Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Síða 6

Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Síða 6
6 Fréttir Fimmtudagur 28. maí 1998 Samkór Vestmannaeyja: Mjög góðir tónleikar Samkór Vestmannaeyja hélt sína ár- legu vortónleika sl. miðvikudag. A dagskrá kórsins voru 14 lög, bæði eftir innlenda og erlenda höfunda. Fyrst á dagskránni var sænska lagið Vorvindarglaðir. Smávegis óstyrkur virtist hrjá kórlélaga og ekki óeðlilegt í fyrsta lagi, harmonían skilaði sér ekki sem skyldi. Svo tóku við tvö Eyjalög el'lir Oddgeir, Heima og Sólbrúnir vangar. I fyrra laginu var eins og frumsýningarskjálftinn væri enn til staðar en í seinna laginu voru allir búnir að ná honum úr sér og það var virkilega fallega flutt. Þá var flutt lag Hafsteins Guðfinns- sonar, Pípan, við ljóð Ragnars Inga Aðalsteinssonar. Þama var á ferðinni ný útsetning þeirra hjóna, Báru Gríms- dóttur og Eyvindar Steinarssonar. Lagið er gott, textinn sömuleiðis og þessi útsetning var ákallega skemmti- leg, svona í anda The Flying Pickets og endaði á virkilega fílharmonískum hljómi. Næst voru tvö nútímalög á prógramminu, annað eftir Burt Bacharat (sem er orðinn fastur liður á dagskrá samkóra um víða veröld enda tónskáld með miklum ágætum), hitt lagið var jazzperlan sígilda, Misty eftir Errol Garner, ákaflega fallega flutt (enda ekki hægt að klæmast á þessu dásamlega lagi). Ólafur Týr Guðjóns- son, bassasöngvari, sá um kynningar á i þessum tónleikum og fórst það vel úr hendi. Raunar fannst undirrituðum sem kynningarnar hefðu í sumum tilvikum mátt vera viðameiri en aðall góðra tónleika er að þeir gangi hratt og vel fyrir sig og þá á hið sama að sjálfsögðu við um kynningar, þær mega ekki verða of langdregnar.. Lag eftir þá Lennon og McCartneý var að sjálfsögðu á dagskránni, Can’t buy me love. Þetta var í útsetningu Keith Abbs, alveg frábærlega fallegri madrígalaútselningu og svolítið jóla- legt. Að mati undirritaðs besta lag tónleikanna. Hann dauðlangaði til að biðja um endurtekningu á því í lokin en þar sem ákveðinn aðili í Vest- mannaeyjum hefur orðið einkarétt á slíku, lagði hann ekki í það. Raunar bað sá ekki um endurflutning á neinu lagi (hefur kannski ekki verið á tónleikunumum). Þá var komið að frumflutningi á lagi Báru Gn'msdóttur, stjómanda Samkórsins, við texta Guðbergs Bergssonar, Festingin. Þetta er frá- bærlega skemmtileg tónsmíð sem gerir miklar kröfur til llytjenda. Fyrir svo sem ftmm öldum hefði þessi tónsmíð verið bönnuð, þar sem tónbilin í henni voru talin frá hinum illa komin, kölluð „diabolis in musica“ og kaþólska kirkjan bannaði slíkan tónlistarflutning. En í Safn- aðarheimili Landakirkju hljómaði þetla al veg dásamlega og engar óguð- legar hugsanir sem komu upp í hugann við flutninginn. Næst tlutti kórinn alþekkt hollenskt lag, „Tulips uit Amsterdam“ við texta undirritaðs. Raunar voru það aðeins karlaraddirnar sem sungu og fórst það vel úr hendi. Þá var farið á léttari strengi í lokin, Summertime Gersch- wins í léttjassaðri útsetningu. Þar tóku þrír gamlir nemendur undirritaðs syrpu og sýndu að þær hafa engu gleymt í sönggleði síðan þær sungu í kór hjá honum á barnaskólaárrunum. I lokin lék svo hljómsveit með kómum í þremur lögum. Þar bar hæst saxófónleik Andra Eyvindssonar en eftir áreiðanlegum heimildum mun hann hafa verið dubbaður upp til náms á það hljóðfæri vegna þessara tón- leika. Hann komst prýðilega frá sínu, ásamt raunar öðrum í hljómveitinni. I lok tónleikanna færði Unnur Tómasdóttir, formaður menningar- málanefndar, Báru