Fréttir - Eyjafréttir - 29.12.1998, Side 12
12
Fréttir
Þriðjudagur 29. desember 1998
MinnisuardiumRafveituna
í tilefni gosloka var afhjúpaður
minnisvarði um hús Rafveitunnar við
Heimatorg en húsið fór undir hraun í
gosinu 1973. Minnisvarðinn stendur í
hrauninu, 14 metrum fyrirofan þann
stað sem Rafveituhúsið stóð á. Garðar
Sigurjónsson, fyrrverandi rafveitu-
stjóri, afhjúpaði minnisvarðann.
EndurbæturA
Íþrúttamidstöd
Opnuð voru tilboð í endurbætur og
viðbyggingu við íþróttamiðstöðina.
Steini og Olli reyndust eiga lægsta
tilboðið, upp á 109 milljónir eða 81%
af kostnaðaráætlun. Vartilboði þeiira
tekið.
Guddjúrgsumarstúlkan
Sjö stúlkur, hver annarri fallegri,
kepptu um titilinn Sumarstúlka Vest-
mannaeyja 1998. Keppnin fór fram á
Höfðanum og var til fyrirmyndar á
allan hátt. Guðbjörg Guðmannsdóttir
varð hlutskörpust þeirra.
Nýir prestar radnir
Akveðið var að ráða séra Kristján
Björnsson sem sóknarprest í Vest-
mannaeyjum og Báru Friðriksdóttur,
guðfræðing sem prest. Bára kemur frá
Hafnarfirði en Kristján hel'ur verið
sóknarprestur á Hvammstanga.
SlGRÚN INGA STÖDVARSTIÚRI
Sigurður Jónsson, stöðvarstjóri Pósts
og síma í Vestmannaeyjum, tók við
starfi sem stöðvarstjóri Islandspósts í
Mosfellsbæ. Sigrún Inga Sigurgeirs-
dóttir var ráðin sem stöðvarstjóri Is-
landspósts í Vestmannaeyjum.
VaraðvidPúpum
Baráttan um Keikó tók á sig ýmsar
myndir og Austfirðingar margir
hverjir áttu erfitt með að sætta sig við
að hvalnum skyldi valin búseta í
Eyjum. í auglýsingu þar fyrir austan
var fólk varað við að fara á dansleik
með hljómsveitinni Pöpum sem væru
frá hinum samviskulausu Vest-
mannaeyjum. Voru Eskfirðingar
hvattir til að fara fremur á dansleik
með Greifunum frá Akureyri. Þetta
hafði sín áhrif og varð að aflýsa
dansleik Papanna. Þótti þeim að
vonum hart að mega gjalda þess að
þrír þeirra eiga ættir sínar að rekja til
Vestmannaeyja þó svo að enginn
þeirra sé búsettur hér lengur.
30ARAAFMÆIIVATNSVEITU
Þess var minnst í júlí að 30 ár eru liðin
síðan vatnsleiðsla var lögð hingað frá
fastalandinu. Á sínum tíma var það
Surtseyjargosið sem ýtti á eftir þeim
framkvæmdum en regnvatn af þökum
var nær óhæft lil drykkjar vegna ösku
af völdum gossins.
Adstadafyrirdýraiækni
Komið var upp aðstöðu fyrir
dýralækni í Eyjum í gamla líkhúsinu,
eða Villunni eins og húsið er oftast
kallað. Páll Stefánsson, framkvæmda-
stjóri Dýralæknaþjónustu Suðurlands,
sagði að stefnt væri að því að
dýralæknir kæmi til Eyja einu sinni í
mánuði en eftirspurn myndi einnig
ráða þjónustunni við Eyjar.
