Fréttir - Eyjafréttir - 28.05.1998, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 28. maí 1998
SiálfStæðismenn átirirædir
siguruegar kosnlnganna
Sjálfstæðismenn eru ótvíræðir sigurvegarar bæjarstjómarkosninganna á
laugardaginn. Þeir halda meirihluta bæjarfulltrua og bættu við sig fylgi.
Vestmannaeyjalistinn náði ekki því takmarki sínu að fella meirihluta
Sjálfstæðisflokks en oddviti hans telur sig geta vel við unað. V-listinn hafi
bætt við sig manni og náð helmingi meira af fylgi H-listans en D-listi þrátt
fyrir að H-Iistinn hafi verið klofningur úr Sjálfstæðisflokknum í
kosningunum 1994.
Kosningarnar á laugardaginn vom um margt sérstæðar í
Vestmannaeyjum. Fyrir það fyrsta voru aðeins tveir listar í boði, listi
sjálfstæðismanna og Vestmannaeyjalistinn. Þartil íkosningunum 1994
höfðu fjórflokkarnir, Alþýðul'lokkur. Alþýðubandalag, Framsókn og
Sjálfstæðisflokkur, verið nær alls ráðandi og snerust kosningar yfirleitt
um hvort sjálfstæðismenn næðu meirihluta eða ekki. Fyrir kosningarnar
1994 tókst A-flokkunum og Framsókn að stilla saman strengi sína í
Vestmannaeyjalistanum og hefðu framboðin þá orðið tvö ef ekki hefði
komið til klofningsframboðs H-listans úr Sjálfstæðisflokknum. Til þess
kom ekki nú og því voru valkostir kjósenda ótvíræðir, D-listi eða V-listi.
Niðurstaðan núna varð sú að Sjálfstæðisflokkurinn heldur meirihluta
sínum, þriðja kjörtímabilið í röð. Hefur það ekki gerst í áratugi.
Þriðja atriðið sem vekur athygli er mikil endurnýjun í bæjarstjóm. Hjá
sjálfstæðismönnum koma Sigurður Einarsson og Sigrún Inga
Sigurgeirsdóttir inn ný. Reyndar kemur Sigurður aftur inn í bæjarstjórn
eftir að hafa hvílt sig í eitt kjörtímabil en Sigrún Inga er alveg nýtt andlit á
þessum vettvangi. Hjá Vestmannaeyjalistanum em Þorgerður
Jóhannsdóttir og Guðrún Erlingsdóttir nýjar í bæjarstjóm.
í íjórða og síðasta lagi em konur í fyrsta skipti í meirihluta í bæjarstjóm.
Þær eru Elsa Valgeirsdóttir og Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir á D-lista og
Þorgerður og Guðrún á V-lista. Karlamir eru Guðjón Hjörleifsson og
Sigurður Einarsson á D-lista og Ragnar Oskarsson á V-lista.
Efst í huoa pakklætí
Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri og
fjórði maður á lista Sjáifstæð-
isflokksins, segir að sér sé efst í
huga þakklæti fyrir það traust seni
lýsi sér úrslitum kosninganna.
„Þetta er fyrst og fremst sigur allra
frambjóðenda listans en við emm með
góðan og samstilltan hóp sem ég er
fullviss um að á eftir að verða trausts-
ins verður,“ segir Guðjón.
Hann segir að sjálfstæðismenn haft
orðið að leggja störf sín í bæjarstjórn
sl. átta ár í dóm kjósenda og gera grein
fyrir því hvemig þeir ætluðu að starfa
næstu fjögur árum. „Úrslitin sýna að
þetta hefur tekist og við höfum staðist
próf kjósenda.“
Guðjón segir að kosningabaráttan
haft verið málefnaleg af þeirra hálfu
og það haft átt sinn þátt í að skapa
sjálfstæðismönnum það traust sem
komi fram í kosningunum. „Við
fórurn ekki þá leið að klippa á borða
til hægri og vinstri eða taka
skóflustungur þó ýmislegt sé í
burðarliðnum. Okkur var t.d. í lófa
lagið að setja hrygg í framkvæmdimar
á Hraunbúðunt og búningsaðstöðuna
við Hásteinsvöll. Það hefði kostað
mikla peninga og fólk er löngu farið
að sjá í gegnum svoleiðis uppá-
komur."
