Fréttir - Eyjafréttir - 02.07.1998, Blaðsíða 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 2. júlí 1998
Ekkert alvarlegt á
Shellmóti
Færslur í dagbók lögreglu í síðustu
viku voru 177 sent er nálægt með-
altali. Það vekur athygli að þrátt
fyrir mikinn manntjölda í bænum,
aðallega kringum Shellmótið, kom
ekkert upp á sem talist getur í
alvarlegri kantinum. Þó var tölu-
verður erill hjá lögreglu vegna lög-
gæslu við knattspymuvellina.
Gleraugun brotnuðu
Þrátt fyrir að mannmargt mafi verið
á skemmtistöðum urn helgina var
aðeins ein líkamsárás kærð til
lögreglu. Ráðist var á gest á Lund-
anum og telst málið ekki alvarlegt
en gleraugu þolandans brotnuðu þó.
Fiórir kiófnaðir
í síðustu viku voru fjórir þjófnaðir
kærðir til lögreglu. í tveimur til-
vikum var stolið reiðhjólum, í einu
tilviki geislaspilara sem stolið var
úr íþróttamiðstöðinni og í fjórða
tilvikinu var stolið rafsuðumótor
sem var á geymslusvæði við Skipa-
lyftuna.
Þá voru tvö skemmdarverk kærð
til lögreglu. Unnar vom skemmdir
á dráttarvél við Golfskálann og
einnig voru unnar skemmdir á
óskráðunt bifreiðum sem stóðu við
Smurstöðina við Vesturveg. Lög-
reglan óskar eftir upplýsingum um
þessi mál.
Tíu kærðír fyrír
umferðarlayahrot
Alls voru tíu ökumenn kærðir í vik-
unni vegna brota á umferðarlögum.
f einu tilviki var um að ræða mann
sem ók þrátt fyrir að hafa verið
sviptur ökuréttindum og í öðru
tilviki voru réttindalausir unglingar
á óskráðum bifhjólum. Önnur brot
vom minniháttar.
Hrapaði í Litlhöfða
Tvö slys vom tilkynnt lögreglu í
vikunni. í fyrra tilvikinu hljóp bam
fyrir bifreið en þar var ekki um
alvarlega áverka að ræða. Hitt slys-
ið var alvarlegra. Maður hrapaði í
Litlhöfða og mjaðmagrindarbrotn-
aði. Björgunarfélagið var kallað út
og var farið á bát að sækja mann-
inn. Hann var síðan fluttur með
sjúkraflugi til Reykjavíkur.
ElduríGuðmundiVE
Einn bruni kom upp í vikunni.
Hafði kviknað í um borð í
loðnuskipinu Guðmundi VE en þar
hafði verið unnið við logskurð.
Skemmdir voru minniháttar.
ViljaekkiElsusem
formann
Nýkjörið félagsmálaráð hélt sinn
fyrsta fund í síðustu viku. Nú hefði
mátt halda að friður ríkti á fyrsta
fundi kjörtímabilinu en það var nú
öðm nær. Sjálfstæðismenn sem
skipa meirihluta í ráðinu buðu fram
Elsu Valgeirsdóttur til formanns en
þeirri stöðu gegndi hún á síðasta
kjörtímabili. Það ótríilega gerðist að
fulltrúar minnihlutans gerðu at-
hugasemd við tilnefningu Elsu til
formanns. Ekki kemur fram í
fundargerð hver ástæðan er og ekki
náðist í Guðrúnu Erlingsdóttur (V)
áðuren blaðið fór í vinnslu.
Veiðarfærahús fær nýn
hlutverk á goslokaahnæli
Veiðarfærahús ísfélagsins, norðan
við Stakkagerðistún, hefur nú
fengið nýtt hlutverk. Húsið hefur
gegnum tíðina verið notað fyrir
ýmiss konar atvinnustarfsemi, m.a.
var þar fyrr á árum frystihús.
Sigurður Einarsson, forstjóri
Isfélagsins, hefur heimilað
unglingum í bænum afnot af
húsinu. Er þá sérstaklega hugsað
til aldurshópsins 15 til 18 ára sem
ekki hefur átt í niörg hús að venda
til félagsstarfs.
Undanfarna daga hafa nemendur
Vinnuskólans, ásamt niörgum
eldri sjálfl)oðaliðum, unnið að því
að koma rusli út úr húsinu og
flikka upp á það en hugmyndin er
að hluti af hátíðahöldum vegna
goslokaafmælisins fari fram í
húsinu og þá sérstaklega höfðað til
unga fólksins.
