Fréttir - Eyjafréttir - 10.02.2000, Blaðsíða 2
2
Frcttir
Fimmtudagur 10. febrúar 2000
frettir
Neytendasamtökunum
neitað
Bæjarráð tók á fundi sínum á
mánudag fyrir bréf frá Neytenda-
samtökunum. Þar er óskað eftir
styrk að upphæð kr. 91.700 kr.
vegna starfsemi kvörtunar- og leið-
bciningaþjónustu. Bæjarráð gat
ekki orðið við því erindi.
Betelvillendurskoðun
Forráðamenn Leikskólans Betel
hafa óskað eftir leiðréttingu vegna
framlaga á árinu 1999 og beðið um
endurskoðun á samningi um rekstur
leikskólans. Bréf um þetta efni var
lagt fram á síðasta fundi bæjarráðs
og var bæjarritara og skólamála-
fulltrúa falið að leita nánari
upplýsinga og leggja fyrir næsta
í'und bæjaiTáðs.
Yfir meðaltali
Heldur meira var að gera hjá
lögreglu í liðinni viku en þeirri
næstu á undan. Færslur í dagbók
vom 163 sem er heldur yftr meðal-
tali. Helgin var einnig annasamari
en venjulega eða 40 færslur frá
föstudagskvöldi fram á sunnudags-
morgun.
Búðahnupl og fijófnaður
Tveir þjófnaðir voru tilkynntir
lögreglu á mánudag. í öðru
tilvikinu var um búðahnupl að
ræða. þar var barn staðið að verki
við að stela í einni af verslunum
bæjarins. Hitt málið er nokkru
eldra og hefur sá þjófnaður átt sér
stað í fyrstu viku ársins, á dögunum
frá 2. til 6. janúar þótt ekki hafi
hann verið kærður fyiT en nú.
Þarna er um að ræða þjófnað á
myntsafni úr heimahúsi.
Veggjakrot, rúðubrot ofl.
Þrjú skemmdarverk voru tilkynnt
lögreglu í vikunni. Það fyrsta 2.
febrúar vegna veggjakrols á hús-
vegg í Foldahrauni. Vitað er hveijir
þar voru að verki. Þá var brotin
rúða í vörubifreið við Norðursund
(Skvísusund) aðfaranótt Iaugar-
dags. Á sunnudag var tilkynnt um
sprengingu við Hellugerðina að
Ofanleiti. Við athugun kom í Ijós
að sprengja hafði verið sprengd í
bifreið sem þar stóð og var bifreiðin
mikið skemmd eftir. Ekki er vitað
hverjir voru að verki í þessum
tveimur skemmdarverkum og
þiggur lögregla allar upplýsingar
um þau.
Bílstolið
Aðfaranótt laugardags var bíl stolið
frá Hrauntúni. Hann fannst
skömmu síðar á Brekastígnum,
óskemmdur. Ekki er vitað hver tók
bílinn þessu traustataki og óskar
lögregla eftir upplýsingum um
málið.
Býrt að brjóta reglurnar
Lögregla vill benda ökumönnum á
að virða umferðarmerki. Sér-
staklega þau merki er varða bann
við lagningu bifreiðar eða bann við
stöðvun og lagningu. Sekt vegna
brota af þessu tagi er 5000 krónur.
Þá vill lögregla einnig benda á að
það er á ábyrgð ökumanns að
farþegar, sem eru yngri en 15 ára.
noti öryggisbúnað í bifreið. Sekt
fyrir hvem farþega, sem er yngri en
15 ára og notar ekki öryggisbúnað,
er frá 8000 til 10.000 kr.