Þá sagði Guðjón að framundan
væru uppgangstímar undir forystu
sjálfstæðismanna. „Eg sé fyrir mér
margt spennandi í atvinnulífinu sem á
eftir að koma upp á yfirborðið á
kjörtímabilinu. Svo vil ég nota þetta
tækifæri til að þakka öllum þeim
fjölmörgu sem tóku þátt í
kosningabaráttunni með okkur fyrir
þeirra framlag,“ sagði Guðjón.
m*
Siguróur Einarsson, sem hér er ásamt Guðbjfirgu Matthíasdóttur eiginkonu sinni, uar fljótur að átta sig á stöðunni begar
fyrstu tölur frá Vestmannaeyjum komu í sjónuarpinu.
Kiósendur treysta okkur
-segir Sigurður Einarsson oddvifi sjálfstæðismanna
„Ég er mjög ánægður með úrslitin
en í þeim finnst mér koma fram
traust bæjarbúa á framboðslista
sjálfstæðismanna í kosningunum,“
sagði Sigurður Einarsson efsti
maður á lista Sjálfstæðisflokksins
þegar úrslitin lágu fyrir á laugar-
dagskvöldið.
Hann sagði þetta mikla traust verða
bæjarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins
gott veganesti inn í nýtt kjörtímabil.
„Eg vil koma á framfæri þakklæti til
allra sem kusu okkur og eins þeirra
sem lögðu hönd á plóg í kosn-
ingabaráttunni en þeir eru fjölmargir.
Framundan eru spennandi tímar og
við vonumst til að verða þessa trausts
verðir. Munum við gera okkar besta til
að bæjarbúar verði ekki fyrir von-
brigðum.“
Sigurður segir að kosningabaráttan
hafi verið stutt og frekar málefnaleg.
„Fólk hafði líka meiri áhuga en rnaður
gerði sér grein fyrir og kemur fram í
góðri kjörsókn. Við sjálfstæðismenn
reyndum að vera málefnalegir og
vekja athygli á þeim atriðum sem
skildu að framboðin. Hefur það greini-
lega tekist.“
Sigurður segist sjá ákveðin skilaboð
í auðum og ógildum seðlum sem vom
venju fremur margir. ,.í allt eru 113
seðlar auðir sem sýnir að fólk er ósátt
við báða framboðslistana. Það hefur
þó ekki viljað ganga svo langt að
kjósa hinn listann." sagði Sigurður.
Get ekkí uerið annað en sátt
-segir Þorgerður Jóhannsdóttir oddviti Vestmannaeyjalistans
Þorgerður, Guðrún, Lára og Magnús Sigurðsson eiginmaður Þorgerðar á
kosningauökunni.
Þorgerður Jóhannsdóttir, sem
leiddi Vestmannaeyjalistann, segist
í raun vera mjög ánægð með
útkomuna þó ekki hafi tekist að
fella meirihluta sjálfstæðismanna í
þessum áfanga.
„Við náðum þriðja manninum frá
H-listanum sem var klofningsfram-
boð úr Sjálfstæðisflokknum í kosn-
ingunum 1994. Auðvitað hefðum við
viljað ná meirihlutanum en við
tökum þetta í áföngum. Eg get ekki
verið annað en ánægð með að okkur
skyldi takast að ná tæplega 42% fylgi
sem segir okkur að tæplega
helmingur bæjarbúa er ánægður með
það sem við höfum fram að færa,“
segir Þorgerður.
Hún segir að Vestmannaeyjalistinn
hafi leitt kosningabaráttuna og náð að
setja mark sitt á það kjörtímabil sem
nú tekur við. „Við vorum fyrri til að
koma fram með listann þar sem jöfn
skipting er milli kynjanna. Það hafði
sín áhrif á sjálfstæðismenn sem
verður til þess að konur eru í fyrsta
skipti í meirihluta í bæjarstjóm Vest-
mannaeyja. Við vorum líka fyrri til
að birta stefnuskrá og það fer ekki á
milli mála að hún hafði áhrif
sjálfstæðismenn. Eins og kom fram í
Fréttum eru ekki nema tvö atriði sem
skilur að stefnur framboðanna. I
fyrsta lagi er það að bjóða fram
bæjarstjóraefni og í öðru lagi að við
vildum leggja tínrabundið fé í ný
fyrirtæki en þeir ekki,“ segir Þor-
gerður og segist ekki sjá annað en að
bjart sé franrundan því allt annað sé á
svipuðum nótum.
„Nú hljótum við að fara að sjá líf í
miðbænum, nýtt samkomuhús og
endurbætur á íþróttamannvirkjum.
Auk þess að að farið verði að styrkja
og styðja við atvinnulífið í gegnum
Þróunarfélagið."
Þorgerður segist vilja leggja á-
herslu á að framundan sé mikið starf
og Bæjarmálafélagið ætli sér stóra
hluti í stjómmálum í Vestmanna-
eyjum í framtíðinni.