Það mun væntanlega skýrast á
næstu dögum hver eru
framtíðaráform um þetta húsnæði
og ætti að verða liægt að segja
nánar frá því í næsta blaði.
M
Þykirbérvæntum
barniðbittP
Lögreglumenn hafa veitt því
athygli að börn em ekki alltaf fest í
öryggisbúnað í bifreiðum. Það er
með ólíkindum að þurfa skuli fólk á
launurn hjá hinu opinbera til þess
að fólk gæti öryggis síns og sinna
nánustu í umferðinni. Oft er því
þannig vai'ið að foreldrar spenna
sjálfrr öryggisbeltin til að fá ekki
sekt en síðan eru bömin laus. bæði
íaftursæti og framsæti. Samkvæmt
þessu virist svo sem fólk hugsi fyrst
um budduna en síðan urn öryggi
sitt og sinna nánustu. Rétt er að
benda foreldrum og fon'áðamönn-
unt bania á að sekt við því að nota
ekki sérstakan öryggisbúnað fyrir
böm er 10.000 krónur og sekt við
því ef ungmenni 15 ára og yngri
nota ekki öryggis- eða verndar-
búnað er 8.000 kr.
Happdrætti
Blindrafélagins
Vinningar í happdrætti Blindra-
vinafélagsins kontu á eftirfarandi
númer: Golf 1,6 fimm dyra bifreið,
á ntiða nr. 3398, ferðaúttekt til
sólarlanda með Samvinnuferðum-
Landsýn að upphæð kr. 100.000
komu á miða nr. 6200.6423. 8079,
9810.11047,12491,13230,13249,
21302 og 22484. Þriggja daga
helgarferðir til Dublin að upphæð
70.000 komu á miða nr. 1131,
2485, 3557. 6925, 7025, 7817.
7935. 9430, 9580, 12428, 13068,
13874. 14236, 15751. 18634.
19205,21147 og 24355.
Birt án ábyrgðar.
17. júní huaöP
Bæjrráð hefur samþykkt að segja
upp samningi við ÍBV-íþróttafélag
um dagskrá 17. júní og felur
menningarmálanefnd að annast
málið frantvegis.
Undirbúningur a f UllU Þessar fjórar stúlkur eru meðal fjölda
unglinga sem hala lagt nótt uið dag að gera veiðarfærahúsið tilbúið fyrir
helgina. Ekki hafa krakkarnír ákveðið hvað verður um að vera í húsínu
nema hvað hau hugsa betta sem kaffihús fyrir sig. Á efri myndinni sést
inn í risið sem fengíð hefur nýja ásýnd.
Undirbúningur að komu Keikós:
Alltsamkvæmtáædun
Allur undirbúningur að komu Keikós hingað gengur samkvæmt áætlun og
vel það. Dýpkun í Klettsvík hófst á sunnudag og átti henni að Ijúka í
gærkvöldi.
Bjarki Brynjarsson, hjá Þróunarfélaginu, sagði að dýpkunin hefði gengið
framar öllum vonum og engin vandamál komið upp. Þá væri unnið að
samsetningu kvíarinnar á fullu og áætlað að vinnunni á bryggjunni verði lokið
fyrir 6. júlí. Þá er væntanlegur krani úr Reykjavík sem mun hífa hlutana út í
höfn. Síðan verður hún dregin út í Klettsvík þar sem endanleg samsetning fer
fram. Þann 10. júlf er ráðgert að setja akkerisfestingamar, sem halda kvínni,
niður og síðan á öllu að vera lokið í lok júlí. Þá fara fram prófanir á kvínni.
Bjarki sagði einnig að von væri á verkfræðingi frá bandaríska hernum nú í
vikunni til að kanna ástand flugbrautarinnar. Mikilvægt væri að Ijúka þeirri
könnun hið fyrsta vegna væntanlegra samninga við verktaka um þær
endurbætur sent gera þyrfti á brautinni.
TILBOÐ
Sögur og sagnir úr
Vestmannaeyium.
Bók sem allir
|jj Vestmannaeyingar ættu að
eiga.
Aðcins kr. 449
Spil og púsl með
30% afslætti
Tvö súper 200 myndaalbúm aðeins kn 599
Ferðatöskusett, 4 töskur
Vcrð kn nú kn 7*770
/
BOKABUÐIN
V/HEIÐARVEG - SÍMI 481 1434
(FRÉTTIR)
Utgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir: Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinna: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481 -3310. Myndriti: 481 -1293.
Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.is/~frettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrifc og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn. Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. í Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.