Vestmannaeyjalistinn vill að bæjarstjóri fari tafarlaust frá:
Krefjast róttækra að-
gerða í fjármálum bæjarins
Meirihlutinn stóð með sínum manni
Bréf eftirlitsnefndar með fjár-
máium sveitarfélaga þar sem varað
var við slæmri fjárhagsstöðu Vest-
mannaeyjabæjar lá fyrir bæjar-
stjórn á fimmtudaginn. Fulltrúar
Vestmannaeyjalistans segja bréfið
áfellisdóm yfir fjármáiastjórn
meirihluta sjálfstæðismanna og
gengu þeir svo langt að leggja fram
tillögu um að bæjarstjóri yrði
leystur frá störfum og leitað yrði að
manni með þekkingu á fjár-
málastjórn. Yrði meginhlutverk
hans að gera tillögur um upp-
stokkun á fjármálastjórn bæjarfé-
lagsins. TiIIagan var felld með fjór-
um atkvæðum sjálfstæðismanna
gegn þremur atkvæðum V-Iistans.
Bæjarfulltrúar V-listans gefa fjár-
málastjóm sjálfstæðismanna algjöra
falleinkunn og vísa allri ábyrgð á
hendur þeim á því ástandi sem nú er í
fjármálum bæjarins í bókun sem V-
listinn lagði fram á bæjarstjómar-
fundinum. „Enda hefur minnihlutinn
ekki átt þess kost að taka þátt í mótun
tjármálastefnu sveitarfélagsins eins og
margoft hefur komið fram í bókunum
í bæjarstjóm,“ sögðu fulltrúar V-
listans á fundinum.
Á fundinum var einnig lögð fram
fjárhagsáætlun Vestmannaeyjabæjar
og stofnana fyrir árið 2000. V-listinn
segir að þar sé stefnt að enn frekari
lántökum til að ná endum saman. „Hjá
bæjarsjóði aukast þær um 130
milljónir og hjá hafnarsjóði um 104
milljónir svo dæmi sé tekið. Þetta gerir
ástandið enn alvarlegra verði ekki við
brugðist."
Við þessar aðstæður telur minni-
hlutinn nauðsynlegt að gripið verði til
aðgerða sem duga til að snúa
þróuninni við. „Við teljum í því
sambandi nauðsynlegt að stokka upp
fjármálastjóm Vestmannaeyjabæjar,
gera þ;ir róttækar breytingar og byggja
upp að nýju þannig að fjármál
bæjarins komist á ný í eðlilegt horf.
Bæjarfulltrúar Vestmannaeyjalistans
em að sjálfsögðu tilbúnir að taka þátt í
þeirri uppstokkun og því uppbygg-
ingarstarfi sem fram undan er enda
verði breytt um íjármálastefnu,“ segir
í bókuninni sem fylgt er eftir með
tillögum um að bæjarstjóri verði
leystur frá störfum.
Tillagan er svohljóðandi: „Bæjar-
stjóm Vestmannaeyja samþykkir að
leysa bæjarstjóra frá störfum og
auglýsa starf hans laust til umsóknar.
Til starfsins verði ráðinn einstaklingur
sem hefur góða þekkingu á fjár-
málastjóm og hafi það meginhlutverk
að gera tillögur til bæjarstjómar um
uppstokkun á fjármálastjóm bæjar-
félagsins með það fyrir augum að
leysa þann mikla vanda sem nú blasir
við í fjármálum bæjarfélagsins.
Nýr bæjarstjóri skal í starfi sínu
hafa fullt samráð við bæjarstjóm í
heild, félagsmálaráðuneytið og eftir-
litsneftid með íjármálum sveitarfélaga,
við að finna lausn á því alvarlega
ástandi sem hefur skapast í íjármálum
Vestmannaeyjabæjar."
Viðbrögð meirihluta sjálfstæðis-
manna vom að Elsa Valgeirsdóttir
óskaði eftir fundarhléi. Að því loknu
var tillagan borin undir atkvæði þar
sem hún var felld með fjórum
atkvæðum meirihlutans gegn þremur
atkvæðum minnihlutans.
