Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.1998, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 23. júli 1998
Fréttir
7
Sláttuvélar &
mosatætarar
Mosatætarar og sláttuvélar leigðar út - Kjarnaborun - Steypusögun - HÁÞRÝSTIÞVOTTUl
PALLAR - STIGAR - MÚRBROT - Slípun á múr og málningu .
Jarðvegsþjöppur og ýmis smáverkíæri - Sími 481 3131
Þann 20. júní s.l. voru gefin saman í hjónaband af sr. Jónu
Hrönn Bolladóttur þau Harpa Björgvinsdóttir og Ólafur
Vestmann Þórsson. Heimili þeirra er aö Áshamri 67.
Ljósmyndastofa Óskars
Þann 20. júní s.l. voru gefin saman í hjónaband af sr. Jónu
Hrönn Bolladóttur þau Vilborg Valgeirsdóttir og Anton
Steinarsson. Heimili þeirra er að Norðurvegi 5, Hrísey.
Ljósmyndastofa Óskars
Jákvætt hugarfar
skiptir mestu
útvegs. Það er því mjög mikilvægt að
það takist að viðhalda þeim
stöðugleika sem er í rekstrarumhverfi
sjávarútvegsins. Nú í sumar hafa
verið unnin á milli 2.000-3.000 tonn
af gulllaxi héma í Vestmannaeyjum
sem er ný fisktegund sem ekki hefur
verið unnin hér áður og má þakka
forsvarsmönnum Vinnslustöðvarinnar
fyrir ákveðið frumkvæði í því sam-
bandi.
Frystihúsin og starfsfóik þeirra hafa
verið að gera tilraunir með breyttan
vinnutíma til þess að vinnutími og
frítími nýtist betur til hagsbóta fyrir
alla.
Keikó
í seinasta mánuði var tekin sú
ákvörðun af Free Willy samtökunum
að háhymingnum Keikó yrði fundinn
staður í Vestmannaeyjum og þar yrði
hann að venjast aðstæðum áður en
honum yrði sleppt síðar.
Þetta er mjög ánægjulegt fyrir
Vestmannaeyinga að Vestmannaeyjar
vom valdar og er það mikið tækifæri.
Á þessari stundu veit enginn hvað
felst í þessu og hvaða möguleika þetta
skapar.
Ástæðan fyrir því að Vest-
mannaeyjar vom valdar vom aðallega
tvær. I fyrsta lagi góð aðstaða frá
náttúmnnar hendi og í öðm lagi mikil
og fjölbreytt rannsóknaraðstaða sem
er staðsett hér í Eyjum í
Háskólasetrinu og starf vísindamanna
á hinum ýmsu sviðum bæði jarðlfæði,
haffræði og í hinum ýmsu vísindum.
Þessar náttúrulegu aðstæður og þessi
aðstaða í landi gerðu það að verkum
að samtökin ákváðu að velja Vest-
mannaeyjar. Þetta var mjög á-
nægjuleg niðurstaða fyrir alla Eyja-
menn.
Þeir bandarísku starfsmenn sem
hafa komið hér í sambandi við þetta
verkefni, Ijúka einum rómi um það
hversu þægilegt og gott fólk búi hér
og það vilji gera allt til að greiða götu
þeirra og er það mjög ánægjulegt.
Þetta er það sama og fólk sem hefur
verið hér á Shellmótum og
Pæjumótum og fleiri slíkum mótum
segir, að það sé einstakt það viðmót
sem það mætir hjá öllum
Vestmannaeyingum og það er
mikilvægt fyrir okkur að halda þeirri
stöðu.
Lokaorð
Þetta em hugleiðingar um stöðu mála,
skrifaðar um mitt sumar þegar liðnir
em tveir mánuðir frá bæjar-
stjómarkosningum. Það er mikilvægt
fyrir okkur að reyna að halda þessari
uppsveiflu og halda þeim byr sem er
núna f seglin til heilla fyrir
byggðarlagið en við skulum minnast
þess að það skiptast alltaf á skin og
skúrir og við vonum svo sannarlega
að framtíðin verði sem björtust hér í
Vestmannaeyjum.
