Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.1998, Blaðsíða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 23.júlí 1998
oq bananabmttó
Nanna Leifsdóttir
skoraði í síðustu
viku á samstarfs-
konu sína, Maríu
Pétursdóttur að taka
við hlutverki sæl-
kerans sem hún
gerði með glöðu
geði og býður hér
upp á tvo ágæta og einfalda rétti sem
henta allri tjölskyldunni.
Mexikóskur pylsuréttur
að nu'nuni hætti:
7-10 pylsur
1 -2 laukar
1 pk. spergilkál, frosið
‘/2 pk. pastaskeljar
1 pk. mexikósk tómatsúpa frá Toro
(fæst t.d. íVöruvali)
Skerið pylsur og lauka í bita og
steikið á pönnu ásamt spergli í
smástund. Hrærið pakkasúpunni
saman við 7 dl af vatni og 2 dl af
mjólk. Hellið þessu yfir pönnuna og
bætið að lokum soðnum pasta-
skeljunum saman við. Þar með er
þetta tilbúið og mjög gott er að hafa
frönsk smábrauð með smjöri með.
Þá ætla ég að koma með annan
rétt. auðveldan og góðan, rétt sem t.d.
hentar vel til að taka með í dalinn.
Banana- eða eplabrauð:
2 bananar (eða 2 epli + 1 tsk.
kanill)
I egg
1 tsk. salt
'/2 tsk. matarsódi
3 dl sykur
5 dl hveiti
Stappið banana (eða saxið eplin,
séu þau notuð). Bætið öllu nema
hveitinu saman við, hrærið vel sarnan
og bætið hveitinu að lokum saman
við. Bakið við 170° í 30-40 mín.
Brauðið er síðan smurt með smjöri
og osti.
Ég ætla að skora á vinkonu mína
og saumaklúbbsfélaga, Heiðrúnu
Láru Jóhannsdóttur en hún er
topphúsmóðir á sínu heimili og
afbragðskokkur.
María Pétursdóttir
er sælkeri þessa vikuna.
ð
- Riddarar Þjóðhátíðarborðsins fara
mikinn þessa dagana í öllum helstu
fjölmiðlum landsins. Bæði Dagskrá og
Dagur - Tíminn eru undirlögð enda má
ekki minna vera nú þegar búið er að
skipuleggja Dalinn. Reyndareru flestir
á því að það sé annað stærra
umhverfisslys yfirvofandi í Dalnum.
Það á sem sagt að byggja á brú yfir
Tjörnina sem þar verður árið um kring.
Slysið sem menn hræðast er að það
verði svona andlaus og stílbragðalaus
brú eins og þær sem stundum hafa
sést í Dalnum en ekki hin geypifallega
og smekklega Týs - brú, sem auk
útlitsins hefur þann augljósa kost að
maður þarf ekki að ná yfir hana í einum
rykk. Það er hægt að hvíla sig á leiðinni.
Sjálfsagt eru þó ekki allir á einu máli um
þetta, frekar en svo margt annað.
- Heyrst hefur að bílstjórar þeir sem aka
fólki í Dalinn séu enn í fýlu yfir því að
þurfa að borga inn á svæðið. Þeir launi
Þjóðhátíðinni lambið gráa með því að
reyna ekki að koma (veg fyrir að fólk
svindli sér inn á svæðið. Það er
náttúrulega gífurleg blóðtaka fyrir menn
sem hala inn hundruð þúsunda á einni
helgi að þurfa að styrkja félagið sitt um
6500 krónur í leiðinni.
- Það hefur vakið athygli að Eyjamenn
eru manna rólegastir yfir hingaðkomu
Keikó, meðan aðrir landsmenn eru
mjög uppteknir af málinu og sjá dollara
í hverju horni.
- Nú munu stuðningsmenn IBV, að
minnsta kosti einhverjir, velta fyrir sér
hvað þeir styðji í fótboltanum.
Er það mannskapurinn, nei það getur
ekki verið, því hann er breytilegur og á
fleygiferð milli liða innanlands og utan.
Er það nafn liðsins. Nei, því var þreytt
fyrir ekki löngu og því getur það ekki
verið það.
Lengi hafa menn hangið á því að styðja
búninginn, en nú gengur það ekki
lengurþví þaðerkominn nýr.
Og hvað er þá eftir. Ekkert, eða hvað?
Jú við getum auðvitað hrópað: ÁFRAM
ÍBV, eins og áður á sama hólnum, þó
allt annað sé breytt.
tc MTA AÐ R.UKKA
Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja í golfi
varhaldið ísíðustu viku. Atli Elíasson náði
glæsilegum árangri, varð bæði meistari
öldunga, með forgjöfog síðan bar hann
einnig sigur úr býtum í 4. flokki karla.
