Fréttir - Eyjafréttir - 29.10.1998, Síða 16
16
Fréttir
Fimmtudagur 29. október 1998
Helgi Jóhannsson forstjóri Samvinnuferða-Landsýnar:
Keikó getur orðið fll að auka
flölda ferðamanna til Eyja
-En til þess að svo geti orðið þurfa heimamenn að stilla saman
strengi sína og hjóða upp á fjölbreyttari afþreyingu
StarfsmennSLsemhérvoniáferð,f.u. HelgiJðhannsson, Gunnar ðrn Bírgisson og Heiðar Ingi Suansson.
Forráðamenn Samvinnuferða-
Landsýnar voru hér á ferð í síð-
ustu viku að ræða við aðila í ferða-
þjónustu. SL sáu um allar bókanir
á gistingu í Vestmannaeyjum
vegna komu Keikós og var til-
gangur ferðarinnar hingað meðal
annars að svara gagnrýni hótel-
haldara í Eyjum sem sumir héldu
því fram að þarna hefði SL makað
krókinn meira en góðu hófi
gegndi. Helgi segir að þarna hafí
verið urn misskilning að ræða og
nú sé komið að því að blása til
sóknar í ferðþjónustu í Eyjum þar
sem Keikó geti verið lykillinn að
auknum fjölda ferðamanna. Til
þess segir hann að aðilar í
ferðaþjónustu þurfi að stilla
saman strengi sína og líta m.a. til
þess hvernig megi finna af-
þreyingu fyrir fólk sem hér dveldi
lengur en hluta úr degi eins og
algengast er með ferðamenn í dag.
Af því tilefni efnir SL til hug-
myndasamkeppni þar sem verð-
launin eru utanlandsferð.
Þegar ljóst var að háhymingurinn
Keikó kæmi til Vestmannaeyja lá
strax fyrir að mikill fjöldi fjöl-
miðlafólks kæmi hingað til að vera
við komu hans. Var ákveðið að
ráðstöfun alls gistirýmis yrði á hönd-
um eins aðila og var ekki óeðlilegt að
það kæmi í hlut Samvinnuferða -
Landsýnar sem hefur langa reynslu í
móttöku ferðamanna. „Frá upphafi
höfum við samhliða því að senda
íslendinga til útlanda reynt að laða
erlenda ferðamenn til íslands," segir
Helgi Jóhannsson forstjóri SL sem
var meðal þeirra sem kom í samtalið
við Fréttir. „Veltan í móttöku
erlendra ferðamanna til landsins er
unt 500 milljónir króna og
starfsmenn sem sinna þessu eru 21
sem er á við eitt meðalstórt fyrirtæki.
Við höfum m.a. nýtt okkur að búa til
gagnkvæmt leiguflug, _ þar sem
útlendingar koma til íslands og
dvelja hérna jafnlengi og íslend-
ingamir sem fara út með flug-
vélinni.“
Helgi segir að fyrirtæki sitt hafi
lagt mikla vinnu í að þjónusta blaða-
og fréttamenn sem hingað komu
vegna Keikós. Sú vinna hafi náð til
allra þátta og verið mun untfangs-
meiri en yfirleitt gerist. Fyrir þessa
þjónustu hafi fréttafólkið borgað í
einum pakka og þessi upphæð hafi
valdið nokkrum misskilningi ferða-
aðila í Vestmannaeyjum. „A fundi
með Eyjamönnum fórum við yfir
samskipti okkar við fréttamennina og
lögðum frant gögn unt hvað lá að
baki þeim verðum sem við settum
upp. Málið er, að við settum upp
pakka sem innihélt flug til og frá
Islandi, hótel í Reykjavík og
Vestmannaeyjum, akstur og ferðir til
Vestmannaeyja. Það sem gagnrýnt
hefur verið er hvað aukanætur voru
dýrar. Þessi gagnrýni kom frá aðilum
í Vestmannaeyjum en ekki frá þeim
sem greiddu fyrir þjónustuna. Menn
verða að gera sér grein fyrir því hvað
þama liggur að baki. Við vomm með
fimm starfsmenn sem eingöngu
sinntu þessu verkefni í alls sex vikur.
Þama vorum við að þjónusta
blaðamenn sem eru erfiðustu ferða-
ntenn sent við höfum haft reynslu af.
Þetta kostaði sitt og við gátum ekki
velt kostnaði yfir á aðra en við-
skiptavinina. Svo verður að hafa í
huga að í upphafi var reiknað með
allt að 700 blaðamönnum en þeir
urðu 250,“ segir Helgi.
Erfltt að þjóna
blaðamönnum
Hann segir að forráðamenn Free
Willie Keikósjóðsins hafi lagt
áherslu á að blaðamenn fengju eins
jákvæða ímynd af íslandi og
Vestmannaeyjum og kostur var.
„Þeir samþykktu öll verð sem við
lögðum fyrir þá og ítrekuðu að við
mættum ekki klikka á þjónustunni."
