Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 03.12.1998, Blaðsíða 16

Fréttir - Eyjafréttir - 03.12.1998, Blaðsíða 16
FLUTNINGAR ■ VESTMANNAEYJUM úttaktoesr hnnrt á faitd titm sr. WwlVjlHI IVIWH IIIWI H IHMfl ^WII WI Voruafgreiðsla Sklldlngovegi 4 Sfml 4S1 3440 Vöruafgreiðsla í Reykjavik ASaMuhiingar Héðinsgöta 3 Simi 581 3030 Sendibílaakstur innanbæjar. Vilhjálmur Bergsteinsson seefaiFER0A8iu 0481-2943, iP 897-1178 Landsbankinn lánar bænum 400 milljónir: lækkar fjár- magnskostnað um tfunda hluta -Óhagstæðari lán hjá bæjarsjóði, hafnarsjóði og félagslega húsnæðiskerfinu verða greidd niður í gær undirrituðu fulltrúar Lands- bankans og Vestmannaeyjabæjar stóran lánasamning. Með því á að greiða upp óhagstæðari lán og létta greiðslubyrðina. Samtals er um að ræða rúmlega 400 milljónir sem bærinn tekur að láni hjá Landsbankanum. Lánið er með mjög hagstæðum kjömm fyrir bæinn. að því er kom fram við undirritunina. Gerir samningurinn það að verkum að fjármagnskostnaður lækkar vemlega. Lánið er til 20 ára og munu fjármunimir verða notaðir tii að greiða niður óhagstæðari lán hjá bæjarstjói, hafnarsjóði og félagslega húsnæðis- kerfinu og jafnframt vegna fram- kvæmda á þessu ári. Guðjón Hjörleifsson bæjarstjóri og Halldór Kristjánsson bankastjóri undirrituðu samninginn. Guðjón sagðist vera mjög ánægður með samninginn. „Við buðum út ákveðinn pakka og Landsbankinn átti ein- faldlega hagstæðasta tilboðið. Ef ég tek bæjarsjóð sem dæmi þá samsvarar þetta því að við lækkum kostnað við þær skuldir, sem þæessi samningur nær til, um 10%,“ sagði Guðjón. „Þetta er hluti af áætlun Lands- bankans í að fá fleiri sveitarfélög í viðskipti við okkur,“ sagði Halldór Kristjánsson bankastjóri. „Einnig emm við að koma okkur inn á markað í Vestmannaeyjum í samstarfi við Islandspóst. Þar ætlum við okkur stærri hlut og verður það kynnt nánar á næstu dögum. Fyrir mig per- sónulega er þessi áfangi mjög ánægjulegur. Ég á ættir að rekja til Vestmannaeyja og bjó hér um tíma sem drengur," sagði Halldór enn- fremur. Orðum auk- inn sauða bjófnaður Fréttir af sauðfjárbændum í Eyjum hafa verið fyrirferðar- miklar upp á síðkastið. Undanfama daga hafa gengið sögur af sauðaþjófttaði en æði langt mun síðan slík mál hafa komið upp hér á landi. Tryggvi K. Ólafsson, rannsóknarlögreglumaður, kannaðist ekki við að nokkurt slíkt mál væri inni á borði lögreglu. Fréttir hafa fyrir satt að einn úr hópi sauðfjárbænda hafí saknað dilks úr fjárhópi sínum og vaknað hjá honum gmnsemdir um að ekki væri allt með felldu. Málið mun upplýst og ekkert saknæmt sem því tengist enda em sauðfjárbændur í Eyjum með grandvarari og ifómari mönnum. Hmmtán stúdentar Próf eru nú að hefjast í Framhaldsskólanum en í dag, fimmtudag, er síðastl kennsludagur. fllls munu 15 stúdentar útskrifast af haustönn hjá Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum að hessu sinni. Þá munu og útskrifast 15 vélaverðir og eru sex heirra nemendur við skipstíórnarbraut skólans en heir bættu vélavarðarnámínu við stýrimannsnámið. Útskrift bessara nemenda verður laugardaginn 19. desember. Myndin var tekin begar stúdentsefnin „dimmiteruðu" á dögunum. Mlkll blóðtaka ífótbottanum Ljóst er að tveir af lykilmönnum meistaraflokks IBV síðasta sumar eru á förum. Enn er óljóst með einn til viðbótar hvort hann verður með eða ekki. Ljóst er að bæði Kristinn Lárusson og Steinar Guðgeirsson leika ekki með IBV næsta sumar. I báðum tilfellum er það atvinna sem þar spilar inn í. Þá er ekki ennþá ljóst hvort Ingi Sigurðsson verður með. Eins og áður hefur komið fram kemur Baldur Bragason frá Leiftri til ÍB V en að öðru leyti hefur ekki tekist að fylla þau skörð sem fyrmefndir leikmenn skilja eftir sig. Jóhannes Olafsson, formaður knattspymudeildar IBV segir að ekkert sé fast í hendi í þeim efnum. „Það em engir menn á lausu en við munum horfa meira til okkar ungu stráka og stefnum að því að gefa þeim tækifæri næsta sumar,“ sagði Jóhannes. /W/W/vyv ti y # Uilberg kökuhús kynnir jólabakstur Vilbergs Kynning á Indwersfcu PATAK's sósum_ og kryddi KOIIIÍð og fáið

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.