Árangur A tla er sérstakur þar sem tiltölulega
stutt er síðan hann byrjaði að spila golf.
Hann er Eyjamaður vikunnar í
tilefni þessa frábæra árangurs.
Fullt nafn? Atli Elíasson.
Fæðingardagur og ár? 15.desember
1939.
Fæðingarstaður? Varmidalurvið
Skólaveg í Vestmannaeyjum.
Fjölskylduhagir? Kvæntur Kristínu
(Lillu) Frímannsdóttur. Við eigum þrjú
börn, barnabörnin em þrjú og ____________________________
barnabamabörnin eru tvö (þetta þýðir
að maður er kominn vel á aldur).
Wlenntun og starf? Lærður húsamíðameistari en starfa sem
steypukarl við eigin fyrirtæki.
Laun? „No comment.” misjafnt, ekki eins og hjá opinberum
starfsmönnum, hafnark... og fleirum.
Helsti galli? Segiofoftjá.
Helsti kostur? Hef bætt mig verulega í golfi undanfarið.
Uppáhaldsmatur? Fiskréttirnir hennar Lillu og vel verkuð skata.
Versti matur? Sagógrjónagrautur
Uppáhaldsdrykkur? Vatn og fjörmjólk, dagsdaglega, eitthvað
rautt og franskt við hátíðleg fækifæri.
Uppáhaldstónlist? Earl Bostic er í uppáhaldi.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Aðp spila golf í
góðu veðri með góðum félögum. Það ertoppurinn.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að rukka, ég hata
það.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Það
er allt of lítið til að fara að gera eitthvert veður út af
því.
«^^^0113^881)0^11101311130^? Enginn, alveg á|
hreinu.
Uppáhaldsíþróttamaður? Steingrímur
Jóhannesson er í miklu uppáhaldi í sumar,
Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap?
Kiwanis, Golfklúbbnum, Félagi
hjartasjúklinga og ýmsum öðrum sem ég
er ekkert að telja upp hér.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Fréttir.
Uppáhaldsbók? Ég les ekki mikið af
bókum.
Hvað metur þú mest í fari annarra?
Heiðarleika í golfi.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari
______ annarra? Svindl í golfi.
Fallegasti staður sem þú hefur komið
á? Staður í Sviss sem heitir Grindwald.
Hve langt er síðan þú byrjaðir að stunda golf? Ég held að
það séu um það bil fimm ár.
Hvað er skemmtilegast við þessa íþrótt? Útiveran hefur mikið|
að segja og svo skemmir ekki fyrir þegar manni gengur vel.
Hver er uppáhaldsgolfleikarinn þinn? Mark 0 Meara, hann erj
karakter..
Hvað ætlar þú að gera um þjóðhátíðina? Spila golf uppi á
íslandi með góðu fólki.
Hvað dettur þér í hug þegar þú heyrir þessi orð?
-Golf? Það fyrsta sem ég heyrði um golf á sínum tíma var frá
Guðni Gríms. Mér dettur hann alltaf í hug síðan.
-Meistaratitill ? Ánægja.
-Tiger Woods? Góður golfleikari, mætti brosa meira.
Eitthvað að lokum? Já, þessi árangur minn er ekki síst því að
þakka að eiginkonan var kylfuberi hjá mér alla fjóra dagana.
Hún á ekki minnstan þátt í þessu og fær hér með þökk fyrir.
Stúlkur
Þann 18. maí fæddist þeim Berglindi Ruiz Martinez og Juan
Manuel Carrion Molina tvær stúlkur. Þær hafa verið nefndar
Cristina (t.v) sem vó 14 merkur og var 47 sm að lengd, og Laura
sem vó 13 merkur og 49 sm að lengd.
Þær fæddust í Murcia á Spáni.
Drengur
Drengur pann
11. júlí eignuðust
Anna Guðný
Magnúsdóttir og
Ragnar Gunnar
Eiríksson son.
Hann vó 16 1/2
mörk og var 54
sm að lengd. Það
er stóri bróðir,
Magnús Almar
sem heldur á
honum.
Ljósmóðir var
Guðný
Bjamdóttir.
Drengur
Þann 29. júní eignuðust Una Sígríður Ásmundsdóttir og
Oskar Kjartansson son. Hann vó 14 merkur og var 51
sm að lengd. Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir.
/
23. júlí Sýningu lýkur á hugmyndum afnýju
Náttúruminja og sjávarlífssafni
i Náttúrugripasafninu
24. júlí Vitinn, prýði Dalsins settur upp.
30. júlí Húkkaraball
31. júl. -3. úg. Þ jóðhátíð
10. -15. sept Keikó kenutr