Fréttir - Eyjafréttir - 03.12.1998, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 3. desember 1998
Uppmeðendur-
skinsmerkin
Aldrei er of varlega farið í um-
ferðinni og á það ekki síst við í
svartasta skammdeginu sem nú er
að ná hámarki. Athugull bflstjóri
kom að máli við Fréttir og benti á
að notkun endurskinsmerkja væri á
undanhaldi. Ætti það bæði við böm
og fullorðna. Vill bflstjórinn hvetja
fólk til að drífa upp endurskins-
merkin því þau séu einfaldasta og
ódýrasta vömin í umferðinni.
Erill á aðventu
Aðventa gekk í garð sl. sunnudag.
Ekki er hægt að segja að þessi
biðtími jólahátíðar hafi hafist með
friðsamlegum hætti. Eftir nokkrar
rólegar helgar æstist leikurinn
nokkuð. Alls voru 156 færslur í
dagbók lögreglu og er það nokkru
meira en undanfarnar vikur.
Talsverð ölvun var um helgina
enda margir að skemmta sér.
Enn fíkniefní á ferð
Tvö ffkniefnamál komu upp um
helgina. Maður nokkur var stöðv-
aður vegna gruns um fíkniefna-
misferli og fannst á honum 0,1
gramm af hassi sem ekki telst
mikið en ólöglegt engu að síður. Þá
gerði lögregla húsleit vegna gruns
urn fíkniefnaneyslu og fundust. þar
áhöld til neyslu fíkniefna en engin
fíkniefni. „Þar sem er reykur, þar
er eldur,“ segir gamalt máltæki og
tækin voru gerð upptæk.
Brutuuppspilakassa
Nokkrir hafa haft heppnina með sér
í spilakössum Háskóla íslands og
unnið þar dágóðar fúlgur. Þó munu
þeir fleiri sem hafa tapað þar ié.
Einhver úr þeirra hópi hefur vænt-
anlega talið eðlilegt að fá eitthvað
af því greitt til baka. Á föstudag
urðu starfsmenn veitingahússins
Lundans varið við að brotist hafði
verið inn á staðinn um nóttina,
spilakassi sprengdur upp og úr
honum hirt talsvert af peningum.
Lögregla óskar eftir upplýsingum
frá þeim sem kunna að hafa orðið
varir við grunsamlegar mannaferðir
við Lundann aðfaranótt síðasta
föstudags.
Rúðubrotogpústrar
Utn helgina var óskað eftir aðstoð
lögreglu í heimahús þar sem
gestkomandi hafði brotið rúðu í
hurð. Þá voru einnig brotnar rúður
í Hótel Bræðraborg og versluninni
Miðstöðinni. Ein líkamsárás var
kærð til lögreglu en þar munu
meiðsl hafa verið minniháttar.
Öhöppíumferðinni
Þrjú umferðarlagabrot voru skráð
hjá lögreglu í vikunni. Tveir voi'u
kærðir vegna hraðaksturs og einn
fyrir að aka gegn einstefnu. Tvö
umferðaróhöpp urðu og í vikunni.
Ekki urðu slys á fólki en nokkurt
tjón á ökutækjum. Og á miðviku-
dag í síðustu viku var lögreglu
tilkynnt að ekið hefði verið utan í
bfl við Hvítingaveg. Skaðvaldurinn
lét sig hverfa al' veltvangi og óskar
lögregla eftir vitnum að atvikinu.
TýndurGSM
GSM sími, Ericsson, svartur með
silfurlitaðri framhlið, týndist á
Höfðanum á föstudagskvöldið.
Finnandi hringi í s. 896-9921 eða
skili honum á Fréttir.