Þannig hefur peningum bæjarbúa verið varið frá
EIGNFÆRT 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 Samtals
Hraunbúðir (nettó) 26.263.000 -1.715.000 6.904.000 16.476.000 973.000 -1.639.000 11.815.000 32.504.000 91.581.000
Hamarsskóli 4.960.000 381.000 37.009.000 1 8.248.000 607.000 1.000.000 62.205.000
Barnasknli 16.728.000 15.745.000 14.331.000 1.033.000 237.000 27.329.000 16.465.000 91.868.000
Leikskólinn Kirkjugerði 15.985.000 42.000 1.310.000 12.194.000 29.531.000
Framhaldsskóli (nettó) 107.000 224.000 1 1.955.000 19.294.000 42.811.000 12.406.000 312.000 142.000 87.251.000
Slökkvibifreið 1 3.345.000 13.345.000
Sólhiíð 19 46.850.000 22.230.000 69.080.000
Keypt Týs/Þórsh/vellir 37.230.000 15.300.000 52.530.000
Búningsaðstaða Týsh. 14.780.000 14.780.000
Listaskóli 24.739.000 5.532.000 30.271.000
Háskóli v/Strandv. 50 6.479.000 6.479.000
Fjölsýn - hlutafé 365.000 365.000
Þróunarfélag - stofnfé 400.000 400.000
Keyptar eignir 0
Seldar eignir -10.730.000 -2.526.000 -13.256.000
Keyptar bifreiðar 1.400.000 6.400.000 1.440.000 2.000.000 4.191.000 -175.000 1.031.000 16.287.000
Samtals eignfært 94.801.000 58.463.000 50.291.000 40.890.000 57.050.000 48.340.000 45.933.000 80.526.000 70.423.000 552.717.000
GJALDFÆRT 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 Samtals
Gatnagerð (netté) 20.989.000 17.027.000 17.461.000 1 9.506.000 29.985.000 20.089.000 1 9.371.000 21.212.000 11.1 00.000 177.540.000
Annað gjaldfært 22.771.008 58.719.000 69.935.000 51.415.000 52.300.000 42.195.000 49.268.000 42.747.000 77.127.000 466.557.000
Samtals gjaldfært 43.760.000 75.746.000 87.396.000 70.921.000 82.365.000 63.084.000 68.639.000 63.959.000 88.227.000 644.097.000
Samtals eign- og gjaldf. 138.561.000 134.209.000 143.687.000 111.811.000 139.415.000 111.424.000 114.572.000 144.485.000 158.650.000 1.106.814.000
Skuldir 31.12.1998 886.000.000
Fél. íbúðir (br. 1992) 166.629.000
Skuldir 31.12.1989 -490.000.000
Skuldaaukning 1.1.90/ til 31.12.1998 að teknu tilliti til fól.íbúða 562.629.000
Fjárfestingar umfram skuldaaukningu 634.185.000
HÉRNA sést hvernig peningum bæjarbúa hefur verið varið frá áramútum 1989 og 1990 en sjálfstæðismenn tóku við stjórnartaumum í Ráðhúsinu 1990.
Tölurnar eru á verðlagi hvers árs sem þýðir að staða lána er allt önnur í dag en þegar þau voru tekin. Upplýsingar Ráðhús.
FRETTIR
8
Utgsfendi: B/jspst éhf. \éstnaTBe/juri. Ritstjád: átar (Sréarsscn. Blaðamenn: teEdikt Gsstssm& Siguc^ir Oixsscn.
trcttir: aMBSgHTL Ábyrgðarmenn: Órar GatðBC33ii & fíísli. IMtýssm.
Etsitvirœ: Byjcprent éÆ. \tetoaTBei0im. Afeetur ritstjótrar: Staniigi 47 n. W. SM: 481-3310. Mydriti: 481-1293.
Ifetfang/rafpóstur: fœttn%þr.is. \fefferg: ittp/A®H.%jar.is/~fættir.
FRÉTTIR kna út áOa fiimtuikp. Blaðið a: æit í ádtrift cg eimig í lajsaælu í Hjrrdnin, Kletti, \feitiripdáliim Erifeúrfii,
Tristdnm, TtgrLm, Krámi, \öuaL, ftejcilfi, Eh^afiHrvasknimi, T&ipim, SikrialanmEriferfDfii. FRÉTTIR eru psta&r í 2000 edrtriam.
FRÉTTIR guaðilaraðS&itauntejar-egháafefréttEfcilafe. EftirpstLn, KLjóðrittn, mtkm ljcaiitife og aiBð ar dEÍmilt raia temikfe æ getíð.