Fréttir - Eyjafréttir - 02.07.1998, Side 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 2. júlí 1998
„Það sem augað ekki sér“
Nýr geisladiskur Herdísar Hallvarösdóttur með lofgjörðartónlist
Nú er að koma út nýr geisladiskur með Herdísi
Hallvarðsdóttur tónlistarmanni. Á diskinum eru
16 lög, öll eftir hana nema eitt. Textana hefur hún
samið eða fengið beint úr Biblíunni.
Tónkist Herdísar spannar bæði sígilda tónlist,
vísnageirann og út í hágæða kristilegt rokk. Margir
valinkunnir tónlistarmenn koma að verkinu. Má þar
nefna Þóri Baldursson, Ásgeir Oskarsson, Guðmund
Benediktsson, Eyjólf Kristjánsson, Gísla Helgason og
marga aðra, en alls koma fram á fjórða tug
hljóðfæraleikara og söngvara á diskinum. Þeir Þórir
Baldursson og Gfsli Helgason sáu um stjóm upptöku
og útsetningar voru í höndum Þóris og Herdísar.
Geisladiskurinn „Það sen augað ekki sér“ verður
kynntur í fyrsta sinn opinberlega í Hvítasunnu-
kirkjunni í Vestmannaeyjum þriðjudaginn 7. júlí og
hefst kynningin kl. 20:30
Auk Herdísar koma fram Gísli Helgason og fleiri.
Allir eruhjartanlega velkomnir. Fréttatilkynning.
Heiðar Marteinsson sendir frá sér myndband um Heimaeyjargosið:
Lýsing á miklu Drekuirki
Heiðar Marteinsson hefur nýlega
klippt saman efni sem hann tók upp
í gosinu og búið til tuttugu og sjö
mínútna mynd um gosið í Heimaey
og uppbygginguna að því loknu.
Myndin er í lit og þulur er Magnús
Bjarnfreðssson. Þau eintök sem
skoðuð hafa verið eru prufukópíur,
sem munu fara í frekari vinnslu
áður en myndin verður gefín út í
endanlegri mynd.
Þorsteina Grétarsdóttir hefur séð
myndina og hún var innt eftir því
hvemig henni þótti myndin. Hún
segir að sér hafi þótt myndin góð og
áhrifamikil. ,Það em þama atriði þar
sem hús em sýnd fara undir hraun, en
það voru nokkur atriði sem ég hef séð
áður í kvikmynd. En það var mjög
gaman að sjá myndina og hún er
merkileg heimild um uppbygginguna
eftir gosið. Ég veit ekki hvort ástæða
er til að gefa henni stjörnur og þó
kannski þrjár af fimm mögulegum."
Guðmundur Sigfússon í Fótó hefur
einnig séð myndina. Hann segir að
myndin sé skemmtileg og margt hafi
rifjast upp frá þessum tíma. „Myndin
fjallar kannski meira um það mikla
þrekvirki sem unnið var við að hreinsa
bæinn og uppbygginguna en um gosið
sjálft. Myndin segir merkilega sögu
og er góð heimild og ég vil frekar
meta hana í því ljósi. Ég var til dæmis
viðstaddur eitthvað af tökunum og sá
þessa atburði þegar þeir gerðust í
raunveruleikanum. Mig minnir meira
að segja að í atriðinu þegar Suðurhús
hrundu hafi hann notað mig fyrir
þrífót. Þetta eru tuttugu og fimm ára
gamlar upptökur og bera þess merki,
hins vegar er þetta merkiiegt framtak
hjá Heiðari og vissulega hið þarfasta
mál að koma því í umferð," segir
Guðmundur að lokum en vildi ekki
viðhafa stjömugjöf.
fremst er Halldór Waagfiörð.
Mynd Guðmundur Sigfússon.
Svenni Hauks
gefur út geisladisk
Sveinn Hauksson er að senda frá
sér diskinn Sólfingur sem hefur að
geyma tíu lög, níu eftir hann sjálfan
og eitt eftir Benedikt Torfason.
Sveinn hefur búið í Vestmannaeyjum
í nokkur ár og verið að semja og spila
samhliða daglegri vinnu. Nú stundar
hann gítarnám í Reykjavík. Hann
hefur áður geftð út tvær plötur, Dropa
í hafið sem kom út árið 1983 og
Alíslenskt þjóðráð árið 1986. „Ég
byijaði undirbúning að diskinum árið
1993 og nú er þetta loks orðið að
veruleika," segir Sveinn.
Sveinn segist nokkuð ánægður með
útkomuna en útgáfu á tónlist segir
hann byggja mikið á að velja rétt fólk
til samstarfs. „Þar hef ég verið mjög
heppinn, ekki síst með söngvara."
Með Sveini eru söngvararnir Sig-
urður Ingvarsson, sem m.a. er með í
Abbasýningunni á Broadway, Rannvo
Olsen og sjálfur syngur Sveinn í einu
lagi. Sveinn leikur á gítar, Jóhann
Ásmundsson er á bassa, Jón Ólafsson
á hljómborð og einnig á flygil,
Þorsteinn Gunnarsson úr Stjórninni
slær trommumar og það sama gerir
Jóhann Hjörleifsson sem leikur einnig
á ásláttarhljóðfæri. Eyþór Amalds
leikur á selló, Dan Cassidy á ftðlu,
Þórir Lárusson þenur nikkuna og
Eggert Pálsson úr Sinfónfunni leikur á
frska trommu.
Textar eru eftir Jóhannes Sigur-
jónsson frá Húsavík, Guðberg Aðal-
steinsson og Svein. Hönnun umslags
var í höndum Eyjamannsins Trausta
Traustasonar, Sveinn útsetti lögin og
útgefandi er Sultardropinn.
„Ég reikna með að Sólfingur komi
út í næstu viku og fljótlega upp úr því
verð ég á ferð í Eyjum til að kynna
tónlistina," sagði Sveinn að lokum.
Barcelona - Benidorm - Costa del Sol - Heimsferðir, umboð í Eyjum - Straumur s. 481-1119