Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Síða 4

Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Síða 4
4 Fréttir Fimmtudagur 26. ágúst 1999 Bókv1tig^kana Almenn skátafræðTi Sú bók sem er mér hvað mest hugleikin, fyrir utan meistaraverkið Sjáfstætt fólk eftir Halldór Laxness, er skátahandbókin. Skátahandbókin er sú bók sem ég hef statt og stöðugt við hendina og ættu allir að lesa hana sér til fróðleiks og yndisauka. í Skáta- handbókinni er að finna ýmsan fróðleik um útilíf, skyndihjálp, almenn skátafræði og hvernig á að haga sér og lifa í sátt við náttúruna. Þessi bók hefur kennt mér meira en flestar almennar kennslubækur hafa gert. Það sem ég er þó með á náttborð- inu núna eru hin stórbrotnu „Andrés önd“ blöð. Andrés önd er alltaf að koma sér í einhver vandræði og hver veit hverju Ripp, Rapp og Rupp taka upp á næst. Hexía de Trix er óþrjótandi í humyndum um hvemig hún á að góma happaskilding Jóakims aðalandar og Mikki mús leysir hverja gátuna á fætur annarri. Ég ætla að skora á skátann og kakótröllið Freydísi Vigfúsdóttur sem næsta bókaunnanda vikunar. ©ráfspor - Listamenn eru alltaf athyglisverðir og fara oft stórum. Það ertil þess tekið að einn ágætur listamaður dvaldi í Eyjum á dögunum og var slegið upp í fyrirsögn í eínu staðarblaðinu: Hvirfilbylur skellur á, og má til sanns vegar færa. I\lú vilja hins vegar illa innrættir menn meina að fyrirsagnasmið þessum hafi skotist illa og réttara hefði verið að segja: Siagveður skellurá. - Það tekur á taugarnar að standa í ungliðahreyfingu, (les stuttbuxnadeild) Sjálfstæðisflokksins. Þetta kom berlega í Ijós á stuttbuxnaþingi flokksins um sfðustu helgi í Eyjum. Var sérstakur titringur þegar kom að atkvæðagreiðslunni um formanninn. Um tíma hringsóluðu hundruð atkvæða yfir Eyjum í flugvél, sem beið eftir smugu að lenda. Einn öflugur og ötull Eyverji, sem ekki kallar allt ömmu sína var með böggum hildar meðan á hringsóli atkvæðanna stoð. Fullyrti hann, þegar hvað tvísýnast var með lendingu atkvæðanna að hann væri kominn með allt að því blæðandi magasár og myndi trúlega enda á Heilsuhælinu í Hveragerði ef ekki birti. Byrjaði i//a en endaði vel Um helgina eignuðust Vestmanna- eyingar Islandsmeistara í golfi, í flokki drengja 14 til 15 ára. Sá heitir Karl Haraldsson og er Eyjamaður vikunnar í tilefni þess. Fullt nafn? Karl Haraldsson. Fæðingardagur og ár? 21. apríl 1984. Fæðingarstaður? Vestmannaeyjar. Fjölskylduhagir? Enn ólofaður, bý í foreldrahúsum. Menntun og starf? Er að byrja í 10. bekk í haust. Hef í sumar starfað sem golfkennari. Laun? Ágæt. Bifreið? Engin ennþá. BMW er mjög í sigtinu þegar bílprófið erkomið. Helsti galli? Skapstór. Helsti kostur? Það skulu aðrir dæma um. Uppáhaldsmatur? Hamborg- arhryggur. Versti matur? Súrmatur. Uppáhaldsdrykkur? Kók. Uppáhaldstónlist? Rokk. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir? Að vera með vinum og félögum í golfi. Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að spila golf í rigningu. Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í happdrætti? Leggja hana inn í banka. Bíða eftir BMW-inum. Uppáhaldsstjórnmálamaður? Árni Johnsen. Uppáhaldsíþróttamaður? Sibbi, frændi, Óskarsson. Ertu meðlimur í einhverjum félagsskap? Golfklúbbnum og ÍBV. Uppáhaldssjónvarpsefni? Golfog fótbolti. Uppáhaldsbók? Englar alheimsins. Hvað meturþú mest í fari annarra? Heiðarleika. Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra? Óheiðarleiki. Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Golfvöllurinn í Vestmanna- eyjum. Var þetta erfitt mót? Já, ég byrjaði illa en endaði vel. Hvað þarfgóður golfleikari að hafa til brunns að bera? Mikinn tíma, hann þarí að vera skynsamur og æfa sig mjög mikið. Sérðu fyrir þér atvinnu- mennsku í framtíðinni? Það verðurbara að ráðast. Hvorum myndirðu halda með í golfmóti, Tiger Woods eða Sergio Garcia? Garcia. Hann er svo léttur og skemmtilegur, hefur greinilega gaman af því sem hann erað gera. Eitthvað að lokum? Ég vil þakka stjórn og félögum í Golfklúbbi Vestmannaeyja fyrir stuðning í baráttunni að settu marki. Ég vil líka þakka þeim bræðrum, Júlíusi og Þorsteini Hallgríms þeirra aðstoð. Og svo hefur fjölskyldan stutt vel við bakið á mér, ekki síst pabbi. Allir þessir aðilar fá mínar bestu þakkir. Nýfædf% estmannaeyingar 9<* Drengur Þann 8. júlí eignuðust Kristín Jónsdóttir og Ólafur Bjami Ólafsson son. Hann vó 15 merkur og var 53 sm að lengd. Ljósmóðir var Björg Pálsdóttir. Þann 13.júlíeignuðustSúsannaGeorgsdóttirog Magnús Jónsson son. Hann vó 15 merkur og var 51 sm að lengd. Með honum á myndinni er stóra frænka, Bryndís Björg. Ljósmóðir var Björg Pálsdóttir Á dofinni 4* 26. og 27. ágúst Glerlistasýning á Lundanum Id. 15.00- 19.00 28. ágúst Upphitunardansleikur á Broadway fyrir leik KR og ÍBV 29. águst Leikur KR og ÍBV í Landssímadeild inni í Frostaskjólinu. Upphitum á Glaumbar fyrir leikinn Áfram ÍBV 29. ágúst Aðalfundur Sjálfsbjargar í Veslmannaeyjum 1. september Vetrarstarf Fimleikafélagsins Ránar að hefjast 1. september Setning Hamarsskóla og Bama- skóla Vesfmannaeyja

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.