Fréttir - Eyjafréttir - 29.07.1998, Qupperneq 11
Miðvikudagur 29. júlf 1998
Fréttir
11
Fjör í vinnuskólanum
-sem er með stærstu vinnu-
stöðum bæjarins á sumrin
Flestir Vestmannaeyingar sem
fæddir eru í kringum 1970 og síðar
hafa stigið sín fyrstu skref í
atvinnulífinu í vinnuskóla bæjarins.
Það fer ekki mikið fyrir starfsemi
skólans í bæjarlífinu nema hvað
víða má sjá ungiingahópa með
hrífur og önnur verkfæri að raka,
hreinsa og taka til á opnum
svæðum í bænum. Vinnuskólinn er
með stærstu vinnustöðum í bænum
og heyrir undir íþrótta- og
æskulýðsráð.
Guðmundur Þ.B. Ólafsson, tóm-
stunda- og íþróttafulltrúi hefur yfir-
umsjón með vinnuskólanum. I samtali
við Fréttir segir Guðmundur að skipta
megi starfseminni í þrennt þar sem
sameinað er starf og leikur. „Sumar-
starfíð hjá okkur skiptist í vinnu-
skólann sem er fyrirferðarmestur,
skólagarðana, spröngukennsluna og
kofaleikvöllinn við Húsey. I þetta
fáum við 6,3 milljónir frá bænum og
fara um 5 milljónir af því í laun til
unglinganna og leiðbeinenda þeirra,“
segir Guðmundur. „Er ekki annað að
sjá en að við verðum réttu megin við
strikið," bætir hann við og segir það
m.a. að þakka góðu atvinnuástandi í
bænum sem nær til unglinganna.
I vinnuskólanum er boðið upp á
vinnu fyrir unglinga í sjöunda, áttunda
og níunda bekk grunnskóla, samtals
um 300 unglingar og fengu mun fleiri
þeirra vinnu í frystihúsunum en
undanfarin ár. Nær það jafnvel til
unglinganna í áttunda bekk. Vinnu-
skólanum er skipt niður í tvö sex vikna
tímabil og er seinna tímabilið ný-
byrjað. I fyrri hlutanum voru 130 en
þeim seinni ekki nema tíu. Laun eru
mismunandi eftir aldri og fyrir sex
vikurnar eru unglingamir að fá frá
18.000 til 30.000 krónur.
„Við byrjuðum í fyrrasumar að
skipta skólanum í tvö tímabil og hefur
það mælst vel fyrir. Þannig komast
allir að hvort sem þeir fara í
sumarleyfi fyrri eða seinni hluta
sumars.“
Krakkamir em þrjá og hálfan tíma í
vinnuskólanum á dag, áttundu- og
níundubekkingar fyrir hádegi og þeir
yngri eftir hádegi. „Starfsemin byggist
á vinnu og leik enda launin miðuð við
það. Ef þau hafa verið dugleg er farið
í fjömferðir, skoðunarferðir eða
Sprönguna. Fyrir utan þetta er farið í
bátsferð, útilega hefur stundum verið
en henni var ekki hægt að koma við í
sumar því hver einasta helgi var ásetin
og í lokin er svo grillhátíð og íjör.“
Verkefni em af ýmsu tagi en þau
eru unnin í samvinnu við tæknideild
og áhadlahús. Tiltekt ýmiss konar er
fyrirferðarmest, einnig sjá þau um
rakstur lóða fyrir eldri borgara og á
opnum svæðum. Aldrei þessu vant
vantaði flokksstjóra til að fara fyrir
unglingunum. „Við auglýstum eftir 13
flokksstjómm en það er talandi dæmi
um mikla atvinnu í bænum að ekki
tókst að fylla í allar stöðumar. Fyrir
vikið em of margir unglingar á hvem
flokksstjóra sem er ekki heppilegt.
Vegna atvinnuástandsins undanfarin
ár hefur gilt sú regla að kennarar hafa
ekki verið teknir inn en kannski
verðum við að fara breyta þessari
reglu. Það væri góður kostur að fá
kennara án þess að ég sé að kasta rýrð
á flokkstjórana undanfarin ár,“ sagði
Guðmundur að lokum.
Krakkarnír í Vinnuskólanum unnu m.a. mikíð að undirbúningi goslokahátíðarinnar í sumar.
Kristín Gígja
og Ingibjörg
eru sáttar við
laun og kjör
Kristín Gígja Sigurðardóttir og
Ingibjörg Þórðardóttir eru 13 ára
og eru báðar í vinnuskólanuni í
fyrsta skipti.
„Mér líkar mjög vel í
vinnuskólanum og fínnst
ógeðslega gaman. Mest gaman
þykir mér að raka,“ segir Kristín
Gígja sem líka er að passa á
kvöldin og ber út DV. „Við
byrjum klukkan eitt og vinnum
fram að þrjú kaffi en eftir það
förum við í fjöruferðir eða leiki.“
Ingibjörg, sem líka ber út
Fréttir og passar börn, hefur
sömu sögu að segja, hún er ánægð
í vinnuskólanum og þær eru
sammála um að þær séu látnar
vinna og þetta sé ekki bara leikur.
„Við fáum 176 krónur á tímann
og erum bara ánægðar með það.
Það er ekki hægt að fara fram á
meira þegar maður er bara 13
ára,“ sögðu þær stöllur. Og þær
eru ánægðar með krakkana og
flokksstjórana. „Þarna eru
skemmtilegir krakkar og og
flokkstjórarnir, Kristín Inga og
Bryndís eru frábærar," sögðu
þær.
Eitthvað að lokum? „Allir í
vinnuskólann,“ kvað við í einum
rómi frá þeim Kristínu Gígju og
Ingibjörgu.
Gerð stóra drekans sem var í skrúðgöngunní á goslokaafmælinu var eitt
af verkefnum vinnuskólans í sumar. Mvndir Haiia Einarsdóttir.
Halla Einarsdóttir flokksstjóri:
Skemmtilegt
að vinna með
krökkunum
Halla Einarsdóttir reyndi fyrir sér
sem flokksstjóri við Vinnuskólann í
fyrsta skipti í sumar og hún sér ekki
eftir því. „Mér Iíkaði starflð mjög
vel og það er virkilega skemmtilegt
að vinna með krökkunum,“ segir
Halla.
A hverjum morgni var var hist á
ákveðnum stað og þau fengu að vita
hvað gera átti þann daginn. „Það fer
ákveðinn tími á dag í vinnu og þá eru
þau Iátin vinna en svo fá þau að leika
sér. Fá þau borgað í samræmi við
það.“
Krakkamir í vinnuskólanum komu
að undirbúningi goslokahátíðarinnar.
„Þau unnu mikið verk fyrir
goslokahátíðina, bæði í vinnutima og
í sjálfboðavinnu. Sum unnu allan
daginn og um helgar. Við hreinsuðum
út úr veiðarfærahúsinu við
Hilmisgötuna. Krakkamir bjuggu til
allar skreytingar og komu þeim upp
vítt og breitt um bæinn. Einnig bjuggu
þau til drekann og orminn í
skrúðgöngunni og tóku til og
hreinsuðu til. Þannig að krakkarnir í
vinnuskólanum eiga sinn þátt í því
hvað hátfðin heppnaðist vel,“ sagði
Halla að lokum.
Unniö uíð gerð skreytinga fyrir goslokahátfðína.