Fréttir - Eyjafréttir - 02.07.1998, Page 24
Fréttir
Fimmtudagur 2. júlí 1998
Það var mikið um dýrðir á leikskólanum Sóla á laugardaginn þegar nemendur,
starfsfólk og foreldrar efndu til mikils fagnaðar.
Útisvæðið var skreytt, búin voru til listaverk og ekki gleymdist maginn því boðið var
upp á pyisur með öllu. Sóladagurinn var sannkallaður sólardagur því sól skein í heiði
sem gerði daginn enn skemmtilegri.
Og eins og myndirnar hér að ofan bera með sér nutu nemendur, starfsfólkið og gestir
þeirra veðurblíðunnar
orðið gæjalegt
Ens og sjá má á rnvndinni hér að
ofan hefur Skvísusundið tekið
miklum stakkaskiptum á und-
anfornum vikum.
f fyrsta lagi hafa starfsmenn bæjarins
gengið frá götunni á skemmtilegan
hátt. Kræmar hafa verið málaðar sín
í hverjum lit og eru áhrifin vægast
sagt lífleg.
Vestmannaeyjabær stendur að
þessum skemtntilegu framkvæmd-
um í tilefni goslokaafmælis og þeirri
dagskrá sem þarna á að fara fram
um næstu helgi en það er Andrés
Sigurvinsson sem skipulagt hefur
hátíðahöldin fyrir Vestmannaeyja-
bæ ásamt goslokanefnd.
Dagskráin mun fara fram bæði
inni í krónum og í Skvísusundinu
fyrir utan þær en útgerðarmenn,
eigendur að krónum, hafa brugðist
vel við málaleitan bæjarins, opnað
fyrir gestum og gangandi og gert allt
klárt til að dagskráin geti farið fram
bæði utan dyra og innan.
Ekki er vafi á að þarna verður
mikið mannlíf um næstu helgi og
víst að bæjarbúar munu kunna að
meta þá líflegu umgjörð og
skemmtilegu dagskrá sem í boði
verður þessa helgi. Dagskráin er
auglýst á blaðsíðum 10 og 11 í
blaðinu í dag.
Helga kveður og Karl Qauti tekur við
Á föstudaginn var hélt Helga Hauks-
dóttir, settur sýslumaður, starfsfólki
sýslumannsembættisins og skattstof-
unnar dulitla móttöku í tilefni af því
að hún lætur af störfum sem sýslu-
maður Vestmannaeyja nú um mán-
aðamótin. Helga hefur störf á
vamarmálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins frá og með 1. júlí.
Karl Gauti Hjaltason fyrrverandi
fúlltrúi sýslumannsins á Selfossi hefur
verið skipaður sýslumaður Vest-
mannaeyinga frá og með 1. júlí.
Á myndinni sem tekin var í hófinu
má sjá Helgu ásamt starfsfólki sýslu-
mannsembættisins og skattstofunnar í
Vestmannaeyjum.
Uvaff 5 ára
Föstudaginn 3. júlí em fimm ár síðan
Útvarp Vestmannaeyxar FM 104 tók
formlega til starfa. í tilefni af því
verður afmælisins minnst með
sérstakri afmælis- og goslokadagskrá
frá kl 16:00 á föstudeginum. Ef veður
leyfir verður farið með hljóðstofu ÚV
út á lóð. Boðið verður upp á Kók,
Frónkex og afmælistertu frá Andrési í
Magnúsarbakaríi og Kaaber mola-
sopa.
Á myndinni er Bjtuni Jónasson útvarpsstjóri ÚV ásamt Bjarna Rúnari
Jónassyni dóttursyni sínum í beinni útsendingu.