frá
Gideonfélaginu. Á stúdentspróf fékk Aldís Helga Egilsdóttir viðurkenningu
fyrir mjög góðan árangur á stúdentsprófi og Sigurður Bragason fékk bækur frá
skólanum fyrir félagsstörf. Nemendafélagið gaf skólanum hljóðkerfi í sal
skólans og afhenti Sigurður Bragason skólameistara gjafabréf fyrir því.
Fulltrúi nýútskrifaðra sjúkraliða Þórunn Halldórsdóttir athenti skólanum mynd
af hópnum.