Sem dæmi um hvað erfitt er að
þjónusta blaða- og fréttamenn tók
Helgi dæmi um eina af stóru sjón-
varpsstöðvunum sem bað SL um að
útvega flutningabíla og mjög fjöl-
breytta þjónustu án þess að borga
krónu fyrirfram sem yfirleitt tíðkast f
ferðamennsku. „Svo kom eitthvað
upp á í heimsfréttum sem þeim
fannst meira virði. Þeir afpöntuðu
ferðina hingað nteð stuttum fyrirvara
og eftir sátum við með sárt ennið Við
lögðunt upp með að bjóða upp á
góða þjónustu og eftir því sem við
vitum best fóru allir ánægðir heim.
En þetta kostaði mikla vinnu og
rosalegt álag á okkar fólk og
kostnaðurinn varð að nást af
fféttafólkinu."
Aðspurður um framtíðina sagði
Helgi að vera Keikós í Vest-
mannaeyjum byði upp á óendanlega
möguleika fyrir ferðamannaiðnaðinn
og nú lægi fyrir leyfi frá FWK-
samtökunum til að nota nafn Keikós
í markaðssetningu á Eyjum. En
Helgi segir að meira þurfi að koma til
en Keikó, ætli menn að fá ferðamenn
til að stoppa hér lengur en hluta úr
degi eins og algengast er. „Þar þarf
að koma til afþreying fyrir ferða-
menn sem hingað til hefur verið af
skornum skammti. Til að bregðast
við þessu hafa Santvinnuferðir-
Landsýn ákveðið að efna til hug-
myndasamkeppni um það hvaða
afþreyingu Vestmannaeyjar geta
boðið upp á. Verðlaunin eru helgar-
ferð fyrirtvo til Dublin.“
Helgi leggur áherslu á að gott
samstarf hafi strax náðst við
Þróunarfélag Vestmannaeyja og það
eigi við fleiri aðila í Eyjum. „Nú er
komið að Eyjamönnum að koma
með hugmyndir og sameinast um
þetta verkefni. Þið verðið að vinna
saman og þá getum við í sameiningu
aukið veg ferðamannaiðnaðarins í
Vestmannaeyjum,'1 sagði Helgi
Jóhannsson að lokum.
Kiwanisfélagar gefa
Sjúkrahúsinu boðtæki
Eins og fram kom í Fréttum 17.
september sl. skapaðist neyðar-
ástand á Heilbrigðisstofnun Vest-
mannaeyja, þegar ekki náðist í
skurðlækni stofnunarinnar vegna
þess að boðtæki hans var bilað
Félagar í Kiwanisklúbbnum Helga-
felli brugðust skjótt við og ákváðu
að gefa stofnuninni boðtæki svo að
tryggt yrði að hægt væri að ná í
Iækni í neyðartilvikum.
Á dögunum fór fram formleg af-
hending tækjanna, þar sem Páll
Guðjón Ágústsson forseti Kiwanis-
klúbbsins afhenti Heilbrigðisstofn-
uninni gjafabréf til staðfestingar
gjöfinni. Um er að ræða 12 boðtæki
af gerðinni Motorola instinet plus.
Páll Guðjón sagði við þetta tækifæri
að það væri klúbbnum sönn ánægja að
geta hjálpað stofnuninni með af-
hendingu boðtækjanna og vonaði að
þau mættu auka öryggi hennar og
þeirra sem til hennar leita.
Gunnar K. Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar
Vestmannaeyja tók við gjafabréfinu
fyrir hönd stofnunarinnar. Hann
þakkaði Kiwanisfélögum gjöfina og
sagði að tími hafi verið komin til að
skipta út gömlu boðtækjunum og
bætti við að stofnunin gæti seint
þakkað að fullu öllum þeim aðilum
sem sýnt hefðu henni velvild með
gjöfum og fjárframlögum af ýmsu
tagi.
Á myndinni sem tekin var við þetta
tækifæri eru fr.v. Selma Guðjónsdóttir
hjúkrunarforstjóri, Gunnar K.
Gunnarsson framkvæmdastjóri, Páll
Guðjón Ágústsson, forseti Kiwanis-
klúbbsins Helgafells, Elías Bald-
vinsson formaður styrktamefndar
Kiwanisklúbbsins, Guðný Bogadóttir
hjúkrunarfræðingur og Víðir Oskars-
son læknir.
FIMM ÆTTLIÐIR uoru komnir saman á 85 ára afmæli Sigurbjargar
Sóleyjar Böðuarsdóttur sem fæddist 21. október 1913. Með henni eru dóttir
hennar, Guðlaug Sigríður Gunnarsdóttir, fædd 23. iúlí1939, Marta dóttir hennar,
fædd 1. febrúar 1959, hennar sonur, Guðjón Ágúst Guðjónsson og loks Sóley
Björk Guðjónsdóttir sem situr í fangi langalangömmu sinnar en Sóley er fædd
9. apríl á bessu árí.