Höfimdur er bœjarfulltri sjálfstœðis-
manna og forstjóri ísfélagsins.
Inngangur
Á seinasta ári og f
upphafi þessa árs
var töluvert
tjallað um stöðu
byggðar í Vest-
mannaeyjum í
Fréttum. Fólki
fækkaði héma og greip um sig á-
kveðið vonleysi. Þessi þróun hefur
sem betur fer verið að snúast ótrúlega
við á stuttum tíma og ég held að það
sé mál manna að hugarfar er mikið
jákvæðara gagnvart búsetu hér heldur
en það var fyrir tiltölulega stuttu síðan.
Það er að sjálfsögðu margt sem
skiptir máli. Veðurfar hefur verið gott
í sumar og ýmsar ytri aðstæður
hagstæðar.
Jákvætt hugarfar
Það sem skiptir ef til vill mestu máli
þegar fjallað er urn búsetu og stöðu
hennar og hvar fólk vill búa, er já-
kvætt hugarfar gagnvart búsetunni.
Það eru engir aðrir en Vestmanna-
eyingar sjálfir sem gera það gott,
spennandi og skemmtilegt að búa í
Vestmannaeyjum. Ef þeim finnst það
ekki sjálfum þá dregur það allt niður.
Það er oft bent á það í gríni og
alvöru að munurinn á svartsýnis- og
bjartsýnismanni sé sá að bjartsýnis-
maðurinn segir að flaskan sé hálffull
en svartsýnismaðurinn segir að hún sé
hálftóm. Það er jafnmikið í flöskunni
en sá sem segir að hún sé hálffull lítur
jákvætt á málið. Það skiptir því miklu
máli að halda við jákvæðu hugarfari
og það er engin bæjarstjóm eða
atvinnufyrirtæki sem geta gert það
heldur verða allir að leggjast á eitt.
Goslokahátíð
Eg held að það sé samróma álit allra
þeirra sem tóku þátt í goslokahátíð í
tilefni af 25 ára goslokum 3. og 4. júlí
sl. að þar hafi tekist mjög vel til.
Þama skemmtu sér saman ungir og
aldnir og tókst það á allan hátt
frábærlega. Þama voru aðalega
heimatilbúin skemmtiatriði og fýrst og
fremst að maður var manns gaman.
Staða sjávarútvegs
Staða sjávarútvegs, sem er helsti
atvinnuvegur Eyjamanna, er tiltölu-
lega björt urn þessar mundir.
Aflabrögð hafa verið góð á flestum
tegundum og útlit fyrir að næsta ár
verði tiltölulega gott. Verðlag á
afurðum hefur lagast og það er
ákveðinn sóknarhugur innan sjávar-
Þakkír frá
Leikfélaginu
Leikfélag Vestmannaeyja vill þakka öllum bæjarbúum og gestum þeirra
fyrir frábæra skemmtun um goslokahelgina. Sérstakar þakkir fyrir frábærar
viðtökur við götuleikhúsinu og Skvísusundinu. Við vonum að sú hugmynd
okkar að gera Skvísusundið að nýjum samkomustað fyrir bæjarbúa eigi
eftir að örva aðra til dáða og góðra hugmynda.
Sérstakar þakkir færurn við öllum þeim sem lögðu vörur og vinnu af hendi
endurgjaldslaust. Viljum við sérstaklega nefna: Skóbúð Axel Ó, Henna
heildsala, Kristmann Karlsson, heildsala, Magga á Kletti, Erlu, Lilju. Sjöfn
og fleiri sauma og búningakonur, Villu Þorsteins, yfirverkstjóra í
Skvísusundi, alla tónlistarmennina sem fram komu, Krórareigendurna í
Skvísusundi og þá fjölmörgu sem lánuðu okkur eða gáfu muni til
hátíðarinnar.
Sjáumst öll hress á Þjóðhátíð!
Kveðja Leikfélag Vestmannaeyja
LESENDABREF - Siguríur Einarsson