Fréttir - Eyjafréttir - 29.07.1998, Page 12
12
Fréttir
Miðvikudagur 29. júlí 1998
Brennukóngurinn
ætlar að slá met
Finnbogi Gunnarsson brennukóngur
Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri:
Pylsubrauð á
goslokaafmæli
Finnbogi Gunnarsson er
brennukóngur á bjóðhátíð í ár.
Hann tók við þessu virðulega
embætti fyrir þremur árum af
Sigga Reim, sem gegnt hafði
embættinu í 51 ár. Finnbogi segir
að hann stefni leynt og ljóst að því
að slá met Sigga Reim.
En hvemig stóð tí því að Finnbogi
fékk þetta sœmdarembœtti?
„Það kom nú kannski ekki til af
góðu, því að Siggi lenti í bílslysi við
Hveragerði og slasaðist, svo hann
treysti sér ekki til þess að halda starf-
inu áfram. Þess vegna var leitað til
mín og ég var ekki lengi að segja já
við þessari ósk."‘
/ hverju erstarfið aðallega fólgið?
„Ég sé um að safna efni til brenn-
unnar og hef með mér yndislega menn
á vörubíl. Við förum síðan rúnt um
bæinn til þess að viða að okkur efni á
brennuna. En það er ekki alltaf sami
bílstjórinn. “
Hvað er það aðallega sein brennt
er?
„Mest eru þetta ónýt bretti, raf-
magnskefli og timbur af ýmsu tagi. í
eina tíð voru stundum voru settir
gamlir bátar á brennuna en því er
alveg hætt núna?“
Sérð þú ekki um að hlaða köstinn
líka?
„Jú ég er með í því, en það er
aðallega l'ólgið í því að sjá um að
kösturinn sé skikkanlega hlaðinn. Til
þess að allt hrynji ekki er hann
vírbundinn og það verður allt að vera
vel gert.“
En þegar kemur að því að kveikja í
brennunni, er það ekki hátíðlegt og
mikil athöfn?
„Jú,jú,“ segir Finnbogi. „Klukku-
tíma áður en kvcikl er í er búið að
hella olíu á brennuna. Ég mæti hins
vegar hálftíma fyrir miðnætti, en á
miðnætti cr alltaf kveikt í brennunni.
Síðan er kveikt í kyndli sem búinn er
að liggja í olíu í tvo sólarhringa. Síðan
er kyndillinn borinn smá hring um
svæðið og tveimur mínútum fyrir
miðnætti er skotið upp rakettu sem
gefur fólkinu til kynna að kveikja eigi
í brennunni. Þá er ég kominn úr
hringferðinni og hliðið opnað sem ég
geng inn um og ber kyndilinn að
kestinum."
Hefur þetta ekki alltaf gengið
samkvœmt áœtlun síðan þú tókst við?
„Jú það hefur aldrei neitt óvænt
komið upp á og veðrið alltaf verið
ntjög gott.“
Hvað er skemmtilegast við starf
brennukóngs?
„Mér finnst nú skemmtilegast að
safna efninu í brennuna, en það er
samt erfitt að gera upp á milli. Það er
allt í kringum þetta ntjög skemmti-
legt.“
Þú sagðir áðan að þú œtlaðir að slá
metið hans Sigga Reim.
„Ég er bara tuttugu og fimm ára svo
að ef ég held góðri heilsu, þá á ég
góða möguleika á því að slá metið
hans.“
í síðustu Fréttum var fyrirspurn frá
Bergi Sigmundssyni bakara.
varðandi kaup á pylsubrauðum sem
boðið var upp á í grillveislu í
Skansfjöru á goslokaafmælinu.
Fyrirspumin er í nokkrum liðum en
ég tel best að gera grein fyrir því
hvernig var staðið að þessu í sam-
felldu máli.
Undirritaður santdi við Heild-
verslun Karls Kristmanns að sjá um
kaup á öllu því sem þyrfti í
grillveisluna og einnig náðist
samkomulag um afslátt.
Heildverslunin er umboðsaðili fyrir
SS pylsur og selur allt hráefni sem til
þarfog starfsmenn þar vita meira unt
magntölur en við sem stóðum að
þessu goslokaafmæli. Samkomu-
lagið byggðist á því að þeir hjá KK
kæntu á sinni bifreið og með mann í
Skanstjöru, okkur að kostnaðítrlausu
og tækju allt til baka (þ.m.t.
pylsubrauð) þannig að aðeins yrði
greitt fyrir það sem nýttist.
Þegar sú ákvörðun var tekin að
versla við heildverslun í Eyjum þá
voru engin frekari skilyrði sett af
okkar hálfu. Pylsubrauðin, sem
boðið var upp á, voru framleidd af
Myllunni en Heildverslun KK er
umboðsaðili fyrir Mylluna.