Fréttir
Bandaríski sendiherrann vill koma skólum hér í alþjóðlegt samstarfí vísindum:
Vísindastarf ungs fólks er lykill
að flölbreyttara atvinnulífl hér
og hefur þannig jákvæð áhrifá búsetuskilyrði, segir Bjarki Brynjarsson
Frá fundi Day Mount með fulltrúum bæjaríns og skólasUórum. Frá vinstri, Bjarki Brynjarsson, Day Mount
Halldóra Magnúsdóttlr skólastjóri, Sigurður Símonarson, Hjálmfríður Sveinsdóttir skólastjórí og Páll Marvin.
í fyrra var undirritaður samningur
milli menntamálaráðuneytisins og
bandarískra stjórnvalda um þátt-
töku íslenskra skóla í svonefndu
Globe-verkefni. Það verkefni snýr
einkum að virkri þátttöku á raun-
greinasviði og umhverfismálum.
Sendiherra Bandaríkjanna var í
Vestmannaeyjum í vikunni til að
kynna verkefnið fyrir skólastjórn-
endum, forráðamönnum bæjarins,
Rannsóknasetursins og Keikósam-
takanna. Vill sendiherra tengja
verkefnið veru Keikós í Vest-
mannaeyjum.
„Ég ræddi við Jeff Foster hjá
Keikósamtökunum, Bjarka Brynjars-
son hjá Þróunarfélaginu, Pál Marvin
Jónsson forstöðumann Rannsókna-
setursins, Sigurð Símonarson skóla-
málafulltrúa og skólastjóra grunn-
skólanna,“ sagði Day Mount sendi-
herra í samtali við Fréttir. „Ég kynnti
Global verkefnið sem A1 Gore vara-
forseti Bandaríkjanna er aðalhvata-
maður að. Það nær til 56 landa og eru
öll Norðurlöndin þar á meðal. Mín
hugmynd er að fá skóla í Vest-
mannaeyjum til að taka þátt í
verkefninu og tengja það veru há-
hyrningsins Keikós í Vestmanna-
eyjum,“ bætti sendiherrann við en
hann kom mikið við sögu í tengslum
við flutning Keikós til Eyja.
Hugmynd hans er að Vest-
mannaeyjar verði miðstöð rannsókna,
menntunar og vísindastarfsemi sem
tengist hafmu og mengun heims-
hafanna. Segir hann mikilvægt að
heimamenn hafí ákveðið frumkvæði.
„Vísindamenn gætu komið að verk-
efninu sem ekki aðeins nemendur í
Vestmannaeyjum ynnu að heldur líka
ungt fólk út um allan heim. Unga
fólkið í Vestmannaeyjum gæti svo
verið í sambandi við jafnaldra sína
hvar sem er í heiminum. Hluti
rannsókna á eiturefnum og þung-
málmum í heimshöfunum. sem er
orðið alheimsvandamál, gætu farið
fram hér.“
Sendiherrann er mikill áhugamaður
um Keikó og er mjög ánægður með
hvað hann þrífst vel í Klettsvíkinni.
„Hann er við góða heilsu og virðist
hamingjusamur sem mér finnst mjög
jákvætt. Áhugi fólks í Bandaríkjunum
er ennþá mikill á velferð Keikós og
eru að birtast greinar um hann í
víðlesnum blöðum og tímaritum. Við
erum tilbúnir til að hjálpa til og ég er
bjartsýnn á framhaldið," sagði Day
Mount sendiherra að lokum.
Um Globe-verkefnið hér á landi er
það að segja að tveir íslenskir skólar
voru valdir til þessa samstarfs, Álfta-
mýrarskólinn í Reykjavík, sem er
grunnskóli og svo Éjölbrautaskóli
Suðumesja. Tveir raungreinakenn-
arar, einn frá hvorum skóla, sóttu
námskeið í Þýskalandi í fyrra. Að því
loknu tóku þeir til við að setja upp
Globe-verkefnið í skólum sínum
ásamt samkennumm. Þá þurfti að
festa kaup á talsverðu af tækjum og
búnaði utanlands frá.
