Fréttir - Eyjafréttir - 02.07.1998, Qupperneq 1
25. árgangur • Vestmannaeyjum 2. júlí 1998 • 26. tölublað • Verð kr. 140,- • Sími: 481 3310 • Fax: 481 1293
Sumaráœtlun Herjólfs
Þfiðji júlí mun verða
þakkargjðrðardagur okkar
-segir Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir nýkjörinn forseti bæjarstjórnar
Eins og fram kemur í blaðinu í dag
er fyrirhuguð mikil dagskrá á
vegum bæjarins til að fagna 25 ára
afmæli gosloka. Hvað skyldi
forseta bæjarstjórnar, Sigrúnu
Ingu Sigurgeirsdóttur, vera efst í
huga á þessum tímamótum?
„Mér er efst í huga þakklæti til
máttarvaldanna að hafa haldið hlíft-
skildi yfir eyjunni okkar. Mér er
einnig í huga þakklæti til allra þeirra
sem tóku þátt í björgun eigna, svo og
þeirra sem stóðu að kælingu hrauns-
ins. Það að takast skyldi að stöðva
framrás hraunsins, og þar með að
bjarga innsiglingunni, er eitt af
stórverkum mannsins í baráttunni við
náttúruöflin. Og ekki síst hljótum
við að vera þakklát Guði fyrir að allir
skyldu bjargast þessa örlagaríku nótt
íjanúar 1973.
Það var stórkostleg tilfinning þann
3. júlí 1973 þegar opinberlega var
lýst yftr goslokum. 3. júlí mun ávallt
verða þakkargjörðardagur í huga
Vestmannaeyinga," sagði Sigrún
Inga, forseti bæjarstjómar.
m
%
k
Á morgun verða 25 ár frá því almannavarnanefnd Vestmanna-
eyja gaf út að Heimaeyjargosinu væri lokið. Þar með lauk þeim
kafla í íslandssögunni þar sem hvað mest eignatjón hafði orðið.
Af um 1600 íbúðum og húsum í Eyjum voru 400 grafin undir
hraun, 400 stórskemmd og önnur400 þurftu lagfæringar við. Auk
þess höfðu fyrirtækin í bænum og bæjarsjóður orðið fyrir miklu
tjóni. Um leið og gos hófst þann 23. janúar 1973 urðu til flótta-
menn á íslandi því 5300 Vestmannaeyingar urðu að flýja til
fastalandsins. Það hafðist á einni nóttu og enginn fórst. Það,
ásamt minningu um gott mannlíf í Eyjum, varð sennilega til þess
að Vestmannaeyjar byggðust upp aftur. Reyndar var hreinsunar-
og uppbyggingarstarf hafið löngu áður en gosi lauk sem lýsir best
þeirri bjartsýni sem hafði yfirhöndina þó oft væri útlitið svart.
Fréttir minnast þessara tímamóta á mjög myndarlegan hátt í
blaðinu í dag. Minnst er ýmissa atburða sem tengjast gosinu.
Margir hafa lagt okkur lið í efnisöflun og kunnum við þeim bestu
þakkir fyrir.
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alladaga Kl. 08:15 Kl, 12:00
aukaferðir fimmtu- föstu- ogsunnudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
*■// ''!£ Srmm /i</ið
•ttcrioi^ur Sími 481 2800 Fax 481 2991