Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.1998, Blaðsíða 12
12
Fréttir
Fimmtudagur 23. júlí 1998
j óvissufcrð
ÍsfcLx^sfólkí:
Gott
að
gera
það
saman
Svmgiö *xf Ivjst mcb HclÁ Fclli i fAfArbrobbi.
Á stórum vinnustað getur verið nauðsynlegt að hrissta mannskapinn
saman af og til og efla með því starfsandann. Til þess að svona
samhristingur gangi upp þarf andinn að vera góður og einhverjir sem
nenna að skipuleggja það sem gera á og stjórna því. ísfélagið nýtur þess
að hafa hvort tveggja, frábæran starfsanda að sögn starfsfólks, og síðast
en ekki síst systurnar Þuríði Georgsdóttur og Hildi Stefánsdóttur sem
þora, nenna og geta.
Þessu fengu Fréttir að kynnast þegar þeim var boðið í óvissuferð hjá
ísfélaginu. Reyndar var þátttaka blaðamanns í ferðinni eitt af
óvissuatriðunum í ferðinni. Safnast var saman við Isfélagið á
laugardagskvöldi, samtals hátt í 100 manns sem skipað var í tvær rútur.
Þarna komu Ijós stjórnunarhæfileikar Þuríðar, sem raðaði í rúturnar af
mikilli röggsemi og var aldurinn látinn ráða.
Strax og rúturnar lögðu af stað var Ijóst að hverju stefndi, mikið fjör
var í uppsilgingu og greinilegt að allir ætluðu að skemmta sér hið besta.
Frá ísfélaginu var haldið að Suðurgarði þar sem mikil leit var gerð að
umslagi sem gaf upplýsingar um hvað gera ætti næst og þá kom í ljós að
efna átti til keppni milli rútanna. Þar reyndi bæði á listræna hæfileika og
krafta keppenda og dómarar voru Sigurður Einarsson forstjóri og
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri.
Fyrst reyndu liðin með sér í listsköpun á flötinni við Friðarhöfn þar
sem unga fólkið hafði umtalsverða yfirburði að mati dómara. Þaðan var
lialdið á Stakkó þar sem liðin reyndu með sér í söng og þar kom sá og
sigraði eldra settið með miklum glæsibrag.
Þaðan var haldið austur á Skans þar sem grillveisla beið fólksins. Áður
en ráðist var á krásirnar var efnt til reiptogs sem ætlað var að skera úr
um hvort liðið hlyti bikarinn sem í boði var. Þar hafði eldra settið betur
enda státaði það af fleiri aukakílóum sem stundum geta komið sér vel.
Þegar hér var komið sögu var haflst handa við að sporðrenna krásum
sem Grímur Gísla og hans fólk hafði upp á að bjóða. Fólk settist í grænt
grasið og naut bjartrar sumarnæturinnar í góðum félagsskap. Þarna
voru málin rædd og krufin án þess að kæmi til vandræða og þegar upp
var staðið var fólk sátt. Þar með var tilganginum náð. Á mánudeginum
hófst ný vinnuvika sem hafði það umfram flestar að nú var hægt að
spjalla um nýliðið laugardagskvöld sem hafði verið kvöld starfsfólksins.
Tilgangurinn var að gera það saman og það tókst.
Keflcó v.\f viöf.MigscfHi 11115.1
fÓlllSÍHS Og SljHbi þ.lö IHÍkl.1
vjfirbviröi i br.ittlistiHHi.
G.mhI.i scttiB tcknr I.15Í& .i St.ikkó.
V/HsliHS.irHÍr i Isfcl.isÍHH vot H .i .iII.ih Vi.itt til fv)rir»HV)H&.ir