Nú hefur fengist nokkur reynsla af
þessari vinnu. Þeir kennarar, sem hafa
notað efnið, hafa lokið lofsorði á það
þótt um erfiðleika hafí verið að ræða
eins og búast má við í byrjun.
Aðalvandamálið er að námsefnið er
allt á ensku og þótt íslenskir nemendur
séu yfirleitt vel að sér í því tungumáli,
þá vandast málið þegar kemur að
tæknilegu hliðinni.
Reynt hefur verið að kynna Globe-
verkefnið í fjölmiðlum og fyrir
áhrifamönnum. M.a. var bæði forseta
íslands og umhverfisráðherra boðið í
skólana til að sjá hvað verið væri að
gera þar. Þá hefur verkefnið einnig
verið kynnt fyrir skólanefndum,
líffræðikennumm og eðlis- og efna-
fræðikennumm innan Kennarasam-
bandsins.
Nú stendur til að fjölga þeim skólum
sem þátt taka í Globe-verkefninu.
„Áhugi sendiherrans á vísindastarfl
ungs fólks almennt og ekki síst hér í
Eyjum er mikil lyftistöng fyrir það
starf sem við emm að vinna og unnið
er í Rannsóknasetrinu. Vísindastarf
ungs fólks er lykill að fjölbreyttara
atvinnulífi hér og hefur þannig jákvæð
áhrif á búsetuskilyrði. Fyrir liggurað
góðir möguleikar eru á að skólamir í
Eyjum taki þátt í Globe-verkefninu og
bind ég töluverðar vonir við að svo
geti orðið og að takast muni gott
samstarf milli skólanna og Rann-
sóknasetursins,“ sagði Bjarki Brynj-
arsson hjá Þróunarfélaginu.
Jólatónleikar
Samkórsins í
næstu viku
Jólatónleikar Samkórsins verða
baldnir nriövikudaginn 9. des-
ember kl. 20.30 í Safnaðar-
heimilinu.
Samkórinn hefur æft af krafti síðan
í september og fær fólk að heyra
afrakstur vetrarstarfsins. Á dagskrá
kennir ýmissa grasa og ekki ráðist á
garðinn þar sem hann er lægstur.
T.d. verða sungin tvö lög sem útsett
em fyrir hina heimsfrægu King
Singers frá Bretlandi. Einnig er á
efnisskrá ný útsetning eftir kór-
stjórann, Bám Grímsdóttur, af
Grýlu í gamla hellinum og
skemmtileg blanda af íslenskum og
erlendum jólalögum, allt frá
miðöldum fram í jass og popp
nútímans. Þó eru öll lögin nteð
íslenskum textum. Miðaverð á
tónleikana er 800 kr. fyrir fullorðna
og 200 kr. fyrir böm.
(F réttatilkynning)
Hjálmfríúur Sveínsdóttir, skólastjóri Barnaskólans, hélt upp á fimmtugsafmæli sitt í gær. Var mikið um dýrðir
í Barnaskólanum í tilefní þess. Veisluborð beið kennara í morgunfrímínútum og að sjálfsögðu gleymdust
nemendurnir ekki, allir fengu tertu í nestistímanum. Afmælissöngurinn glumdi um alla ganga og allir voru
glaðir og kátir. Á mvndínni er afmælisbarnið í hópi nemenda úr 5. BB og sögðu bau að BB stæði fyrir „besti
bekkurinn" en bættu við að kennarinn beirra héti nú raunar Bryndís Bogadóttir.
(FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Benedikt Gestsson & Sigurgeir Jónsson.
íþróttir Rútur Snorrason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson.
Prentvinnæ Eyjaprent ehf. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjóman Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-1293.
Netfang/rafpóstur frettir@eyjar.is. Veffang: http//www.eyjar.isMrettir.
FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt I áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Veitingaskálnum Friðarhöfn, Tvistinum, Amigo, Kránni, Vöruval, Herjólfi,
Flugyallarversiuninni, Tanganum, Söluskálanum Friðarhöfn. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum.
FRETTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.