Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.1998, Síða 1
óiMiUfíi miklar
Einstök veðurblíða hefur leikið við okkur Sunnlendinga megnið af
sumrinu. Eru það mikil viðbrigði frá síðasta sumri.
Við leituðum á vit Óskars Sigurðssonar, vitavarðar og veðurathugunamanns í
Stórhöfða sem flestum öðrum betur þekkir veðurfar í Vestmannaeyjum og
spurðum hann hvort þetta væru einsdæmi hér.
, JvTei, ætli það,“ sagði Óskar. ,En þetta hefur verið mjög gott sumar. Bæði
hafa hjálpast að rniklar stillur og þurrviðri og þegar það fer saman verður
útkoman góð.“
Sem dæmi um þær stillur, sem hér hafa verið í sumar, sagði Óskar að hér
hefði ekki komið stormur síðan 20 maí í vor. „Þetta hafa verið langvarandi
stillur, lengst af sumrinu hefur veðurhæðin ekki farið yfir fjögur vindstig.
En það hafa nú komið góð sumur hér áður, t.d. var sumarið 1991 rnjög gott ef
ég man rétt. En ég held að ég muni ekki eftir jafngóðu sumri frá 1958 þá var
einstök veðurblíða. En minnið er nú orðið reikult og sitthvað sem vill skolast
til. Þau gætu svo sem verið fleiri blíðviðrissumrin þó að ég muni ekki eftir
þeim í augnablikinu. Svo skulum við ekki gleyma því að sumarið í fyrra var
einstaklega vont hér sunnanlands. Og fyrir vikið tmnst okkur munurinn
líklega vera svona mikill þegar við höfum samanburð sem er þessu sumri
svona hagstæður, það muna víst flestir eftir veðurfarinu í fyrra og það gerir
líklega að verkum að okkur finnst sumarið núna svona feihialega gott,“ sagði
Óskar Sigurðsson. Mynd: Óskar Björgvinsson.
Hámarkc nrunnicniPQli) ösígur ■ eeigrad
Hl llH Jfll IBVlautílægrahaldifyrirFK Gunnar Sigurðsson í mai
Ohilik frá Júcóslavíu í Meist- Fátt er um leikinn að ses
-1Hð komu Keikós til Vestmannaeyja. Bréfmeð hótun um að
drepa hvalinn til rannsóknar hjá lögreglu
í gær barst dagblaðinu Degi á
Akureyri bréf frá óþekktum aðilum
þar sem hótað er að drepa hvalinn
Keikó með eitri. Bréfið er póstlagt
á Akureyri og hefur málið verið
sent Iögreglunni í Vestmannaeyjum
til rannsóknar.
HallurHallson fulltrúi Keikósjóðsins
á íjslandi segir að þetta bréf sé tekið
alvarlega og full ástæða til þess. „Við
höldum okkar striki samt sem áður.
Þetta bréf segir meira um þá eða þann
sem sendir það en Keikó.“
Hallur segir að öryggisgæsla sé mikil
í kringum Keikó og það verði engin
breyting þar á. Öryggisgæslan er
mjög góð og hún verður svo áfram,
óháð þessu bréfi."
Bréfið er ódagsett en sagt skrifað á
íslandi árið 1998. Bréfið er stílað á
Hall Hallsson og hann titlaður
umboðsaðili Keikó á íslandi, en þar
segir meðal annars að: Nokkrir félagar
séu mjög vonsviknir yfir framferði
hans (þ.e. Halls) og hans manna í
málefnum hvalsins Keikó. Þeir telja
að Eskfirðingar sem unnið hafi af
miklum dugnaði við að koma
hvalnum til íslands hafi verið notaðir
sem ginningarfífl við að snúa al-
menningi á þeirra mál (þ.e. Vest-
mannaeyinga).
Og í framhaldi af því segir í bréfinu:
„Því höfum við ákveðið að fljótlega
eftir að hvalurinn verður kominn á
þann stað í Vestmannaeyjum sem þið
ætlið að setja hann. munum við drepa
hann svo að þið komist ekki upp með
framferði ykkar. Ykkur til fjárplógs-
framferðis.
Hvalinn munum við drepa með eitri
sem notað er til að drepa með Ioðdýr
eða var notað fyrir nokkmm ámm, en
af því eigum við nægilegt magn til að
fyrirkoma honum með því að kasta til
hans eitmðum fiski, en hann mun vera
upp á dauðan fisk komin.“ (Staf-
setning og orðalag bréfritara)
Agnar Angantýrsson yfirlögreglu-
þjónn í Vestmannaeyjum segir að
þetta bréf verði tekið alvarlega. „Við
munum verða með rannsókn þessa
máls, að minnsta kosti þann hluta sem
snýr að okkur. Það er full ástæða til
að taka þessa hótun alvarleg og það er
tekið mark á henni þar til annað
kemur í ljós.“
Agnar segir að mjög öflug gæsla
verði við hvalinn og komu hans til
Vestmannaeyja. „Lögreglan í Eyjum
mun koma að löggæslu og ör-
yggisgæslu á meðan Keikó verður
fluttur frá flugvelli til kvíar, en eftir að
Keikó er kominn í kvína lýkur okkar
þætti og aðrir munu taka við
öryggismálunum,'1 segir Agnar
Kvíin var flutt í Klettsvík í gær.
IBV laut í lægra haldi fyrir FK
Obilik frá Júgóslavíu í Meist-
arakeppni Evrópu í gær. Lauk
leiknum með sigri Júgóslva, 2 - 0.
Leikið var í Belgrad og var mikill
hiti, um 35 gráður, Eyjamönnum
erfiður. Setti hitinn reyndar mark sitt
á leikinn því hann virtist líka há
heimamönnum.
Fyrra mark leiksins kom í fyrri
hálfleik og var af ódýrari gerðinni.
Seinna markið, sem kom um miðjan
seinni hálfleik, var aftur á móti
fallegt mark og óverjandi fyrir
Gunnar Sigurðsson í markinu.
Fátt er um leikinn að segja. ÍBV var
stærsta hluta leiksins í vöm og
bakkaði eftir því sem leið á leikinn.
Markmaður Obilik hafði það náðugt
í markinu og markamaskínan Stein-
grímur Jóhannesson hafði úr litlu að
moða.
Ljóst er að er ÍBV á erfitt verkefni
fyrir höndum í seinni leiknum sem
verður næsta miðvikudag. En fyrir-
fram er óþarfi að afskrifa mögu-
leikann á að komast í aðra urnferð
og mæta Bayem Munchen.
í íþróttamiðstöðinni hefur verið tekin upp sú nýbreytni að
auka hitann í lauginni um helgar sem mælst hefur vel fyrir
hjá elstu og yngstu borgurunum. Sjá bls. 13.
awiálm
egan
Bílaverkstæðið BRAGGINN s/f.
RÉTTINGAR OG SPRAUTUN:
Flötum 20 - Sími 481 1535
VIÐGERÐIR OG SMURSTÖÐ:
Græðisbraut 1 - sími 481
Sumaráœtlun Herjólfs
Frá Eyjum: Frá Þorl.höfn:
Alladaga Kl. 08:15 Kl. 12:00
aukaferðir flmmtu-föstu-ogsunnudaga Kl. 15.30 Kl. 19.00
I ' ' 1P /wúarl>i/ið
+teri0ltur Sími4812800Fax4812991
Bókabúðin
Heiðarvegi 9 - Sími 481 1434