Fréttir - Eyjafréttir - 02.07.1998, Page 19
Fimmtudagur 2. júlí 1998
Fréttir
19
Gosið var búið
-segir Guðmundur Sigfússon ljósmyndari í Foto sem var í
fyrsta hópnum sem fór ofan í Eldfellsgíg eftir að gosinu lauk
Þann 2. júlí 1973 fóru menn í fyrsta
skipti ofan í gíginn í Eidfelii en sjö
dögum áður, þann 26. júní var fyrst
gefið út að Heimaeyjargosinu væri
lokið. Opinberlega var það blásið af
3. júlí.
Guðmundur Sigfússon, ljósmyndari
og kaupmaður í Foto var í sex manna
hópi sem fór niður í gíginn undir
forystu Þorleifs Einarssonar jarð-
fræðings og Hlöðvers Johnsen, Súlla á
Saltabergi. Aðrir í hópnum vom
feðgarnir Svavar Steingrímsson og
Oskar og Sigurður Bogason.
Guðmundur segir að ætlunin hati
verið að mæla hita og gas í gígnum.
„Það var ekki erfitt að fara niður í
gíginn en þar sem við vissum ekkert
um ástandið niðri í gígnum var Súlli,
sem fór fyrstur niður, hafður í bandi.
Var það gert til öryggis vegna
hugsanlegs gass," segir Guðmundur
þegar hann rifjar upp atburðinn með
blaðamanni Frétta. „Um leið og Súlli
var kominn niður á botn kallaði hann
til okkar og sagði allt í lagi að koma
niður."
Af blaðagreinum að marka frá
þessum tíma þótti þetta brjálæði því
ekki svo löngu áður hafði gígur
Eldfells spúð eldi og brennisteini yfir
byggðina í Vestmannaeyjum. „Við
sátum þama niðri í botni gígsins í um
það bil hálftíma og röbbuðum um
daginn og veginn," er haft eftir
Guðmundi í viðtali í Vísi þannig að
þeir hafa ekki álitið þetta hættuför.
Þeir fóm niður í gíginn um klukkan
tíu að kvöldi og og var ætlun Súlla og
Þorleifs að mæla gas og hita en það
reyndist óþarfi. „Það var ekkert að því
að vera þama niðri en það var talsverð
stækja og gufa á gígbarminum..
Gígurinn var 30 til 40 metra hár og ég
gæti trúað að þvermál botnsins hafi
verið um fjórir metrar. Þar var enga
hreyfingu að finna og ég held að við
höfum allir verið sammála um að þar
með væri gosinu lokið," segir
Guðmundur.
Við höfðum fest kaðalinn við stein
uppi á gígbarminum sem kom sér vel
á uppleiðinni því vikurinn vildi renna
undan okkur. Ekki varð ég var við
hræðslu hjá nokkrum okkar og menn
ræddu um að tjalda þama í gígnum.
Til öryggis vomm við þó með labb-
rabbtæki til að geta haft samband við
lögreglu en til þess kom ekki og allir
sváfum við vel nóttina á eftir," sagði
Guðmundur að lokum.
Þess má geta á þessum tíma var
Guðmundur fréttaritari og ljósmyndari
Vísis í Eyjum og vom gígferðinni
gerð góð skil í blaðinu.
Úskar, Suavar, Sigurður, Hlöóuer og Þorbjörn komnir niður í gíginn. Myndina tók Guðmundur sem uar sjötti maður í
leiðangrinum.
Þessi mynd Guðmundar er dæmigerð fyrir ástandið í Vestmannaeyjum
ueturinn 1973. Stór hluti bæjarins uar kominn undir hraun og ösku og yfir öllu
trðnaði Eldfellið.
Ríkissjónvarpið var með beinar útsendingar í gosinu:
Sjónvarpsútsendingar
hófust strax á priðja degi
Á meðan Sjónuarpið sýndi eldstöðuarnar á Heimaey uar hreinsun hafin í bænum. Margir
sjálfboðalíðar komu bar að verki og hér sjást nokkrir beirra við hreínsun í kirkjugarðinum.