Virðingarfyllst
Guðjón Hjörleifsson
LESENOABREF - Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks skrifar
Hækkun afsláttar til nýrra fyrir-
lækja og viðtalstímar bæjarfulltrúa
Á seinasta fundi bæjarstjórnar
var samþykkt eftirfarandi tillaga,
sem var tlutt af bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins:
„Bæjarstjóm Vestmannaeyja sam-
þykkir að veittur verði 40% afsláttur af
gjaldskrá bæjarsjóðs og stofnana hans
til þeiira fyrirtækja sem stuðla að
nýjum atvinnutækifærum og nýsköp-
un í Vestmannaeyjum. Afslátturinn
skal gilda í 3 ár.
Um er að ræða fasteignaskatt, þjón-
ustugjöld hafnarsjóðs, orku- og
sorpeyðingargjöld. Sækja skal um af-
sláttinn til bæjarritara Vestmanna-
eyjabæjar en bæjarritari metur hæfni
umsækjenda að fenginni umsögn
Þróunarfélags Vestmannaeyja og gerir
tillögur til bæjarráðs um afsláttinn.
í matinu skal tekið tillit lil þess að hve
miklu leyti er um nýsköpun að ræða
og meta hlutfall nýsköpunar miðað
við hefðbundinn rekstur ef því er að
skipta.
Einnig skal ntiða við að ekki sé um
samkeppni að ræða við þau fyrirtæki
sem fyrir eru í Vestmannaeyjum.”
Greinargerð:
Flutningsmenn tillögunnar telja
mjög brýnt að efia ný atvinnufyrirtæki
sem vilja hefja starfsemi í bænum og
telja eðlilegt að stuðningur bæjar-
yfirvalda við ný fyrirtæki komi fram
sem afsláttur á gjaldskrá bæjarins og
stofnana hans.
Þessi afsláttur var áður 35% en nú
er lagt til að fara með hann í 40% og
lengja tímabilið úr 2 árum í 3 ár. Með
þessu em bæjaryfirvöld að sýna í verki
stuðning við nýsköpun í atvinnulífi í
Vestmannaeyjum.
Reglumar sem vom áður í gildi
vom um það að þessi afsláttur væri
35% og gilti í tvö ár. Því miður hefur
þessi afsláttur ekki verið mikið
notaður undanfarin ár en samt töldu
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
eðlilegt að lengja afsláttartímabilið og
hækka afsláttinn til þess að gefa
nýjum fyrirtækjum möguleika á að
hasla sér völl og styðja við starfsemi
þeirra. Það er von fiutningsmanna að
þetta verði notað sem mest.
I bæjarráði þar sem tillagan var
upphafiega lögð fram óskaði Ragnar
Oskarsson, bæjarfulltrúi V-listans,
eftir að gerast meðflutningsmaður og
var tillagan samþykkt 7:0 í
bæjarstjóm, þannig að það er ljóst að
það er öll bæjarstjórnin sem stendur
heilshugar á bak við þetta góða mál.
Viðtalstímar bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
Á seinasta bæjarstjómarfundi var tekin
til afgreiðslu tillaga bæjarfulltrúa V-
listans um fasta viðtalstíma bæjar-
fulltrúa. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins felldu þessa tilllögu á
fundinum með bókun.
í þeiiri bókun kemur fram að
bæjarfulltrúar Sjálfstæðisfiokksins
telja óeðlilegt að ákveðinn sé fastur
viðtalstími bæjarfulltrúa. Það er eitt af
verkefnum bæjarfulltrúa að upplýsa
bæjarbúa um það sem er að gerast á
vettvangi bæjarmála. Bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins hugsa sér að gera
það þannig að vera með bæjar-
málafundi um hin ýmsu mál í Ásgarði,
félagsheimili sínu, eftir því sem þörf
krefur hverju sinni. Bæjarfulltrúar
munu líka skrifa greinar í blöð og
upplýsa um þau mál sem verða á
döfinni til þess að bæjarbúar fylgist
með.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
auglýsa símanúmer sín þar sem
bæjarbúar geta beðið um viðtalstíma
við þá hvenær sem hentar en ekki á
ákveðnunt föstum viðtalstímum.
Bæjarfulltrúar eru til þjónustu fyrir
bæjarbúa og bæjarbúar geta nálgast þá
hvenær sem er. Þess vegna vilja
bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-flokksins
koma á framfæri símanúmerum sínum
en þau eru:
Sigurður Einarsson 481-2312 heima-
sími, Elsa Valgeirsdóttir 481-2079
heimasími, Sigrún Inga Sigur-
geirsdóttir 481-3314 heimasími og
Guðjón Hjörleifsson 481-2548
heimasími.
Bæjarbúar sem vilja hitta bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins geta bæði
hitt einstaka bæjarfulltrúa eða alla og
er nægilegt að hringja í einn af þeim
og þeir geta komið slíkum fundi á.
Við viljum hvetja alla bæjarbúa til
þess að hafa samband eftir því sem
þörf krefurum hin ýmsu mál.
Sigurður Einarsson
Elsa Valgeirsdóttir
Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir
Guðjón Hjörleifsson
Höfundar eru allir bœjarfulltrúar
Sjálfstœðiflokksins.