Fréttir - Eyjafréttir - 26.08.1999, Blaðsíða 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 26. ágúst 1999
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 26. ágúst
Helgistund í Hraunbúðum
kl. 11.00.
Föstudagur 27. ágúst
Utfararguðsþjónusta Friðriks
Ingvarssonar kl. 14.00.
Laugardagur 28. ágúst
Útfararguðsþjónusta Guðna
Ólafssonarkl. 14.00
Sunnudagur 29. ágúst,
höfuðdagur
Guðsþjónusta kl. 11.00
Kaffisopi á eftir í safnað-
arheimilinu. Nú er kominn
tími á að mæta til kirkju og
biðja fyrir góðu síðsumri.
Kristján Bjömsson.
Fimmtudagur 2. september:
Helgistund á sjúkrahúsinu,
dagstofu 2. hæð, kl. 14.30.
Hvíta-
SUNNU-
KIRKJAN
Fimmtudagur
Kl. 20.30 Biblíulestur
Laugardagur
Kl. 20.30 Brotning brauðsins
Sunnudagur
Kl. 11.00 Vakningasamkoma.
Steingrímur Ágúst Jónsson
predikar.
Allir hjartanlega velkomnir
Aðvent-
KIRKJAN
Laugardagur 28. ágúst
Kl. 10.00 Biblíurannsókn.
Allir velkomnir.
Biblían
talar
481-
1585
Golf: Islandsmeistaramót unglinga í Eyjum
Kalli varð íslandsmeistari
Landsmót unglinga í golfí var
haldið í Vestmannaeyjum um
síðustu helgi og er það hið fjöl-
mennasta til þessa. Keppendur
voru 168 frá 17 golfklúbbum en í
fyrra voru keppendur um 140.
Leikið var í þremur aldursflokkum
pilta og stúlkna eða alls sex
flokkum. Þetta var þriggja daga
mót, hófst á föstudegi og lauk á
sunnudag.
Öll framkvæmd mótsins tókst eins
og best varð á kosið. Veður var
þokkalegt ef undan er skilinn síðari
hluti laugardags en þá varð að hætta
keppni hjá yngsta stúlknaflokknum
eftir níu holur. GV átti 17 af
keppendum í mótinu og var árangur
þeirra misjafn en góður sé litið á
heildina.
Hæst ber þó árangur Karls Haralds-
sonar sem varð efstur í sínum aldurs-
flokki og þar með íslandsmeistari.
Karl, sem er með 7 í forgjöf, byrjaði
ekki vel á fyrsta degi, lék þá 18
holumar á 84 höggum en bætti um
betur á laugardag á 74 höggum eða
aðeins fjóra yfir pari vallarins og
endaði svo á 78 höggum á sunnudag
og það nægði honum til sigurs.
Þessi varð árangur efstu keppenda í
hveijum flokki:
Drengir 12 -13 ára:
1. Sigurbergur Sveinss. GK 246 h
2. Amar V Ingólfsson GH 251 h
3. Elfar Halldórsson GA 264 h
Drengir 14 -15 ára:
1. Karl Haraldsson GV 236 h
2. Ingvaldur B Erlendss GK 238 h
3. Magnús Lárusson GKJ 241 h
Drengir 16 -18 ára:
1. Guðmundur I Einars GSS 228 h
2. Ingvar K Hermannss GA 230 h
3. Tómas Salmon GR 230 h
Stúlkur 12 -13 ára:
1. Tinna Jóhannsd. GK 195 h
2. María Ósk Jónsd. GA 230 h
3. Eva B. Halldórsd. GSS 246 h
Stúlkur 14 -15 ára:
1. Harpa Ægisdóttir GR 274 h
2. Kristín R Kristjánsd. GR 274 h
3. Ingibjörg Einarsd. GR 284 h
Stúlkur 16 -18 ára:
1. Helga R S vanbergsd GKJ 239 h
2. Nína B Geirsdóttir GKJ 249 h
3. Katrín D Hilmarsd. GKJ 251 h
Tveir keppendur fóru holu í höggi á
Á efri myndinni eru frá vinstri,
Ingvaldur Ben Erlendsson GSS,
íslandsmeistarinn Karl Haralds-
son GV og Magnús Lárusson
GKJ.
