Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1998, Blaðsíða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 16. júK 1998
'v f
Guöbjörs GuömAr»vist>óttír, SumArstMllíA VestmAnviAevpA 199Ö.
6Átttc\ltcHbvir í Svm-iArstvilkvikcppviívivii, f.v. FríÖA Hrönvt. Svaviöís, Estcr HcIsa, Gviöbjörs,
Sisvirros, H^rpA os FjóLv
Keppnin um titilinn Sumar-
stúlka Vestmannaeyja á
Höfðanum á laugardags-
kvöldið var öllum sem að
henni stóðu til mikils sóma.
Stúlkurnar sjö, sem þátt tóku í
keppninni stóðu sig með
mikilli prýði og gerði frjálsleg
framganga þeirra sitt til að gera
kvöldið eftirminnilegt. Keppt
var um fjóra titla að þessu
sinni. Sumarstúlka
Vestmannaeyja er Guðbjörg
Guðmannsdóttir, Ljós-
myndafyrirsætan er Fjóla
Finnbogadóttir, Fríða Hrönn
Halldórsdóttir var kosin
vinsælasta stúlkan af
stúlkunum sjálfum og Ester
Helga Sæmundsdóttir var
tilnefnd Bjartasta brosið.
Stúlkumar sjö, Ester Helga Sæ-
mundsdóttir, Fjóla Finnbogadóttir,
Fríða Hrönn Halldórsdóttir, Guðbjörg
Guðmannsdóttir, Harpa Hauksdóttir,
Sigurrós Steingnmsdóttir og Svandís
Jónsdóttir, voru sjálfum sér og að-
standendum til mikils sóma. Var það
ekki síst þeim að þakka hvað kvöldið
var vel heppnað.
Sumarstúlka Vestmannaeyja, sem
hleypt var af stokkunum sumarið
1986, hefur fyrir löngu fest sig í sessi
sem ein aðalskemmtun sumarsins í
Vestmannaeyjum. Fréttir hafa frá
upphafi staðið að keppninni og
undanfarin ár hafa Fréttir og Höfðinn
staðið að keppninni í sameiningu og
fengið ýmsa aðila til liðs við sig.
Misjafnlega hefur tekist til en
Sumarstúlkukeppnin í ár er meðal
þeirra bestu. Kemur þar margt til en
ekki síst örugg verkstjóm Dagmar
Skúladóttur. Stúlkurnar stóðu sig líka
frábærlega og boðið var upp á góð
skemmtiatriði sem flest öll voru flutt
voru af Eyjamönnum. Þá má ekki
gleyma þætti Bjama Ólafs Guð-
mundssonar sem kynnti og stjómaði
dagskránni af mikilli röggsemi og
kunnáttu. Dómnefndina skipuðu Mar-
grét Jóhannsdóttir, Smári Harðarson,
Helga Dís Gísladóttir, Agúst Grétar
Ágústsson og Ragnheiður Guðna-
dóttir. Dómnefndin átti ekki auðvelt
verk fyrir höndum en hún leysti starf
sitt óaðfinnanlega. Ragnheiður Borg-
þórsdóttir í Farðanum sá um að farða
stúlkumar og Ragnheiður Guðmunds-
ÞcssAr stúlkvir komu ftvxrri í gcrfvnn Krv|t>t»pijAMHA cnskvi.
OpnviviAtvstriöiö goif 50Ö fv^rirbcit um )>-\ö scm Á cftir fvjlgöí.
-jcccccccccccsssss, gocti Gwöbjörs vcriö -\ö scsjA þcs-vr lírslitin Iásw fvjrir.
Siswrrós os Estcr Hcls-' fs>S»iA mcö Gvtöbjórsvt.
Stjórnun Sumarstúlkukeppn-
innar er frumraun Dagrnar
Skúladóttur á þessu sviði. Reynd-
ar hefur hún tekið þátt í og
stjórnað tískusýningum og tekið
þátt í aeróbiksýningum með öðr-
um kennurum á Hressó.
„Þetta verkefni var ofboðslega
skemmtilegt en auðvitað hefði
maður viljað hafa meiri tíma til
undirbúnings," segir Dagmar sem á
aðeins hálfum mánuði tókst að skila
frábæm verki.
Dagmar hélt utan um dagskrána,
sá um skreytingar auk þess sem hún
stjómaði dansi og tískusýningum
sem stúlkumar tóku þátt í. „Þetta
vai' mikil vinna og auðvitað stóð ég
ekki ein í þessu og vil ég nota
tækifærið til að þakka öllum sem
komu að þessu með mér fyrir þeirra
framlag. Ekki má heldur gleyma
hlut stelpnanna en þær vom
frábærar. Allt lagðist þetta á eitt í að
gera kvöldið eins gott og raun ber
vitni,“ sagði Dagmar að lokum.