Grímsdóttur blómvönd og sömuleiðis undirrituð- um fyrir hans framlag. Þá færðu kórfélagar Hjálmfríði Sveinsdóttur, skólastjóra Barnaskólans, gjöf vegna velvildar skólans til kórsins en hann hefur haft þar aðstöðu til æfinga fram til þess er hann fékk inni í Lista- skólanum. Samkór Vestmannaeyja er kominn til að vera, það er á hreinu. Hann er enn ekki kominn í röð bestu kóra á landinu en stendur vel fyrir sínu. Bára Grímsdóttir, stjómandi kórsins, hefur unnið frábært starf og vonandi fáum við að njóta starfskrafta hennar og þeirra hjóna beggja en Ey vindur leikur stórt hlutverk með kómum, bæði sem söngvari og hljóðfæraleikari. Hafið bestu þakkir fyrir indælt kvöld. Sigurg. Skólamálaráð veitir viðurkenningar Á myndinni sem tekin var við þetta tækifæri, fr.v. Sigurður R. Símonarson, Sólrún Bergþórsdóttir fulltrúi kennara, Eygló Björnsdóttir tölvukennari í Barnaskólanum Hjálmfríður Sveinsdóttir skólastjóri Barnaskólans Una Þóra Ingimarsdóttir fulltrúi foreldrafélags Barnaskólans, Arnar Sigurmundsson formaður skólamálaráðs. Á síðasta fundi skólamálaráðs síðastliðinn miðvikudag samþykkti ráðið að veita Eygló Björnsdóttur kennar viðurkcnningu fyrir fram- úrskarandi árangur við uppbygg- ingu og stjórnun töivukennsiu í grunnskólum Vestmannaeyja á undaniörnum árum. Upphæð styrksins nemur einum mánaðarlaunum giunnskólakennara í launaflokki 147, efsta þrepi og kemur til útborgunar við upphaf næsta skólaárs, en þá hyggur Eygló á fjarnám í tölvu- og upplýsingatækni við Kennaraháskóla Islands. Við sama tækifæri var Hjálmfríði Sveinsdóttur skólastjóra Barnaskól- ans afhentur blómvöndur og henni þakkað starf hennar við að koma af stað hinum svo kölluðu vinahringjum í Bamaskólanum sem varð til þess að Bamaskólinn hlaut Foreldraverðlaun Heimilis og skóla nú í ár. Fyrir börn 5 ára og eldri hefst þriðjudaginn 9. júní og lýkur þriðjudaginn 30. júní. Innritun fer fram í afgreiðslu Sundlaugar mánudaginn 8. júníkl. 10:30-12:30. Námskeiðsgjald kr. 2.500,- greiðist v/innritun. Sundkennari verður Katrín Magnúsdóttir íþróttakennari íþróttamiðstöðin Vestmannaeyjum Vinnuskólinn hefst á þriðjudag Raðað verður niður í vinnuhópa, hjá vinnuskólanum, næstkomandi þriðjudag, 2. júní klukkan 13:00 við Barnaskólann og eiga þeir að mæta sem ætla að vinna fyrri hluta sumars í vinnuskólanum. Starfsemin hefst svo af fullum krafti daginn eftir. Fundur með flokksstjórum Vinnuskóla Flokksstjórar vinnuskólans eru boðaðir til fundar í Félagsheimilið, á morgun, föstudag klukkan 17:00. Könnun á atvinnuhorfum ungmenna. Ákveðið hefur verið að kanna hvaða ungmenni f. 1982 og fyrr hafa ekki fengið sumarvinnu. Skráning vegna þeirra stendur nú yfir og geta þeir sem þess óska skráð sig í Ráðhúsinu. Skráningunni lýkurfimmtud. 4. júní nk. Barnaskólinn - skólaslit Skólaslit verða föstudaginn 29. maí sem hér segir: 1. og 2. bekkur kl. 13:30 3. og 4. bekkur kl. 13:00 5.-7. bekkirkl. 11:30 8. og 9. bekkur kl. 11:00 Skólaslit hjá 10. bekk verða fimmtudaginn 28. maí kl. 18:00 Skólastjóri Gæsluvöllur við Miðstræti Opið verður frá kl. 13.00 - 17.00 tímabilið 1. júní til 31. ágúst 1998. Munið nestistímana. Verslunar- menn athugið! Eftirtaldar vikur eru lausar í sumarbústað í Uthlíð Biskupstungum: 5 - 12 júní, 12 - 19 júní, 26 júní - 3 júlí, 21-28 ágúst og 28 ágúst - 4 september. Upplýsingar gefnar á skrifstofunni f.h. eða í síma 481 3091 Barcelona - Benidorm - Costa del Sol - Heimsferðir, umboð í Eyjum - Straumur s. 481-1119

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.