Á neðri myndinni er Eyjakonan
Kolbrún Sól, GK en hún náði
sér ekki á strik í mótinu.
mótinu. Það vom þeir Gunnar Þór
Gunnarsson GKG og Björgvin Guð-
mundsson GK.
Gunnar K. Gunnarsson, formaður
GV, var formaður mótsnefhdar. Hann
lauk miklu lofsorði á alla framkomu
keppenda sem verið hefði þeim til
mikils sóma. Þeir hefðu verið verð-
ugir fulltrúar sinna klúbba. Þá segir
Gunnar að golfvöllurinn hafi hlotið
einróma lof, bæði keppenda og
fararstjóra. Um 20 manns frá GV
unnu við mótið, auk vallarstarfs-
manna, og sagði Gunnar það fólk hafa
unnið mikið og gott starf, bæði við
undirbúning og svo mótið sjálft.
Kvennaknattspyrnan:
Biddý skoraði sex mörk með landsliðinu
Bryndís Jóhannesdóttir, leikmaður
ÍBV, var valin til að spila fyrir
íslands hönd með landsliði skipað
stúlkum 18 ára og yngri. Tilefnið
var forkeppni Evrópukepninnar og
Iék íslenska landsliðið 3 leiki sem
allir unnust. Biddý, eins og hún er
kölluð, kom sterk inn og skoraði 6
mörk í leikjunum þremur.
Ertu sátt við þína frammistöðu í
leikjunum?
, Já ég held ég geti ekki verið annað,
sex mörk í þremur leikjum er ansi góð
bytjun."
Nú er óhœtt að segja að þú hafir
komið þér á framfœri í leikjunum, en
eru þetta fyrstu leikimir sem þú spilar
fyrir Islands hönd?
„Nei, í lyrra spilaði ég með undir 17
ára landsliðinu í Norðurlandamótinu
en okkur gekk ekkert svakalega vel,
töpuðum tveimur leikjum, gerðum eitt
jafntefli og skoruðum ekki eitt einasta
mark.“
Eru einhver verkefhi framundan hjá
landsliðinu?
,Já, við komumst áfram í milliriðil
og hann verður spilaður í Sviss seinni
hlutann í október, en þess á milli verða
stífar æfingar í Reykjavík, jafnvel
íjórar til fimm í viku þannig að þetta á
eftir að verða dálítið strembið.“
Ertu sátt við gengi IBV í sumar?
„Nei ég er ekki alveg nógu sátt við
gengi okkar í deildinni í sumar.
Miðað við styrk hópsins eigum við að
geta mun betur. Annars höfum við
verið að sýna góða takta inn á milli,
eins og t.d. í bikamum en stöðug-
leikann vantar í leik okkar.“
Nú hafa ensku stúlkurnar horfið á
braut, finnst þér leikur liðsins hafa
versnað eftirþað?
,J9ei alls ekki, breiddin er það mikil
í liðinu, ungar og efnilegar stelpur eru
að koma upp og þama gefst þeim
kjörið tækifæri á að öðlast dýrmæta
reynslu. Leikur liðsins hefur kannski
breyst eitthvað, en ekki versnað."
Hvort er betra að spila með Kelly eða
Hrefnu ífremstu víglínu?
„Verð ég ekki að segja að það sé
betra að spila með Hrefnu, Kelly les
þetta hvort sem er ekki. Nei, nei, þær
eru það ólíkir leikmenn að það er varla
hægt að bera þær saman.“
Eitthyað að lokum?
„Ég vil bara hvetja bæjarbúa að
standa við bakið á okkur áfram,
stuðningur þeirra hefur verið mjög
góður það sem er af sumri enda era
Eyjamenn bestu stuðningsmenn
landsins."
BRYNDÍS Jóhannesdóttir er með efnilegustu leikmönnum sem ÍBV
hefur á að skipa í kvennaboltanum.