Orlofshús vid Ofanleiti
Valgeir Jónasson, smiður og handa-
vinnukennari, hyggst reisa orlofshúsa-
byggð fyrir ofan hraun í landi
Ofanleitis. Valgeir hefur í huga að
reisa tíu orlofshús og hefur jregar lokið
við smíði eins þeirra. Samhliða
orlofshúsunum ætlar Valgeir að koma
upp aðstöðu fyrir húsbíla, svo og
tjaldstæði.
ÁSÆLDUST FÉI GaUJULUNDI
Einhverjir hafa að líkindum eytt um
efni fram á þjóðhátíð og séð fram á að
laga þyrfti ijárhaginn með einhveijum
ráðum. Þau Erlendur Stefánsson og
Gauja, kona hans, hafa á undanfömum
árum eytt flestum sínum frístundum í
að fegra og prýða lundinn sinn austur
á hrauni, gestum og gangandi til
ómældrar ánægju. En einn morguninn
komu þau að aurabauknum í lund-
inum brotnum. Venjan er sú að gestir
láta fé af hendi rakna þegar þeir eiga
leið um lundinn. En þessir gestir
höfðu annan hátt á og hirtu það fé sem
í bauknum var.
Glöggtergestsaugad
ítalskur mannfræðingur, sem hér var á
þjóðhátíð, sagði að íslendingar
drykkju eins og víkingar. Raunar ætti
hið sama við frændur okkar, Fær-
eyinga, en mannfræðingurinn hafði
einnig verið á Olafsvöku. Hann sagði
að þjóðhátíð minnti um margt á kjöt-
kveðjuhátíðir í hans heimalandi. Þá
vitum við það.
Fyrsti hvellurinn
Eftir nær látlausar stillur. allt sumarið,
kom loks að því að hann hvessti. Blés
hraustlega um aðra helgina í ágúst og
komst vindur í ellefu stig. Ekki varð
tjón af en bjarga varð tveimur gúmmí-
tuðrum Álseyinga sem slitnuðu upp
frá bóli við eyna.
Fáránlegt athæfi
Ungur maður varð fyrir þeirri ó-
skemmtilegu reynslu einn morguninn
að fá stein í höfuðið þar sem hann sat
og lét fara vel um sig í heita pottinum
í sundlauginni. Steininum var kastað
yfir girðinguna og ljóst að þar höfðu
börn ekki verið að verki. Flytja varð
piltinn á sjúkrahús þar sem gert var að
sárum hans.
FúLLUR ÚYNDIS
Þess eru mörg dæmi að fólk fyllist
óyndi þegar dag tekur að stytta. En
Guðmundur kantor Landakirkju var
ekki fullur óyndis vegna fækkunar á
dagstundum. Hans ógæfa var sú að
hin dúnmjúka Citroenbifreið hans
bilaði uppi á landi. Guðmundur, sem
ekið hefur Citroen í 30 ár, reyndi að fá
aðra slíka til að geta haldið akstri
sínum áfram um landið en slíkir
kostagripir voru ekki á lausu þá
stundina svo að hann varð að gera sig
ánægðan með næstbesta kostinn og
fékk Volvo. En sú sænska framleiðsla
býr ekki yfir mýkt og yndisþokka
hinna frönsku bíla og því fylltist
Guðmundur óyndi sem hann taldi
fullvíst að myndi ekki læknast fýrr en
Heilagara en allt heilagt
Nokkur fiðringur var kominn í fólk
eins og alla jafna síðustu dagana fyrir
þjóðhátíð. Skipafélögin Eimskip og
Samskip tilkynntu að engar skipa-
komur yrðu hjá þeim um þjóð-
hátíðarhelgina. Ástæðan var mjög
einföld. Hægt væri að kalla út mann-
skap alla daga ársins til vinnu við skip,
sama hvort væri á jólum eða páskum.
En á þjóðhátíð, nei takk, hún væri
heilagari en allt sem heilagt er.