Strax á fyrsta degi gossins fékk einn ágætur
maður, Fylkir Þórisson þá hugmynd að
koma fyrir kvikmyndatökuvél uppi á Klifl og
sýna beint frá gosinu, þannig að Vest-
mannaeyingar og aðrir Iandsmenn gætu
fylgst með þróun gossins beint af sjón-
varpsskjánum. Fréttir töluðu við Fylki og
Sverri Olafsson um þessa ferð upp á Klif.
Fylkir bjó reyndar í Vestmannaeyjum á
sínum tíma, en faðir hans Þórir Konráðsson
var hótelstjóri á Hótel HB. „Hugmyndin
var að sýna beint frá gosinu í stað
stillimyndarinnar,“ segir Fylkir.
„Eg lagði þessa hugmynd fyrir fram-
kvæmdastjóra og yfirverkfræðing sjónvarpsins
og hugmyndin var samþykkt eftir nokkra
umhugsun. A þriðja degi gossins flugum við
svo til Eyja með svart/hvíta Philips plumicon
kvikmyndatökuvél sem við komum fyrir í
mastri við endurvarpsstöð Pósts og síma á
Klifinu."
„Þetta var eftirminnileg ferð," segir Sverrir.
„Við flugum til Eyja með einhverri gripa-
flutningavél og mjög áhrifamikið að koma
þama, en við vomm í sólarhring í Eyjum."
Með Fylki og Sverri í för var Þórarinn
Guðnason fréttakvikmyndatökumaður hjá Sjón-
varpinu ásamt Ama Vilmundarsyni frá Pósti og
síma. „Það var komið myrkur þegar við vomm
komnir upp, en náðum þó að koma vélinni fyrir,
en urðum að dvelja þama uppi um nóttina því
það var orðið of dimmt til þess að klára verkið.
Reyndar fór Þórarinn niður strax aftur og til
Reykjavíkur sama dag en við hinir vomm þama
um nóttina."
Sendirinn í Vestmannaeyjum tók við
merkjum frá sendinum í Skálafelli og Fylkir
segir að myndinni hafi verið varpað frá Eyjum
um Skálafell og þaðan um allt land. „Þessi
möguleiki var fyrir hendi og spuming um að
nýta hann. Fólk kunni vel að meta þetta, ekki
síst Vestmannaeyingar uppi á landi sem töldu
sig hafa mikið gagn af þessu."
Fylkir segir að vistin á Klifinu um nóttina hafi
ekki verið sérlega ánægjuleg. „Það var hús
þama uppi sem við gistum í, en lítil þægindi.
Við sváfum á einhveijum pappaspjöldum og
það vom miklar dmnur frá gosinu. Daginn eftir
var komið vitlaust veður. Við fómm með
varðskipinu Ægi til baka og það var
eftirminnileg ferð. Skipið var eina tvo tíma að
komast út úr höfninni og um tvö hundmð manns
vora um borð, og margir sjóveikir. Það átti að
fara til Þorlákshafnar, en það var hætt við það
vegna þess að það barst neyðarkall frá bát, sem
farið var að huga að. Þetta varð því tíu tíma ferð
í kolvitlausu veðri. Svo var siglt inn til
Keflavíkur þar sem við fómm í land."
Sverrir segir að þessi útsending frá Eyjum
hafi þó ekki verið fyrsta beina útsending
sjónvarpsins. „Það höfðu náttúrulega verið
beinar útsendingar úr sjónvarpssal og einnig af
vettvangi meðal annars frá einvígi Fishers og
Spasský. Það hafði líka verið sjónvarpað beint
frá ýmsum stöðum í kringum kosningar. En
þetta þótti nokkuð merkilegt framtak. Vélin var
þama uppi í eina þrjá mánuði. Reyndar var
myndin nokkuð farin að dofna undir það síðasta
vegna þess að linsan var orðin sandblásin vegna
ösku. Við komum vélinni fyrir í plasthólki til
þess að hlífa henni fyrir vatni og vindum, en
auðvitað hefur mætt mikið á þama uppi."
Em til einhverjir bútar af þessu efni sem sent
var út þessa þrjá mánuði?
„Ég veit það ekki," segir Fylkir. „Það er
trúlega til það efni sem Þórarinn myndaði þarna
uppi, en hvort það var eitthvað tekið upp af
þessum beinu sendingum veit ég ekki. En
mönnurn fannst þetta dálítill viðburður
tæknilega."