Nýir útgerdarmenn
Þeir bræður Sigurjón og Gunnar Dairi
Adolfssynir keyptu 147 tonna bát sem
Nokkur barátta við veðurguðina setti
mark sitt á þjóðhátíð eins og oftar. En
þegar upp var staðið var það mál
manna að þessi þjóðhátíð væri einhver
hin besta sem haldin hefur verið (er
það ekki þannig á hverju ári?). Talið
var að aðsóknarmet hefði verið slegið
í þetta sinn og tala gesta farið vel yfir
tíu þúsund manns. Þrátt fyrir allan
þennan fjölda hafði lögregla ekki
meira að gera en á venjulegri þjóð-
hátíð og engin alvarleg mál komu upp.
Lítið var um ólögleg fíkniefni, þeim
mun meira af því löglega, og engin
nauðgun var kærð. Sem sagt, allt í
lukkunnar velstandi.
Skólar hófust í september og nýnemar voru boðnir
velkomnir í Framhaldsskólann á viðeigandi hátt.
Valgeir Jónasson, smiður, handavinnukennari og gæsabóndi að Ofanleiti, hóf byggingu
orlofshúsa í Ofanleitislandi.
Glaðningurinn birtur
Skattskráin var lögð fram rétt eftir
þjóðhátíð (kannski af nærgætni). Enn
sem fyrr yfirtóku skipstjórar og
útgerðarnrenn efstu sætin og af tíu
hæstu skattgreiðendum var það aðeins
Hanna María apótekari sem var utan
sjávarútvegsins en hún lenti í 4. sæti
með rúmar fimm milljónir. Hæstu
gjöld greiddi Kristbjöm Ámason,
skipstjóri á Sigurði og heimsmethafi í
loðnuveiðum með 6,8 milljónir, í öðm
sæti var Jóhann Halldórsson, útgerðar-
maður, með 6 milljónir og Matthías
Oskarsson, útgerðannaður í þriðja sæti
með 5,3 milljónir. í fimmta til níunda
sæti voru svo eintómir loðnuskip-
stjórar með gjöld á bilinu tjórar til
fimm milljónir.
Tvö skip frá Eyjum reyndu fyrir sér á
makrílveiðum í færeyskri lögsögu,
Antares og Sighvatur Bjamason. Afli
var lítill lil að byrja með en menn vom
sáttir við árangurinn enda um hálf-
gerðar tilraunaveiðar að ræða.
MlKIL AUKNING FARÞEGA
Fyrstu sjö mánuði ársins var um mjög
mikla aukningu að ræða í llutningi
farþega til Eyja. Lítils háttar aukning
var hjá Herjólfi en í fluginu var um
stórt stökk að ræða og þá aðallega hjá
íslandsflugi og Flugfélagi Vestmanna-
eyja. Hjá íslandsflugi hafði farþega-
fjöldinn tvöfaldast milli ára, fór úr
7000 farþegum árið 1997 í 14000 á
þessu ári.
Tveirámakríl
Fjölmennasta þjóðhátíð frá upphafi var haldin og fór hið
besta fram.
Lundaueidimetid slegid
Sigurgeir Jónasson, frá Skuld, hefur
átt metið í lundaveiði í 21 ár en hann
veiddi á sínum tíma 1204 fugla á
einum degi í Álsey. En nú sló ungur
veiðintaður í Ystakletti, Jón Kristinn
Ólafsson þetta met er hann veiddi
1420 fugla yfir daginn. Jón Kristinn
sat við í 11 tíma en Sigurgeir aðeins
átta og háll'an þannig að tölurnar eru
ekki alveg sambærilegar.
þeir gáfu nafnið Adólf Sigurjónsson
eftir föður sínum heitnum. Raunar
hafa þeir bræður verið þekktari fyrir
rekstur bifreiðaverkstæða og sögðust
þeir myndu halda þeim rekstri áfram
þrátt fyrir að vera komnir í útgerð.
Agúst
Fjölmennasta
ÞJÚÐHÁTÍÐ FRÁ UPPHAFI